KFA

KFA

Share

KFA
Stofnað 7. Íþróttafélagsamtök lyftinga- og kraftlyftingamanna á Akureyri og nágrenni. Kraftlyftingafélag Akureyrar var stofnað 7. janúar árið 1975.

janúar 1975
---
Kt: 631080-0309
Hjalteyri 604
---
Íþróttastarf, lyftingar, viðburðir og starfsemi tengd því - og allt annað 🐺
---
⏰ Þjónustutímar fyrir félagsmenn & dropinn
---
Virkir dagar 15:30 - 21:00
Helgar 11:00 - 17:00

Photos from KFA's post 09/09/2026

Grelli rakst á goðsögnina Ólöfu Eir Guðmundsdóttur fyrir utan verksmiðjuna á Hjalteyri í gærkvöldi. Hún var nýkomin úr sjósundi á Hauganesi og farin að prófa kúlusteinana okkar.

Það er dæmigert fyrir Ólöfu. Hún mætir sjaldan á hefðbundnar æfingar.

Hún kom með okkur inn í salinn, heilsaði upp á fólkið og skoðaði áhöldin. Mestan áhuga hafði hún auðvitað á því sem leit út fyrir að vera þungt. Að lokum var hún farin að leika sér með 80 kílóa ketilbjölluna — með annarri hendi.

Hún segist hafa lært að vera sterk í sveit á Snæfellsnesi. Hér fyrir norðan hefur hún unnið sér til metorða í sláturhúsum, við bústörf og ýmiss konar erfiðisvinnu.

Ólöf er vel þekkt á svæðinu, sérstaklega meðal fólks úr lyftingaheiminum og víðar þar sem raunverulegur styrkur er metinn að verðleikum. Hún á sér enda sérstakan sess í íslenskri lyftingasögu: Ólöf var fyrsta íslenska konan til að taka 100 kíló á kjötinu í guðsgreininni — og það fyrir aldamót.

Á Akureyri þekkja hana flestir úr miðbænum um helgar. Þar gengur hún um á næturnar, safnar flöskum og spjallar við fólk. Þetta er hennar leið til að taka þátt í bæjarlífinu og í gegnum árin hefur hún sjálf orðið órjúfanlegur hluti af ásýnd miðbæjarins.

Hún var kvíðin við að æfa innan um annað fólk og kom sér því upp bekkpressubekk í kjallaranum heima. Í gegnum árin hefur hún þó reglulega laumast til okkar og tekið leynitoppa þegar fáir eru á staðnum.

Kvöldið endaði svo, inni á Leynibarnum yfir svalandi ananasdrykk.

08/09/2026

Byrjendanámskeið í styrktarþjálfun fyrir 35 ára og eldri

Vegna mikillar eftirspurnar bjóðum við upp á sérstakt byrjendanámskeið í styrktarþjálfun á Hjalteyri í haust.

Námskeiðið er sérhannað fyrir fólk sem vill fá faglega kennslu frá grunni. Það hentar bæði algjörum byrjendum og þeim sem vilja hefja æfingar á ný eftir langt hlé.

Farið verður yfir:

- upphitun og virkjun
- tæknilega framkvæmd æfinga og helstu hreyfinga
- meiðslavarnir, mótvægisæfingar og teygjur
- skipulag og stigvaxandi uppbyggingu æfinga
- aðferðir til að ná stöðugum og markvissum framförum í styrk og vöðvauppbyggingu

Markmiðið er að þátttakendur ljúki námskeiðinu með þekkingu, verkvit og sjálfstraust til að stunda styrktarþjálfun á eigin forsendum og byggja upp, viðhalda eða endurheimta styrk til framtíðar.

Innifalið er aðgangur að aðstöðu félagsins utan námskeiðstíma. Á föstudögum verður einnig boðið upp á valkvæða æfingatíma með leiðbeiningum og eftirfylgni.

Umsjónarmenn námskeiðsins eru Hulda og Grelli, þjálfarar hjá KFA.

Staðsetning: Lyftingaskólinn á Hjalteyri
Lengd: Sjö vikur
Upphaf: Mánudagurinn 19. október
Verð: 49.900 kr.

Konur: mánudaga og miðvikudaga kl. 17:00
Karlar: mánudaga og miðvikudaga kl. 19:30

Aðeins níu sæti eru í hvorum hópi svo hægt sé að veita hverjum þátttakanda persónulega leiðsögn.

Skráning og nánari upplýsingar:
[email protected]

06/09/2026

Það er alltaf lyftingaskóli á sunnudögum í verksmiðjunni á Hjalteyri, allan ársins hring.
Opið 11 til 17 og öll velkomin 🙌🏻
Áhersla: Þrautabraut og klifur

01/09/2026

Eftir 45 daga hefst heimsmeistaramótið í lyfjaprófaðri bekkpressu hér á Hjalteyri.

Mótið fer fram 16.–17. október á vegum IDFPA. Undirbúningur hefur staðið yfir síðan í febrúar og nú tekur við lokaspretturinn, þar sem síðustu þættir skipulagsins og framkvæmdarinnar verða pússaðir saman.

Vel á annað hundrað þátttakendur koma að mótinu þessa helgi. Saman verður þetta fjölbreytt, alþjóðlegt samfélag sem hittist hér á jaðri veraldar til að keppa um heimsmeistaratitla og kynnast þeirri menningu og þeim anda sem hefur vakað yfir kraftafólki fyrir norðan í hálfa öld.

Okkur þykir sérlega skemmtilegt að halda heimsmeistaramót í bekkpressu hér fyrir norðan. Í okkar röðum hefur bekkpressan nefnilega verið kölluð Guðsgreinin allt frá árinu 1979, samkvæmt kenningu Kára Elíssonar.

Bekkurinn er altarið og stönginni er pressað upp í átt að almættinu.

Bekkpressan hefur lengi verið eins konar manndómsvígsla í lyftingamenningunni — prófraun þar sem konur jafnt sem karlar takast á við þyngdina, byggja upp trú á eigin getu og leita síðan hærra. Menn ná ólíkum stigum, en glíman er alltaf sú sama.

Þetta er líklega það sígilda form lyftinga sem flestir hugsa fyrst um þegar þeir komast í kynni við kalt stálið. Það er mælikvarði sem lifir langt út fyrir keppnissalinn og spurningin sem allir lyftingamenn þurfa fyrr eða síðar að svara:

Hvað tekurðu í bekk?

Undanfarin misseri höfum við haldið fjölbreytt mót og viðburði, þróað aðstöðuna og safnað þeirri reynslu sem þarf til að takast á við verkefni af þessari stærðargráðu. Nú ætlum við að tengja alla þræðina saman og skapa eftirminnilega helgi fyrir keppendur, starfsfólk, gesti og heimamenn.

Á næstu vikum kynnum við keppendur og fólkið sem kemur að mótinu. Við munum einnig segja frá sögu lyfjaprófaðra kraftlyftinga og hugsjónunum sem liggja að baki þessum vettvangi.

Það verður gaman að sjá hversu margir öðlast tilveruréttinn á Hjalteyri.

Miðasalan er komin í loftið og hægt er að kaupa miða á tix.is.

30/08/2026

Lyftingaskólinn á Hjalteyri er opinn í dag frá kl. 11:00–17:00.

Hulda hefur sett upp þrautabraut og tekur spennt á móti gestum í Síldarkastalanum. Allir krakkar eru velkomnir til að spreyta sig á þrautabrautinni, leysa klifurþrautir og leika sér.

Í dag er jafnframt síðasti dagurinn á sýningunni SÝNI í Verksmiðjunni.

Við mælum eindregið með því að kíkja við á Hjalteyri í dag.

23/08/2026

Sunnudagur á Hjalteyri

🧒👧 11:00–16:00 – Lyftingaskóli
Leikur, jafnvægi og hreyfifærni með foreldrum

🔓 11:00–17:00 – Open Gym
Þrautabrautir, drop-in og fjölskylduvænt andrúmsloft.

Aðgangur 1000kr fyrir barn, frítt fyrir foreldra.

Photos from KFA's post 22/08/2026

Um helgina fór tónlistar- og menningarhátíðin Kveldúlfur fram í annað sinn á Hjalteyri.

Dagskráin stóð yfir allan daginn með opnum vinnustofum, lyftingamóti og sýningum, áður en tónlistin tók við frá klukkan 15.30 til 03.30.

Kveldúlfur er sú árlega stund þegar Hjalteyri tekur hamskiptum. Verksmiðjan vaknar, ljósin verða taugakerfi hennar, tónlistin röddin og þátttakendur blóðrásin.

Með sameiginlegu átaki listafólks, starfsfólks, sjálfboðaliða, styrktaraðila og heimamanna tókst að vekja þessa veru til lífs. Við þökkum öllum sem lögðu hönd á plóg og tóku þátt í úlfaveislunni með okkur.

Nú tekur vetrardagskráin við. Við breytum opnunartímanum og setjum námskeið og æfingar af krafti í gang — ásamt karókíi, karate, kraftlyftingum, klifri, kajak, kaupfélagi, kaffi og kakói.

Hér er myndræn frásögn Daníels Starrasonar frá Kveldúlfi. 🐺

18/08/2026

Vegna óviðráðanlegra aðstæðna verður enginn opnunartími eða þjálfun í dag, þriðjudaginn 18. Ágúst, hjá okkur. Iðkendur komast inn með aðgangskorti.

Photos from KFA's post 16/08/2026

Takk fyrir komuna, og takk fyrir samveruna.

Lengi lifi Kveldúlfur!

10/08/2026

Við opnum aðeins seinna en venjulega í dag.

Þjónustutími hjá okkur á Hjalteyri er frá kl. 15:30–22:00 í dag.

Komdu, veldu þér áskorun og finndu út hvað býr í þér.

Allir velkomnir.

Want your business to be the top-listed Beauty Salon in Hjalteyri?
Click here to claim your Sponsored Listing.

Category

Address

Hjalteyri