Heilsueflandi samfélag í Hrunamannahreppi
Heilsueflandi samfélagið Hrunamannahreppur
Nú á laugardagsmorgunin í íþróttahúsinu á Laugarvatni.
Fyrir allar uppsveitirnar
Verið velkomin
15/06/2023
Í næstu viku er frisbígolf námskeið á Flúðum, 20. júní frá kl. 13 og vikuna þar á eftir er spennandi Landart/graffiti námskeið. Það er mikilvægt að við skráum okkur fyrirfram sérstaklega vegna þess að þessir leiðbeinendur kosta sitt og námskeiðin verða felld niður ef ekki er komin næg þátttaka 2-3 dögum fyrir námskeið.
Að lokum má nefna söng- og leiklistarnámskeiðið Leik og sprell sem verður 10.-14. júlí.
Upplýsingar og skráningar: https://www.sportabler.com/shop/heilsueflandiuppsveitir/hrunamannahreppur
Fjölmennum og nýtum tækifærið :-)
13/04/2023
09/01/2023
Frístundastyrkir og Sportabler
Nú er Heilsueflandi Uppsveitir komin með eigin Sportabler síðu fyrir uppsveitirnar, það er fyrir Bláskógabyggð, Hrunamannahrepp og Skeiða- og Gnúpverjahrepp.
Frístundastyrkir sveitarfélaganna verða nær eingöngu borgaðir í gegnum þetta kerfi. Aðeins í einstaka tillfellum verður borgað gegn kvittunum þar sem foreldrar kaupa styrkhæf námskeið sem er utan okkar svæðis og það félag/fyrirtæki er ekki tengt inní okkar Sportabler kerfi. Athugið að nota má frístundastyrkinn þegar námskeið eru keypt hjá Tónlistarskóla Árnesinga eða öðrum félögum á Selfossi. Hvað er styrkhæft námskeið fer eftir skilgreiningu/reglugerð hvers sveitarfélags.
Það er í boði að ef einhver er að versla námskeið í Sportabler og frístundastyrkur þín sveitarfélags kemur ekki fram við val á greiðslumáta þá má hafa samband við skrifstofu síns sveitarfélags og fá bætt við því félagi eða fyrirtæki sem um ræðir.
Hér er hlekkur á sameiginlega vefverslun fyrir allar uppsveitirnar og ofarlega og fyrir miðju á síðunni má velja sérhvert félag. Hingað til hefur það oftast verið vanin að gjaldkerar félganna hafa undir lok annar sendt út greiðsluseðla en með þessu kerfi þá setur félagið upp námskeiðin í sinni vefverslun og foreldrar/forráðamenn fara þar inn og kaupa námskeiðið. Athugið að ekki öll félög eru búin að skrá sín námskeið inn í Sportabler: https://www.sportabler.com/shop/heilsueflandiuppsveitir
Markmiðið með því að innleiða Sportabler í uppsveitunum er meðal annars til að allt framboð á íþrótta- og tómstundasviði sé meira sýnilegt og gera það auðveldara að sækja námskeið þvert yfir hreppamörkin. Eins er það vegna þess að nú innleiða öll sveitarfélögin rafræna notkun á frístundastyrkum, þar að segja þegar foreldrar/forráðamenn kaupa námskeið í Sportabler fyrir börnin sín þá er hægt að nota frístundastyrkinn til að greiða með.
Vantar þig leiðbeininar um að komast af stað með að nota Sportabler? Sjá hér: https://www.facebook.com/permalink.php?story_fbid=pfbid0qf4z9sLqEqBmGu1XRKvxysqJAiKjvEetg3R7yo9zHLTPnwTEtiyKGLbonmTsdT2Hl&id=100040185264531
04/01/2023
Einstakt tækifæri í okkar nærsamfélagi. Næsta laugardag, 7. janúar. Þema síðastliðins árs hjá Heilsueflandi Uppsveitum hefur meðal annars verið geðrækt og félagsleg virkni og passar þetta námskeið vel inní þær áherslur.
Hægt er að nota frístundastyrk fyrir þetta námskeið, það á við íbúa Skeiða- og Gnúpverjahrepps, Hrunamannahrepps og Bláskógabyggðar.
Nánari upplýsingar má finna hér: https://glediskruddan.is/product/glediskruddunamskeid-foreldrafyrirlestur-7-9-ara-7-8-januar-2023-blaskogabyggd/
14/12/2022
02/12/2022
Sportabler í uppsveitunum:
Nú eru sveitarfélögin Bláskógabyggð, Hrunamannahreppur og Skeiða- og Gnúpverjahreppur að innleiða Sportabler kerfið fyrir íþrótta- og tómstundastarfsemi íbúanna. Íþróttafélögin hafa fengið sinn aðgang og stjórnarmenn félaganna hafa fengið námskeið um hvernig þau geti notað kerfið.
Eina sem vantar ennþá er að frístundastyrkirnir eru ekki að koma þarna inn fyrr en um áramótin. Til þess að fá tómstundastyrkinn þá þarf fólk ennþá að senda kvittanir inn til skrifstofu sveitarfélaganna. Og skorum við á foreldra að gera það fyrir áramótin.
Það er von okkar að með þessu kerfi verði auðveldara fyrir foreldra og iðkendur að fá yfirsýn yfir hvað er í boði í uppsveitunum í íþrótta- og tómstundastarfi. Með því að fara inná þennan hlekk mun vera hægt að sjá hvað er í boði í uppsveitunum: https://www.sportabler.com/shop/heilsueflandiuppsveitir
Nú þegar er Ungmennafélag Biskupstungna komið inn með sín námskeið/íþróttagreinar og önnur félög byrja vonandi sem fyrst að koma með námskeið þarna inn.
Leiðbeiningar fyrir notendur:
Ferlið byrjar á því að fara inná rétta vefverslun félags: sjá neðst. Það er vegna þess að félagið og íþróttagreinin kemur ekki fram í appinu í snjallsímanum fyrr en það er búið að fara inná netverslunina í gegnum vafra. Það má gera annað hvort í tölvu og síma. Í vafranum er farið inn í netversluninna fyrir rétt félag og kaupa þar námskeið/þjónusta og um leið er iðkandi skráður inn. Þá fyrst er hægt að fara í snjallsímann, sækja Sportabler appið og opna það. Þegar búið er að skrá sig inn þar þá kemur félagið upp í appinu.
Netverslanir félaganna:
Ungmennafélag Biskupstungna: https://www.sportabler.com/shop/heilsueflandiuppsveitir/umfbiskupstungna
ÍBU: https://www.sportabler.com/shop/heilsueflandiuppsveitir/ithrottafelaguppsveita
Ungmennafélag Gnúpverja: https://www.sportabler.com/shop/heilsueflandiuppsveitir/umfgnupverja
Ungmennafélag Hrunamanna: https://www.sportabler.com/shop/heilsueflandiuppsveitir/umfhrunamanna
Ungmennafélag Laugdæla: https://www.sportabler.com/shop/heilsueflandiuppsveitir/umflaugdaela
Ungmennafélag Skeiðamanna: https://www.sportabler.com/shop/heilsueflandiuppsveitir/umfskeidamanna
Click here to claim your Sponsored Listing.
Category
Contact the business
Website
Address
Hruni
845