Aqua Jóga
Slökun, jóga og heilun í vatni 💦 Usui/Holy Fire® III Reiki meistari og I AM Yoga Nidra kennari 🙏
07/08/2026
🤎 Seremóníal kakó og slökun í vatni eftir einstakan sólmyrkva
Eftir að hafa orðið vitni að einu stórbrotnasta undri náttúrunnar bjóðum við þér að ljúka kvöldinu með bolla af 100% hreinu seremóníal kakói og djúpri slökun í hlýju vatni.
Seremóníal kakó er ekki aðeins ljúffengur og næringarríkur drykkur heldur er hann einnig þekktur fyrir að styðja við slökun, núvitund og vellíðan. Það inniheldur meðal annars magnesíum, andoxunarefni og náttúruleg efni sem geta stuðlað að aukinni ró, jákvæðri líðan og mýkt í líkama og huga.
Margir upplifa að kakóið:
✨ Hjálpi þeim að róa hugann og vera meira í núinu.
✨ Auki tengingu við eigin tilfinningar og innsæi.
✨ Veiti hlýja og notalega vellíðan í líkamanum.
✨ Styðji við slökun og opnun hjartans.
✨ Skapi mjúka og nærandi orku.
Þótt sólmyrkvinn verði liðinn hjá þegar við mætum í vatnið getur tilfinningin enn setið eftir – kyrrðin, lotningin og undrunin yfir stórkostlegum atburði náttúrunnar.
Þegar hlýjan frá kakóinu mætir þyngdarleysi vatnsins skapast einstakt rými fyrir hvíld, kyrrð og endurnæringu. Við gefum okkur tíma til að anda djúpt, horfa upp í kvöldhimininn og leyfa líkama og sál að njóta augnabliksins.
🤎 Leyfðu kakóinu að ylja þér að innan, vatninu að bera þig í djúpa slökun og töfrum náttúrunnar að fylgja þér inn í kyrrð kvöldsins.
✨🕯️🌊🤎
05/08/2026
Hæææ, muniði eftir mér? Ég er á landinu og er með nokkra tíma eftir aaansi langt hlé í húsakynnum Yoga & Heilsa. Fullkomin leið til að róa kerfið og tengja inn á við eftir orkumikið sumar.
Fös 7/8, kl. 17:30-18:40 - Kakó nidra - djúpslökun og tónheilun
Sun 9/8, kl. 17:00-18:40 - KakóRó - hljóðbað og djúpslökun
Fim 13/8 kl. 20:00-21:10 - Kakó nidra - djúpslökun og tónheilun
Nauðsynlegt er að bóka sig fyrir fram en allar upplýsingar má sjá í hlekk í athugasemdum. Ég vonast til að sjá þig ❤
04/08/2026
🙏🏻
Heilsudagar í íþróttamiðstöðinni á Fjölskyldudagar Sveitarfélagsins Voga
Miðvikudaginn 12. ágúst kl. 21:00 verður Aqua Jóga með flot í sundlauginni. Laugin verður lokuð fyrir almenning til að tryggja næði og góða upplifun.
Vonumst til að sem flestir nýti tækifærið og mæti í þennan einstaka viðburð sem haldinn er í tilefni Almyrkvans 🌜🌑🌛🌙
Vinsamlegast hafið samband við Aqua Jóga til að skrá ykkur (sendi skilaboð á FB síðu þeirra) og endilega tryggið ykkur skráningu sem fyrst, plássin eru fljót að fara 😃
03/08/2026
01/08/2026
😎
🌘🌑🌒 Almyrkvi á sólu 12. ágúst 2026
Einn merkilegasti náttúruatburður síðari ára verður þegar almyrkvi verður sýnilegur yfir Íslandi miðvikudaginn 12. ágúst 2026.
Þetta verður í fyrsta sinn frá árinu 1433 sem almyrkvi sést á Íslandi. Næsti almyrkvi sem verður sýnilegur hér á landi verður ekki fyrr en 26. maí 2245.
Almyrkvaslóðin nær yfir allan Reykjanesskaga sem gerir svæðið að einum besta stað landsins til að upplifa þennan einstaka atburð.
Gert er ráð fyrir að mikill fjöldi fólks komi á Reykjanesið til að upplifa almyrkvann og er undirbúningur vegna atburðarins hafinn hjá Sveitarfélaginu Vogum og viðbragðsaðilum á svæðinu.
💫 Hvenær sést almyrkvinn í Sveitarfélaginu Vogum?
Hér í Vogum stendur almyrkvinn yfir í um 1 mínútu og 32 sekúndur. Lengd deildarmyrkva verður 2 klst og 37 sekúndur.
🔸Deildarmyrkvi hefst kl. 16:47:17
🔸Almyrkvi hefst kl. 17:48:11
🔸Almyrkvi í hámarki kl. 17:48:57
🔸Almyrkva lýkur kl. 17:49:43
🔸Deildarmyrkva lýkur kl. 18:47:54
😎 Örugg augu
Gríðarlega mikilvægt er að nota öryggisvottuð sólmyrkvagleraugu þegar horft er á almyrkva. Þannig er hægt að koma í veg fyrir augnskaða, sem í verstu tilfellum getur verið varanlegur.
Sveitarfélagið Vogar gaf öllum nemendum Stóru-Vogaskóla sólmyrkvagleraugu við skólaslit í júní sl. en hægt er að kaupa gleraugu af Ungmennafélaginu Þrótti í Íþróttamiðstöðinni Vogum að Hafnargötu 17 og kosta þau 500 kr.
Helstu upplýsingar um almyrkvann og þann undirbúning sem mun fara fram hjá Sveitarfélaginu Vogum er hægt að skoða hér á tenglinum fyrir neðan, sem er einnig að finna á forsíðu vogar.is
https://www.vogar.is/is/mannlif/mannlif/almyrkvi-solu-12-agust-2026
Ath. Upplýsingasíðan verður uppfærð reglulega fram að atburði og eru íbúar hvattir til að fylgjast með uppfærslum.
01/08/2026
✨💛✨
🌞
01/08/2026
Claim: 'I allow the love from my heart to wash through me and cleanse and heal every part of my body and emotions.' 🩷
Click here to claim your Sponsored Listing.
04/08/2026