Improvement heilunarsetur

Improvement heilunarsetur

Share

Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Improvement heilunarsetur, Massage Therapist, Grafarvogur, Reykjavík.

Photos from Improvement heilunarsetur's post 25/09/2026

Ertu að glíma við taugaverki, langvinna verki, doða, stífleika eða skerta hreyfigetu?
Finnur þú að líkamleg vanlíðan sé farin að hafa áhrif á svefn, orku eða getu þína til að takast á við daglegt líf?

Neuro Flow Therapy er heildræn og einstaklingsmiðuð líkamsmeðferð sem vinnur með samspil líkamans og taugakerfisins. Með markvissri líkamsvinnu er leitast við að losa um spennu og hömlur, styðja við flæði og hreyfanleika og skapa líkamanum betri skilyrði til að finna jafnvægi.

Neuro Flow getur hentað þér ef þú finnur fyrir:

- Taugaverkjum eða doða
- Langvinnum verkjum og spennu
- Stífleika eða skertri hreyfigetu
- Álagi eða ójafnvægi í líkamanum
- Skertri starfsgetu vegna líkamlegrar vanlíðanar
- Þörf fyrir meiri mýkt, létti og vellíðan

Bókaðu tíma í Neuro Flow Therapy hjá Óskari: [email protected]

23/09/2026

Breytingar til hins betra byrja hjá okkur sjálfum 💜

Ferðalag mitt í sjálfsvinnu hófst fyrir alvöru þegar ég var 17 ára og missti bróður minn. Missirinn vakti upp stórar spurningar um lífið, hamingjuna, öryggið og tilganginn. Þessar spurningar hafa fylgt mér síðan, einhver svör hafa ratað á yfirborðið eftir því sem ég hef þroskast en annað er enn ósvarað.

Lífið sjálft hefur verið minn stærsti kennari 🤓

Í gegnum sorg og gleði, ást, móðurhlutverkið, sambönd, starfsframa, ótta, áskoranir, niðurbrot og enduruppbyggingu hef ég aftur og aftur verið leidd að sama stað:

Leiðin snýst um að muna hver við raunverulega erum ✨️

Fyrir mér er heilun umbreyting. Hreyfing. Orkuskipti. Orkubreyting.

Við getum staðnað eða upplifað okkur föst þegar hugsanir okkar, hegðun eða lífsmáti eru ekki lengur í samræmi við hver við erum í raun. Heilun hefst þegar við tengjumst aftur sjálfum okkur, líkamanum, sannleikanum okkar, kærleikanum og uppsprettunni.

Í gegnum árin hef ég sótt mér fjölbreytta þekkingu og reynslu sem styður þessa sýn. Ég er KAP leiðbeinandi og Engla Reiki meistari, hef lokið Vehoma leiðtogaþjálfun sem byggir á visku indjána, stundað shamanískt nám hjá Otter Dance Earth Medicine og nýti tarotlestur sem verkfæri til innsýnar og ígrundunar. Náttúran og dýrin eru einnig dyggir stuðningsaðilar í heilun 💚

Í starfi mínu fléttast þessi reynsla saman við markþjálfun, persónulega leiðtogafærni, orkuvinnu og mína eigin innsæisvinnu. Ég vinn út frá reynslu, innsæi og innri visku og læt þarfir einstaklingsins leiða ferðina.

Mitt hlutverk er að skapa öruggt og kærleiksríkt rými þar sem þú getur fundið fyrir því að þú sem manneskja ert heyrð og séð. Þú færð tækifæri til að sjá betur þinn eigin styrk, fegurð og kjarna.

Ég er sjálf enn að læra.
Enn að umbreytast.
Enn að muna.

Og það er frá þeim stað sem ég held rými fyrir þig á þínu ferðalagi 🤍

Nánari upplýsingar í skilaboðum eða [email protected]

Maríanna Magnúsdóttir

12/09/2026

Staldraðu við.
Hvernig er öndunin?
Hvernig hljóma hugsanirnar?
Hvernig líður hjartanu?
Hvernig er orkustigið?
Hvernig líður líkamanum?
Hvað er lifandi innra með þér akkúrat núna?

Veldu amk eina af þessum spurningum til að svara daglega og kannaðu hvort þú sjáir mynstur í þínum núverandi lífsins takti.

Vertu meðvitaðri um þinn lífsins takt.
Hvað er gott?
Hvað má bæta?
Hverju má hætta/sleppa?

Sköpum okkar lífsins takt og upplifum frið 🤍

05/09/2026

Tökum vel á móti þér í KAP fimmtudaginn 10.september kl 19:30-21:00 💜
Verðum í nærandi umhverfi Samkennd Heilsusetur
Tunguhálsi 19, 110 Reykjavík, 2.hæð
Hámark 12 manns. Orkuskipti 7000kr
Skráning á [email protected] eða skilaboðum 💌

KAP stendur fyrir Kundalini Activation Process, að virkja líforkuna okkar.
Þú liggur á dýnu, það er spiluð taktföst tónlist á meðan leiðbeinandinn fer a milli aðila að hjálpa kundalini orkunni að flæða þangað sem hennar er þörf. Leiðbeinandinn vinnur með orkulíkamann sem er umhverfis okkur ásamt léttri snertingu á líkamann til að opna fyrir flæði og heilun.

Þú getur búist við djúpri slökun, tilfinningalosun, séð sýnir og liti, heimsótt minningar, upplifað hita/kulda, fundið fyrir náladofa eða straumum, fundið þörf fyrir að hreyfa þig, hristast o.fl.

Ávinningurinn er betri svefngæði, ró í taugakerfið, finna fyrir lífskraftinum okkar og losa okkur við það sem ekki þjónar okkur lengur ✨️

Hlökkum til að taka á móti þér 💜
Kærleikskveðja
Maríanna & Óskar

Improvement heilunarsetur 19/08/2026

💜 GJAFALEIKUR 💜
Okkur langar að fagna samfélaginu sem er að myndast í kringum Improvement heilunarsetur og gefa tveimur heppnum fylgjendum meðferð að eigin vali úr þjónustuúrvali okkar.*
• Neuro Flow Therapy
• Flowmassage
• Heildræn heilsumarkþjálfun
• Heilun
• Tarot lestur
• Kombó tími
• KAP

Til að taka þátt:
🤍 Fylgdu Improvement heilunarsetri á Instagram og/eða Facebook.
🤍 Líkaðu við þessa færslu.
🤍 Skrifaðu FLÆÐI í athugasemd (til að bjóða flæði af vellíðan inn í líf þitt!)

Þú mátt gjarnan merkja manneskju sem þú vilt bjóða með í samfélagið okkar og deila áfram að vild!

Gjafaleiknum lýkur miðvikudaginn 26.ágúst kl. 23:59 og dregið verður úr gildum þátttakendum fimmtudaginn 27.ágúst.

Við hlökkum til að gleðja tvær manneskjur úr samfélaginu okkar. 🤍

Maríanna & Óskar

---------
* Vinningshafar fá meðferð að eigin vali úr þjónustuúrvali Improvement Heilunarseturs sem eru í boði þegar vinningurinn er nýttur og hvað hentar viðkomandi. Vinningurinn gildir í þrjá mánuði, fæst ekki greiddur út í peningum. Þátttakendur þurfa að vera 18 ára eða eldri. Haft verður samband við vinningshafa frá opinberum reikningi Improvement heilunarseturs. Við biðjum aldrei um greiðslu- eða kortaupplýsingar vegna vinninga.

Improvement heilunarsetur

16/08/2026

Óskar býr yfir 16 ára reynslu af einstaklingsmiðaðri meðferðarvinnu, yfir 20.000 meðferðarstundum og hefur unnið með þúsundum skjólstæðinga. Hann er höfundur nuddaðferðarinnar Flowmassage, sem hefur þróast í Neuro Flow Therapy – heildræna líkamsmeðferð sem byggir á djúpri líkamsvitund, næmni og markvissri vinnu með líkama og taugakerfi.

Leið Óskars inn í meðferðarstarfið hófst eftir alvarleg meiðsli árið 2009. Árin á undan hafði hann átt farsælan feril í aflraunum og verið sterkasti maður Íslands fjögur ár í röð, frá 2005–2008. Þegar engar skýrar lausnir fundust við meiðslunum og hann hafði ekki tök á að sækja reglulega meðferð hóf hann að vinna sjálfur með líkama sinn. Sú leit varð upphafið að djúpu bata- og þroskaferli og Flowmassage-aðferðinni, sem hann hefur þróað áfram með námi, sjálfsvinnu og áralangri reynslu.

Með auknum skilningi á samspili líkamans, hugsana, tilfinninga og taugakerfisins þróaðist Flowmassage yfir í Neuro Flow Therapy. Í stað þess að vinna eingöngu með vöðva og mjúkvefi leggur Óskar áherslu á að styðja við flæði, hreyfanleika og jafnvægi taugakerfisins. Þegar klemman losnar og flæði kemst á taugina, minnkar heildrænn þrýstingur í taugakerfinu sem skapar jafnvægi og vellíðan.

Í gegnum eigið bataferli öðlaðist Óskar nýjan skilning á styrk: Styrkur er ekki kraftur heldur getan til að jafnvægisstilla kraft. Vendipunkturinn varð þegar hann áttaði sig á áhrifum hugsana og tilfinninga á líðan og skildi að líkamlegur, huglægur og tilfinningalegur styrkur eru samverkandi þættir.

Til Óskars leitar meðal annars fólk sem glímir við taugaverki, langvinna verki, skerta hreyfigetu eða skerta starfsfærni.

Skjólstæðingar Óskars finna ekki aðeins fyrir styrk hans heldur einnig einstakri næmni og nærveru. Hann hlustar af athygli, leggur sig allan fram við að skilja aðstæður hvers einstaklings og skapar öruggt og traustvekjandi rými. Meðferðir hans eru hjartfólgnar og byggja á einlægum vilja til að hjálpa fólki að sækja sér bata, öðlast dýpri skilning á eigin heilsu og styrkja tengslin við sjálft sig.

Nánari upplýsingar og tímabókanir [email protected] 💌

10/08/2026

Tökum vel á móti þér í KAP í haust 💜
Verðum í nærandi umhverfi Samkennd Heilsusetur
Tunguhálsi 19, 110 Reykjavík, 2.hæð
Hámark 12 manns. Orkuskipti 7000kr
Skráning á [email protected] eða skilaboðum 💌

KAP stendur fyrir Kundalini Activation Process, að virkja líforkuna okkar.
Þú liggur á dýnu, það er spiluð taktföst tónlist á meðan leiðbeinandinn fer a milli aðila að hjálpa kundalini orkunni að flæða þangað sem hennar er þörf. Leiðbeinandinn vinnur með orkulíkamann sem er umhverfis okkur ásamt léttri snertingu á líkamann til að opna fyrir flæði og heilun.

Þú getur búist við djúpri slökun, tilfinningalosun, séð sýnir og liti, heimsótt minningar, upplifað hita/kulda, fundið fyrir náladofa eða straumum, fundið þörf fyrir að hreyfa þig, hristast o.fl.

Ávinningurinn er betri svefngæði, ró í taugakerfið, finna fyrir lífskraftinum okkar og losa okkur við það sem ekki þjónar okkur lengur ✨️

Hlökkum til að taka á móti þér 💜
Kærleikskveðja
Maríanna & Óskar

06/08/2026

Íbúar á Austurlandi taka alltaf jafn vel á móti Óskari í sínum reglulegu vitjunum þangað - miklar þakkir fyrir kærleiksríkar móttökur 💜

Nú þegar er fullbókað hjá honum í september en hvetjum ykkur að hafa samband við hann svo að þið getið verið á biðlista ef einhver tími losnar og/eða til að fá upplýsingar um næstu ferðir hans á Austurlandið ✨️

Nánari upplýsingar veitir Óskar [email protected]

15/07/2026

Kombó tímar eru vinsælir tímar hjá Improvement heilunarsetri 🪻

✨️ Orkukombó (markþjálfun & Engla Reiki heilun)
✨️ Tarotkombó (tarot lestur & Engla Reiki heilun)
✨️ Cacaokombó (Cacao & markþjálfun)
✨️ Kombótími (þar sem við mætum þér með því sem þú þarft þann daginn)

Tímarnir eru 90 mín og orkuskipti 25.000kr ..einnig velkomið að setja saman þinn eigin kombótíma 💜

Býð upp á að koma í Grafarvoginn eða mæla okkur mót rafrænt 😇

💌 Fyrirspurnir og bókanir hjá Maríönnu [email protected]

📸

12/07/2026

Improvement heilunarsetur býður upp á fjölbreyttar meðferðir fyrir heildræna vellíðan í öruggu og hlýlegu rými fyrir huga, líkama og sál.

Virðing, fagmennska og kærleikur eru sálin í Improvement heilunarsetri og endurspeglast í einstakri þjónustu og starfsfólki okkar.

Verið hjartanlega velkomin 💜

📸

Want your business to be the top-listed Beauty Salon in Reykjavík?
Click here to claim your Sponsored Listing.

Address

Grafarvogur
Reykjavík
112