Glimmerkisa

Glimmerkisa

Share

Personal Style Blog Bleikur, glimmer, varalitir, jólin, hælar, vintage, kökur, flauel
Pink, glitter, lipsticks, christmas, heels, vintage, cakes, velvet

Photos from Glimmerkisa's post 18/04/2021

Góðan sunnudaginn!

Ég tók mér smá pásu, bara svona til að hafa gaman og gera eitthvað annað í smá tíma - njóta þess að taka pásu án þess að verða pirruð við sjálfa mig yfir því að ég skrifi ekki alla sunnudaga. En það er nú einmitt málið, ég vil gefa mér hvíld inn á milli án nokkurs samviskubits og koma svo aftur sterk til leiks í staðinn fyrir að gera ekkert svo vikum, mánuðum eða jafnvel árum skiptir. Ég er alltaf að læra betur á það að fara heilbrigða leið að því að standa við skuldbindingar sem ég hef tekið að mér frá sjálfri mér. Svo ég var mjög sátt við það að taka tvo sunnudaga í frí og gera eitthvað annað. Og hér er ég komin aftur, voða hress og kát😄

Þennan sunnudaginn þá langaði mig að tala um stíl. Ég hef ekki lengi talað um föt eitthvað sérstaklega og þá aðallega vegna þess að ég var voðalega týnd þegar kom að stíl og því að klæða mig upp. En svo var eins og einn daginn að ég fékk nóg af því að fara ekki í falleg föt og vera fín. Ég hafði þyngst og var ósátt við það og vildi fela mig. Ég gekk í íþróttapeysum og strigaskóm með hárið í tagli og málaði mig bara stundum.

Og áður en ég held áfram með þetta, þá ætla ég bara að koma eftirfarandi á framfæri. Ég veit að það er viðkvæmt mál fyrir marga að tala um "það sem konur eiga að gera" hvað varðar útlit og þetta snýst ekki um það, ég held að ég þurfi hreinlega að setjast niður og annaðhvort skrifa lengstu grein í heimi eða hreinlega taka upp vídeó þar sem ég tala um stíl og útlit og samfélagslegar pressur þegar kemur að þessum hlutum. Ég hef hugsað mikið um þessa hluti síðsata árið, hlustað á og lesið um þetta efni frá fólki sem mér þykir hafa margt gott til málanna að leggja, rætt þetta við fólk í mínu lífi og hugsað um það sem ég sé í kringum mig í mínu daglega lífi í samhengi við það sem ég hef lært í lífinu. Og þetta málefni virðist oft skapa miklar og heitar umræður. Svo ég ætla að bíða með það að kafa mjög djúpt í þetta núna og bara aðeins nefna þetta á léttu nótunum.

En fyrir ekki það löngu síðan þá fór ég að finna fyrir djúpri löngun eftir því að leyfa mér að njóta þess að klæða mig upp aftur. Þegar ég var yngri þá var ég alltaf að spá í fötum og stíl og ég man eftir að horfa á eldri stelpur eða konur inni Akureyri sem mér fannst vera flott klæddar og ég var svo heilluð af þeim. Það var eitthvað við þær. Ekki bara fötin sem þær voru í heldur líka hvernig þær báru sig. Ég er nokkuð viss um að það sem ég sá var líka öryggið sem fylgir því að líða vel í eigin skinni og í sátt við útlit og stíl. Ég fór snemma að kaupa tímarit eins og Cosmopolitan því þar var bæði haugur af upplýsingum um förðun og föt og þegar ég komst upp á lagið með að fara ein í búðir án þess að þurfa að hafa einhvern eins og mömmu eða vinkonu með mér til að hjálpa mér að velja, þá opnaðist fyrir mér alveg nýr heimur. En svona síðustu árin þá var eins og þetta hyrfi pínu - ég var oft að kaupa mér föt en þau voru meira til þess fallin að fela eða elta tískuna sem hefur ekki verið kvenfólki með mitt vaxtarlag neitt sérlega hliðholl í langan tíma. Það varð auðveldara að klæða sig í oversized hettupeysu og leggings heldur en að eltast við að reyna að finna föt sem pössuðu mér vel og þá sérstaklega eftir að ég þyngdist. En bæði samhliða því að hugsa öðruvísi um sjálfa mig og svo hreinlega því að það er alltaf að verða auðveldara að finna falleg föt því tískan er alltaf að verða opnari og opnari, allt er í tísku eiginlega og þá verður mun einfaldara að finna fatnað sem passar allskonar fólki og stærðum, að þá hef ég verið að opna aftur fyrir að leyfa mér að njóta þess að klæða mig. Njóta þess í botn að eiga falleg föt og vera vel klædd bara heima við, þó enginn annar sjái mig en ég. Þegar ég þarf að gera mér ferð í matvöruverslun, nú eða til að skoða föt og þefa af ilmvötnum (starfsfólkið í Hagkaup á Akureyri heldur sennilega að ég sé biluð), þá er ég farin að gera meira úr því en bara henda mér í einhver föt og greiða í gegnum hárið og láta það duga. Ég vel orðið fatnað sem hæfir því að fara í matarboð eða út að borða þegar ég fer að versla í matinn, og mér finnst það dásamlegt. Margir hugsa sennilega að ég sé allt of fín fyrir slíkt, en ég segi bara lífið er of stutt til þess að láta fallegan fatnað hanga inni í skáp þar til "rétta tækifærið" kemur. Rétta tækifærið er núna. Þegar ég ætla að versla í matinn eða þegar ég kíki í heimsókn til vinkonu minnar eða frænku og frænda. Ekkert bara þegar ég er að fara út að skemmta mér. Það er einhver orka í því að horfa í spegilinn og hugsa "já, ég elska þetta outfit og mér finnst ég vera svo fín" og fara svo í gegnum daginn með þessa tilfinningu í farteskinu. Að velja besta brokkolíið í Bónus í hælum, eða taka bensín í loðfeld. Það er svo mikill lúxus sem felst í að gera þetta. Mér fannst ég pínu kjánaleg fyrst þegar ég fór að klæða mig upp fyrir venjulegar bæjarferðir og fannst allir vera að glápa á mig og hugsa um hvað ég liti kjánalega út, en málið er að a) það eru fáir að spá svona mikið í mér þó mér finnist eins og allir séu að stara á mig og b) ef svo ólíklega vildi til að fólk væri eitthvað sérstalega að spá í mér að þá vil ég bara læra að vera alveg sama hvað öðrum finnst. Sem verður alltaf auðveldara og auðveldara, sama hvaða svið lífsins ég er að tala um. Og því hef ég verið að skella mér í fínni hluti bara á bláköldum þriðjudegi, föt og skó sem ég hafði áður bara látið eiga sig inni í skáp þar til tilefnið var nógu "gott". En ekki lengur, núna er það bara að klæða sig upp og hafa gaman, mitt í covid og veseni. Þegar lífið kemst aftur á sinn stað þá fer ég sennilega að mæta í ballkjólum út að borða, svona miðað við hvað ég er orðin sjóuð í að vera fín í Bónus og Nettó.

Ég ætla að láta nokkrar myndir fljóta með af mér í pilsi sem ég hefði einmitt ekki snert á nema við fínni tækifæri hérna áður fyrr en er bara svona svaka fínt við fallega peysu og öklaskó. Kannski það kveiki á hugmyndafluginu hjá ykkur með flíkur sem þig eigið hangandi inni í skáp og eru að bíða eftir því að vera notaðar. Ég endurtek, lífið er of stutt til þess að bíða eftir "réttu" tækifærunum

Photos from Glimmerkisa's post 28/03/2021

Góðan sunnudaginn 😃

Þessa vikuna langaði mig að tala aðeins um naglalökkin sem ég nota mikið þessa dagana - þau eru öll voðalega sumarleg og sæt og passa vel við bjartari daga 💅 Ég hef sett alla dökkrauðu, svörtu, djúpu litina til hliðar og geymi þá að mestu þar til næsta haust. Ég hef allaf gert þetta, litasmekkurinn breytist á milli árstíða hjá mér og þegar vorar þá færi ég mig ævinlega yfir í léttari liti. Hér eru þrjú uppáhalds í augnablikinu!

Pink Diamond - Essie
Þessi er ljósbleikur með perluáferð og er svo mikið vor og sumar að ég snerti hann varla eftir sumarið og yfir veturinn. Ég veit að það er komið vor í mig þegar ég fer að setja hann á enda þá er fátt meira vor en ljósbleikt með smá shimmeri, ekki satt? 😅 Ég veit að það eru ekki allir hrifnir af bleikum og hvað þá ljósbleikum með perluáferð, en það er eitthvað svo fallegt og klassí við hann. Mér þykja hendurnar á mér alltaf svo glæsilegar þegar ég set hann á mig því hann er ekki mjög áberandi en neglurnar virka mjög vel snyrtar og vel til hafðar. Ég tala nú ekki um að þegar ég er farin að taka smá lit, þá alveg poppar hann og verður jafnvel enn fallegri. Ef þú ert bleik í þér eins og ég, þá mæli ég hiklaust með að skoða Pink Diamond.

Touch up - Essie
Þessi er svona lillafjólublár, en ekki skær eða áberandi, eiginlega svona "dusty light purple" ef ég nota smá ensku til að reyna að útsýra litinn í orðum. Ég bara finn ekkert orð á íslensku sem passar við "dusty" svo við látum þessa lýsingu bara duga. Þessi er einn af þeim sem dugar ekki á haustinn og veturnar þegar mig langar ævinlega að nota dýpri liti en um leið og sólin fer að skína meira, þá er ég fljót að skella honum á mig. Hann er svipaður Pink Diamond að því leytinu að hann er ekki mjög áberandi og gefur meira svona "snyrtilegar neglur" útlit heldur en að vera "ég er með naglalakk!" útlit - ef þessi lýsing hjá mér skilst 😆 Hann er alveg dásamlega léttur og fallegur og hentar svo vel núna - mæli með.

Ginger Lily - H&M
Þetta lakk er svo akkúrat öfugt við hin lökkin en þessi litur er sterkur rauðbleikur - alveg yndislega bjartur og kátur. Hann er kannski aðeins meira sumar en vor, en hey, ég kannski vel stundum liti sem passa alveg við árstíðina en ég er ekki gjörsamlega bundin við það neitt!😅 Þegar ég hugsa um vorið þá sé ég létta og fallega pastelliti og blóm á kirsuberjatrjám og huggulegheit, en þegar ég hugsa um sumarið þá sé ég fyrir mér sterka gula, appelsínugula, bleika, skærgræna og bláa, suðrænir ávextir og sundlaugar. Og Ginger Lily er nákvæmlega þannig á litinn - sumar í flösku. Það sést því miður ekki alveg nógu vel á myndunum að það er svona smá bleik áferð á litnum, hann virkar mest bara rauður en í persónu þá er hann skærrauður með bleikum blæ. Virkilega fallegur og hressir upp á hendurnar á mér þegar ég vil eitthvað með meiri krafti í. Hann er alveg afskaplega glaðlegur og kátur, ég alveg elska þennan!

Þá eru upptalin þau lökk sem ég held mest upp á augnablikinu og vonandi g*t ég gefið ykkur smá innblástur fyrir vorlegar neglur 😘

Njótið dagsins!

21/03/2021

Góðan sunnudaginn!

Í dag langaði mig að tala um te sem ég alveg elska að búa til og drekka. Það eru til margar svipaðar útgáfur af þessu tei á netinu og þá helst undir "turmeric tea" eða "golden milk", og, eins og nafnið gefur til kynna, er te með túrmeriki í. Ég gæti farið út í allskonar umræður um kosti túrmeriks, enda er það mjög vinsælt í augnablikinu og á að geta læknað allt frá frá túrverkjum yfir í krabbamein, félagsfælni og andfýlu (ég er mögulega að ýkja aðeins) en ég ætla ekkert sérstaklega að fara út í það hér. Enda kynnti ég mér málið og komst að því að margt af því sem túrmerik á að geta gert fyrir heilsuna hefur ekki fengið vísindalegar staðfestingar. Kryddið hefur verið notað til læknina, sérstaklega á Indlandi, í langan tíma og ég ætla ekki að gera lítið úr því, en á sama tíma fann ég lítið sem styður stóru orðin um að það geti komið í veg fyrir eða dregið úr alzheimer, krabbameini, bólgum í líkama og svo lengi mætti telja. Enda gerist þetta alltaf þegar efni í náttúrunni eða matur fær allt í einu á sig þennan stimpil um að vera súperfæða. Ég man vel eftir því þegar bláberin áttu að geta gert kraftaverk og fólk rauk út til að kaupa bláber í kílóavís til að yngjast um átján ár á nóinu, nú eða rauðrófusafinn, eða engifer eða.... og svo lengi mætti telja. Ég er ekki að segja að þú græðir ekkert á því að borða þetta allt saman, grunnurinn að góðri heilsu er vissulega fjölbreytt fæða og allir ofantaldir hlutir eru góðir fyrir líkamann en það er ekkert af þessu sem er komið til með að bjarga þér úr klóm alls þess sem miður getur farið. Oft hef ég á tilfinningunni að það sé verið að auglýsa ákveðna hluti til að spila með ótta fólks og græða peninga, sem er eiginlega dapurlegt því flest af því sem fær á sig þennan súperfæðisstimpil er af hinu góða, en býður ekki upp á kraftaverk. Sem verður til þess að fólk borðar ákveðnar fæðutegundir í smá tíma og hættir því svo því það gerist ekkert á stuttum tíma. Betri nálgun er frekar að hafa matarræðið sem fjölbreyttast og halda því við, þá koma langtíma áhrifin til með að sýna sig í betri líðan, heilbrigðari húð, betri svefn osfrv.

Og hvað túrmerik varðar, það sem ég komst að var að engar rannsókir geta staðfest vörn gegn ákveðnum tegundum krabbameins, alzheimer, túrverkjum eða bólgum í líkama. Það er til slatti af rannsóknum sem benda til þess að áhrifin vísi í ákveðna átt, en flestar þær rannsóknir voru ýmist framkvæmdar á dýrum (og þó ýmislegt sé sameiginlegt með okkur og ákveðnum dýrategundum, þá er töluverður munur á því að sjá jákvæða útkomu í prufum á nokkrum rottum og síðan að sjá það sama gerast í mannslíkamanum) eða á mjög fáum einstaklingum og það er ekki nóg til að segja af eða á. Að sama skapi þá er efnasambandið curcumen í túrmerikinu sem skiptir öllu máli. Curcumin er aðal virka efnasambandið í túrmerik og það er úr því sem þessi góða virkni kemur. En hlutfall curcumin er bara 3% af heildinni svo þú þarft að innbyrða mikið magn af túrmeriki til að munurinn verði sjáanlegur. Það hafa síðan verið gerðar rannsóknir sem miðast við að einstaklingarnir innbyrða yfir 1 gramm af curcumin á dag og það er nánast ógerlegt án þess að taka bætiefni sem innihalda hátt hlutfall af curcumin. Þær rannsóknir, sem áttu við áhrif curcumin á líkamann, sýndu áþreifanlegri niðurstöður og þær urðu nóg til þess að curcumin fór að vera selt í töfluformi, (oftast samt kallað túrmerik eitthvað því allir vita hvað túrmerik er og enginn veit hvað curcumin er, auðveldari söluleið að nota túrmerik nafnið).
Hmmmmmm.... Ég verð að viðurkenna að þegar ég sé náttúrulegt efni verða að "súperfæðu" og svo skyndilega vera selt í töfluformi þá verð ég smá tortryggin. Og ég veit að margir verða ekki hrifnir af því þegar ég segi að ég held því ævinlega fram að lyfjafyrirtækin eru þarna til að græða peninga en ekki til að hjálpa. Þetta eru bara grjóthörð viðskipti og lítið annað. Það er kannski einhver hugsjón að baki einhversstaðar, en ég hef sjaldan séð rannsóknir sem ekki eru kostaðar af sömu fyrirtækjunum og svo framleiða vörur í samræmi við það. Það þýðir samt ekki að öll fæðubótarefni séu gagnslaus eða svo gott sem. Alls ekki. En það borgar sig að lesa sér til um hlutina þegar þeir birtast skyndilega á sjónarsviðið eins og skrattinn úr sauðaleggnum. Eða það er í það minnsta það sem ég geri. Þú gerir það sem þú vilt og hunsar gjammið í mér ef þú ert ekki sammála.

En allavega, túrmerik te. Gullna mjólkin. Dregur nafn sitt af þessum fallega gula lit sem túrmerik gefur frá sér. Hvers vegna drekk ég það? Mér finnst það mjög bragðgott. Svo einfalt er það. En ég trúi því líka svo sannarlega að Indverjar viti sínu viti og að það sé ástæða fyrir því að þeir hafi notað túrmerik til lækninga svo lengi sem elstu menn og konur muna. Svo, ég drekk þetta te vegna þess að mér þykir það gott og ég tek fagnandi öllu því góða sem það kann að gera fyrir mig í leiðinni.

Og hér er uppskriftin sem ég notast við: (fyrir tvo).

500 ml. möndlumjólk (má nota venjulega, kókos, eða bara hvaða þá mjólk sem þú kýst eða jafnvel vatn)
1 tsk. túrmerik krydd
1/2 tsk. kanill
smávegis af svörtum pipar
smávegis af fersku engifer, flysjað og rifið niður, eða 1/4 tsk. af engiferdufti
smávegis af cayanne pipar (má sleppa ef þú vilt ekki hafa teið sterkt)
1 tsk. hunang

Blanda öllu saman, nema piparnum, í blandara þar til að áferðin er mjúk (10-20 sekúndur í mínum blandara), hella svo öllu í pott og hita í 3-5 mínútur þar til að teið er heitt í gegn, en ekki láta það sjóða. Hella í bolla, setja piparinn út í og hræra og svo njóta!

Ég margfalda oft uppskriftina og á í ísskápnum í einhverja daga þar sem þetta endist vel í kæli, og hita svo bara þegar mig langar í. Mæli eindregið með ef þú ert temanneskja eins og ég ☕️

Njótið dagsins!

Photos from Glimmerkisa's post 14/03/2021

Góðan sunnudaginn!

Ég var í svo ægilega miklu vorskapi síðasta sunnudag og svo kom bara smá vetur aftur. Haugur af snjór aftur fyrir utan húsið mitt, stór hluti gluggana þaktur af snjó og mjög hvasst og huggulegt. En ég læt það ekkert á mig fá, það á að verða áfram vor á mánudaginn svo ég læt þetta ekkert slá mig út af laginu og held áfram að vera í vorfíling ☘️

Og því fannst mér tilvalið að tala um nokkra ilmi sem mér finnast passa vel þegar það er vor í loftinu. Ég ákvað að velja helst eitthvað sem hægt er að nálgast í snyrtideildinni í Hagkaup þó ég eigi marga aðra sem ég hef keypt að utan eða þegar ég hef ferðast sem eru líka æði núna, en það er erfitt að mæla með einhverju sem fólk getur ekki þefað af áður en það kaupir.
Ef þið þekkið ekki nóturnar eins og þær lykta þegar þær eru stakar, þá er auðvitað alltaf erfitt að lýsa ilmum á "réttan" hátt. Ég er orðin ansi sjóuð eftir mörg, mörg ár af því að nota ilmvötn og svo síðustu árin þá fór ég að sanka að mér olíum til að læra að þekkja hverja nótu fyrir sig og því get ég oft lesið mér til um innhaldsnótur í ilmum og giskað nokkuð vel á hvernig viðkomandi ilmur er að fara að lykta. Ég hef meira að segja dundað mér við að setja saman mína eigin ilmi (nei, þeir eru ekki góðir hjá mér ennþá, ef einhver ætlaði að spyrja 😆) og draumurinn er að verða nógu góð til að búa til mína eigin línu. En það er á langtímaplaninu.

Þrátt fyrir að vera með nokkuð vel æft nef þá er það samt aldrei öruggt þegar ég les um innihaldsefnin. Oft þá geta tveir ilmir verið með nánast alveg sama nótupýramída en svo eru þeir ekkert líkir. Og þar sem ekki allir hafa þennan gríðarlega áhuga á vísindalegu hliðinni á ilmvatnsgerð, þá ætla ég að reyna að lýsa þeim á eins óvísindalegan hátt og hægt er svo þið getið fengið þokkalega hugmynd um hvað er að gerast í hverjum ilm.

Og án þess að eyða meiri tíma í blaður, þá eru þau hér, topp s*x imvötnin fyrir vorið!

Valentina - Valentino
Þessi er voðalega ljúf. Nefið á mér pikkar aðallega upp jasmín og tuberose, sem virkar pínu á mig eins og sæt tyggjó - hljómar kannski spes en í mörgum ilmum með jasmín og tuberose þá finn ég sæta tyggjólykt. Við erum samt ekkert að tala um sykursæta barbiedúllu lykt, langt því frá. Það er truffla og bergamot þarna líka, jarðarber og african orange flower, sem gefur ilminum svona smá ávaxtakikk án þess þó að þetta sé ávaxtailmur. Svo þegar hún "jafnar" sig, þ.e. ilmurinn hefur gefið frá sér toppnóturnar sem koma fram yfirleitt á fyrstu 10 mínútunum, þá finn ég líka smá vanillu og svo viðarlykt, cedar eða sýprus er viðurinn í grunninn og kemur í veg fyrir að hún verði ekkert nema fluff og léttheit. Venjulga þá er eitthvað slíkt notað í grunninn og það er grunnurinn ásamt miðjunótunum sem þú finnur yfirleitt lengst fyrir. Í heildina þá er þessi lykt sæt og ljúf (ekki sykursæt eða ávaxtasæt) og ég sé alltaf fyrir mér að vera í hvítri mjúkri peysu, eða mjúkri peysu í pastellit þegar ég spreyja þessum ilm á mig. Ég þarf kannski að kaupa mér pastellita peysu svo ég geti notað Valentinu almennilega 🤔😁. Endingin er góð, í það minnsta á mér, ég finn enn fyrir henni 6+ tímum eftir að ég set hana á mig. Þetta er ekki ilmur sem æpir neitt, fólk þarf að koma nálægt þér til að finna hana. En það passar líka vel við hana, ljúf og kósý, svífur um með þér á pastelbleiku skýi og er ekki ágeng og hávær. Fullkomin fyrir lengri vorkvöld.

Katy Perri's Indi - Katy Perry
Ég verð að viðurkenna að ég hef aldrei nokkurntíma tekið upp ilm frá Katy Perry fyrr en þegar ég prófaði Indi núna um daginn. Hún stóð eitthvað svo einmanna í neðstu hillunni í einum rekkanum í Hagkaup og ég hef sennilega aldrei horft á hana fyrr en þennan dag þegar ég var að leita að einhverju nýju að prófa. Ég greip flöskuna án þess að hugsa mikið út í það og spreyjaði á mig og samstundis þá var ég bara vá. Þetta er musk ilmur út í eitt og það eru að ég held 5 mismunandi musk tegundir í grunninum. Þegar það blandast saman við toppnóturnar, sem eru plóma, bergamot og hvítt te, þá les nefið á mér heildina eins og sandalvið og orange blossom. Ég veit ekki hvernig, en það er það sem gerist hjá mér. Toppnóturnar eru bergamot, hvítt te og plóma og svo liljur, cyclamen (Maríulykill) og sýprus. Nefið á mér les þessa heild sem mjúka (já það eru margir vorilmir sem ég myndi lýsa sem mjúkum, bara svona til að vara ykkur við), með smá ávöxtum sem minna á orange blossom, þrátt fyrir að ekkert slíkt sé til staðar. Musk getur verið allskonar og alvöru musk er ekki lengur notað í ilmvatsgerð (eða mjög sjaldan og kostar þá líka gríðarlega mikið) sökum ömurlegrar meðferðar á muskdýrunum - karldýrin eru veidd og lítill poki neðarlega á maganum skorinn af og muskefnið tekið út með skeið, og dýrið deyr oftast eftir þetta. Vísindamenn og konur sem sérhæfa sig í ilmefnum eru búin að þróa margar tegundir af gerfi musk síðustu áratugina til að komast til móts við þetta mikilvæga og vinsæla efni í ilmum og margir hverjir eru mjög góðir. Musk getur lyktað allt frá því eins og þvottaefni eða sápa, eða haft keim af slíku og alveg yfir í það sem er flokkað sem "animalic" í ilmum. Animalic er td. ilmir sem lykta eins og heit húð í sól, stundum eins og smá sviti og svo alveg út í það að lykta eins og kynfæri 😮. Nó djók. Þegar þú lyktar af efninu hreinu og óþynntu þá færðu óhefta lykt af slíku en eins ósmekklega og það hljómar, þá getur það haft dásamleg áhrifa á heildarútkomuna ef það er þynnt mikið. Þegar ég segi þynnt mikið þá er ég að tala um að stundum þarf bara 0,01 ml. af slíkum efnum í 100 ml. af tilbúnum ilmi og útkoman er yndisleg. En hvað um það, ég er smávegis komin út fyrir efnið 😄. Indi lyktar á mér eins og heit húð með smá orange blossom keim. Kannski minnir mig örlítið á sólarvarnarlykt. Heit og hrein húð, með smá sólarvörn og orange blossom. Mér þykir hún alveg dásamleg, þægileg og passar þegar veðrið verður aðeins hlýrra. Ég gæti trúað að hún væri líka mjög góð í sumar. En hún er mjög lágstemmd, og ég held ekki að neinn finni lyktina af mér nema viðkomandi standi nokkuð nálægt. En ég sjálf finn hana reglulega yfir daginn og mér er sama þó ég ein fái bara að njóta hennar. Hún er mögulega að verða ein af mínum uppáhalds.

Samsara - Guerlain
Samsara er einn af þungavigtailmunum frá Guerlain. Hún kom út árið 1989 og hefur verið einn best seldi Guerlain ilmurinn síðan þá. Og hún er ekki allra skal ég segja ykkur. Enda þá er ég eiginlega steinhissa á því að mér líki hún því þetta er alls ekki minn stíll. Ég var búin að lesa svo mikið um þetta fræga ilmvatn og á endanum þá pantaði ég hana að utan án þess að hafa þefað af henni áður, enda liggur það við guðlasti í ilmvatnsheimum að vita ekki hvernig Samsara lyktar. Og ég er stanslaust að auka þekkinguna hjá mér svo ég lét vaða. Ég verð að segja að ég var mjög hissa þegar ég fékk hana í hendurnar og þefaði af flöskustútnum. Fyrsta lyktin sem ég greindi var ylang ylang og minnti mig samstundis á ilmvatn sem ég hafði sjálf búið til. Nei því miður, þá eru ilmvatnsgerðarhæfileikar mínir ekki á pari við nef sem vinna fyrir Guerlain og það var bara rétt fyrstu 10 sekúndurnar sem mér fannst það minna á eitthvað heimatilbúið frá mér. Og það var bara vegna þess að nefið á mér fann bara fyrir ylang ylang til að byrja með, mitt ilmvatn var einmitt líka með hátt hlutfall af því sama í sér. En um leið og það róaðist og ég g*t fundið meira þá fann ég sterka lykt af sandalvið og musk og þessi blanda gerir það að verkum að ég finn mikla sápulykt. Og sápulykt er að öllu jöfnu eitthvað sem ég þoli alls ekki í ilmum. Ég varð fyrir vonbrigðum, þetta gríðar fræga og vinsæla ilmvatn lyktaði svo bara mest eins og gul sápa? Ég lét það bara í skúffuna og gleymdi því í smá tíma. En þar sem ég prófa alltaf allt nokkrum sinnum (nefið þarf að læra að meta nýtt og það gerist bara með því að prófa hluti sem ég er ekki endilega hrifin af í byrjun), þá skellti ég henni á mig einn daginn áður en ég fór út að labba og jú, ég fann sápulyktina en það var samt eitthvað við hana sem varð til þess að ég notaði hana aftur og aftur. Ég var ekki hrifin af henni að mér fannst en ég var samt alltaf spennt fyrir henni. Ég veit ekki af hverju. Ég hafði líka lesið að hún nyti sín best yfir veturinn því þá kæmu allar nóturnar fram og þar sem ég fékk hana um mitt sumar þá hafði ég sennilega ekki upplifað hana eins og "á" að gera. Ég geymdi hana þar til að það varð mjög kalt, skellti henni á mig einn daginn áður en ég dreif mig út að erindast og spáði ekki sérstaklega mikið í því. En einhverju seinna þá fann ég þessa ótrúlega góðu lykt einhversstaðar, sem ég kannaðist ekki við. Ég þefaði út um allt og það tók mig smá stund að kveikja á því að lyktin kom frá mér. Og það var hárrétt sem sagt var, að hún væri best þegar kalt væri í lofti. Allt í einu þá minnkaði sápulyktin um helming og sæt og krydduð lykt tók við. Ylang ylang getur verið mjög sætt og kryddað og mig grunar að það hafi loksins fengið að njóta sín í kuldanum. Samsara gæti virkað á marga eins og "gömul" lykt enda er lítið sameiginlegt með henni og sykurbombunum sem eru vinsælar núna. En það er eitthvað við hana sem fær mig til að nota hana reglulega þó hún sé ekki endilega lík því sem ég venjulega nota. Og hún er virkilega góð núna, íslenskt vor er vissulega nánast eins og vetur á mörgum stöðum í heiminum svo 6 gráðurnar sem eru hlýjar þegar vorar hér, eru heppilegar fyrir Samsara. Hún er líka mjög góð þegar það er hörkufrost en mér þykir hún eiga vel við núna því það er eitthvað sólskin í henni. Og þetta er bomba. Tvö sprey og ekki meira, nema þú vijir að allir finni lyktina af þér löngu áur en þú mætir á svæðið. Og hún endist og endist. Það var ekkert verið að djóka með hana þessa þegar hún var gerð. Krydduð sápa með smá sól. Það er besta lýsingin á henni held ég bara. Og það passar bara fínt við vorið. ATh. - Guerlain fæst bara í einhverjum Hagkaupsverslunum í Reykjavík, mögulega bara Hagkaup í Kringlunni og Smáralind (því miður).

N**e - Rihanna
N**e er réttnefni á þessa. Hún virkar pínu nakin. Smá húðlykt í gangi með fullt af ávöxtum. Guava, pera, mandarína, gardenía, jasmín, orange blossom, vanilla orchid og musk. Hún er pínu s*xý þessi, sæt og hlý án þess þó að vera ávaxtakokteill eða sykursjokksæt. Fullkomin fyrir vorið og sumrið ef þú vilt lykta sætt og girnilega. Þó það séu engar aprikósur í nótunum þá finnst mér hún alltaf minna mig á þroskaðar aprikósur með rjóma. Hún hefur ekki verið til í Hagkaup hérna á Akureyri í eitt ár eða tvö, svo kannski er hún ekki í boði lengur hér á landi. En hún fæst enn erlendis og á síðum eins og Fragrancex.com ef fólk er til í að eyða í hana án þess að prófa. Hún er ekki dýr svo það er væri þá ekki svakalegur skellur ef hún hentar ekki. Það er eiginlega lítið um hana að segja annað en að ég nota hana sérstaklega á vorin, rjómi og aprikósur og huggulegheit, hækkandi sól og bara gaman.

Pure White Linen - Estée Lauder
Ég veit ég sagði að sápuilmir eru ekki beint fyrir mig, en ég ætla samt að láta þennan fljóta með því hann bara passar svo vel þegar grænka fer í haga og kindur fara á beit 🐑🍃. Lyktin af Pure white linen er bara nákvæmlega það sem nafnið segir - lykt af nýþvegnum þvott sem hangir á snúru í vorgolunni. Einu skiptin sem ég nota hana eru á vorin og þá aðallega vegna þess að myndin sem ég fæ upp í hugann þegar ég er með hana er þessi fallega þvottur-úti-á-snúru-sól-og-veðrið-farið-að-hlýna. Hún er alveg dásamleg ef þú vilt kalla þessa mynd fram i hugann. Hún samanstendur af meðal annars jasmín, gardeníu og tuberose, grænum nótum, peru, patchouli og sýprus ásamt fjölmörgu öðru. En heildarútkoman er þvottaefni, sápa, með smá grasfíling líka. Ég sé alltaf fyrir mér konu sem gengur um í hörskyrtu og buxum í beige lit, sandölum og á hús í suður Frakklandi þegar ég spái í því hvernig týpa notar hana. Ég er klárlega ekki þessi týpa en ég dáist að henni fyrir hvað hún er klassísk og falleg. Fyrir þær sem vilja hreinan og klassískan ilm.

For Her - Narciso Rodriguez
Ég veit eiginlega ekki hvernig ég á að lýsa þessari - þetta er musk lykt með meiru. Pacthouli, vetiver, bergamot, african orange flower ásamt fleirum nótum en það er ekki auðvelt að lýsa henni. Hún hallar út í sápu/hreina musk lykt en er samt alls ekki sápulykt. Hún er pínu svona lykt sem lagar sig að þér, "your skin but better" fílingur finnst mér. Ef einhver man eftir ilminum Lovely frá Söruh Jessicu Parker sem kom út að mig minnir í kringum 2005, þá var sá ilmur eftirherma af þessum og ætti að gefa ykkur einhverja mynd af því hvernig þessi er ef þið þekktuð þá lykt. Ég man ekki í fljótu bragði eftir neinu sem er til hér á landi sem líkist þessum ilm mikið. Ég átti Lovely þegar hún kom út og alveg elskaði hana, og hafði ekki hugmynd um að hún væri gerð "í anda" (lesist, hermt eftir) For Her frá NR. Mörgum árum seinna fór ég að leita að Lovely aftur og þar sem hún er löngu hætt að vera seld hér á landi þá ætlaði ég að kaupa hana að utan. En ég komst þá að því að þetta var upprunlalega lyktin svo ég ákvað að prófa hana í staðinn. Ég varð ekki fyrir vonbrigðum enda vissi ég hvernig Lovely lyktaði. En ég man að það voru ekki margar vinkonur mínar sem fíluðu hana á sínum tíma og skildu ekkert í því hvers vegna ég elskaði hana svona mikið, og það sama á við um For Her. Ef ég leyfi fólki að þefa af flöskunni þá eru fáir eitthvað spenntir. En málið er að hún verður svo falleg þegar hún er komin á. Þetta er eitt af þeim ilmvötnum sem ég fæ sem mesta hrósið út af. Fólk greinilega kann að meta hana þegar það finnur hana á mér eða í loftinu í kringum mig, en ekki ef það þefar beint af flöskunni. En það skiptir mig svo sem ekki miklu máli því ég elska hana og myndi nota hana þótt enginn fílaði hana nema ég. Hún er létt og ég nota hana þá daga sem ég vil eitthvað þægilegt og ljúft. Musk er samt þannig efni að þú upplifir oft "þefblindu" með það. Já ég veit að þefblinda er ekki orð en ég ætla samt að nota það. Og þar sem ekki allir geta fundið eins mikla lykt af sumum musk þá eru margir sem finna ekki lyktina af þessu eins og ég geri. Ég veit ekki hversu margar umfjallanir ég hef lesið um For Her þar sem fólk segist ekki finna neina lykt. Og þess vegna myndi ég ekki endilega mæla með að kaupa hana án þess að prófa hana. En ef þú rekst á hana einhversstaðar þá mæli ég með að gefa henni séns. Dásamleg vorlykt, létt, hrein og öðruvísi.

Og þá eru nokkrir af mínum uppáhalds vorilmum upptaldir. Ég spreyjaði hverjum ilm fyrir sig á post-it miða til að hafa þá beint við nefið á meðan ég skrifaði um þá svo herbergið ilmar núna nokkuð öflugt. Ég þarf sennilega að lofta út áður en ég held áfram að vinna 😆. Ef þú ert að leita að einhverju nýju og fersku í safnið og langar í eitthvað sem minnir á bjartari kvöld og hlýrra veður, þá mæli ég með að kíkja á þessa 💋.

Linda.

07/03/2021

Ég ætla rétt að segja hæ og svo halda áfram að njóta vorsins sem er í fullum gangi núna 🌼💕 Það er ekki orðið dimmt klukkan sjö á kvöldin, sólin er komin svo hátt á loft að hún er farin að ylja okkur svo ekki verður um villst að sumarið er handan við hornið og það liggur í loftinu einhver kátína sem ég finn alltaf fyrir þegar vorar 💛🌿 Og svo eru blessuð blómin svo dugleg að minna á það líka, allt er að lifna við og springa út núna 💐 Njótið dagsins og vorsins! 🌹

Want your business to be the top-listed Beauty Salon in Reykjavík?
Click here to claim your Sponsored Listing.

Category

Website

Address

Reykjavík