Hárstúdióið Sunna
Hárstúdíóið Sunna var opnað 9. febrúar 2008. Eigandi er Bryndís Arna Reynisdóttir. Starfsfólk: Bryndís Arna og Tinna sveinn í fæðingaror og Harpa Sif nemi
Kæru vinir þá er komið að því að Hárstúdíóinu Sunnu verður endanlega lokað😪.Ég hef ekki getað unnið að neinu marki síðan í ágúst 2019. Ég reyndi aðeins í fyrrasumar en það var ekki að ganga. Nú er staðan sú að ég er á leiðinni í fyrstu liðskipti af fjórum í lok apríl og þar með get ég trúlega ekki unnið, allavega ekki næstu misserin Þetta var nú ekki alveg planið þegar ég opnaði stofuna 9.febrúar 2008. En margt fer öðruvísi en ætlað er. Ég hef nú þegar flutt í annað bæjarfélag en Hildur á Samson hefur leigt aðstöðuna fram að þessu. Hún mun flytja sig um set um mánaðarmótin. Nú á að breyta húsnæðinu aftur í leiguíbúð svo nú er mál að linni.
Hjartans þakkir fyrir viðskiptin og samveruna á liðnum árum.🥰
Lífið heil
ykkar
Bryndís Arna ❤️
Góðan daginn .😃
Nú er loksins eitthvað að gerast í Hárstúdíóinu Sunnu. Líf að færast í staðinn. Hildur á Samson er búin að leigja af mér aðstöðu og byrjuð að klippa.hér. Efri hæðin í
verslunarmiðstöðinni þar sem Samson var til húsa um árabil verður tekin undir heilsugæslustöð í Þorpinu, Bara gaman að því við unnum saman á Samson í 11 ár áður en ég opnaði Hárstúdíóið Sunnu 2008. Bíð ég hana innilega velkoma í húsið. 🤗
Ég sjálf er ekki byrjuð formlega að vinna en ætla aðeins að byrja og sjá hvað ég get.😜 Kemst víst ekki að því hvort þessi vinna muni henta mér til lengri tíma, nema að prufa. Eða hvort ég verð alfarið að hætta að klippa 🥲.Það er semsagt hægt að hringja í síma 6922942 og athuga með tíma. Ef það gengur mun ég síðar auglýsa fastan tíma.
Bestu kveðjur í bili.🥰
Kæru vinir.
Hárstúdíóið Sunna verður lokað um óákveðinn tíma vegna heilsufarsástæðna eiganda. Ég mun láta vita með góðum fyrirvara hvenær hægt verður að opna aftur.
Sjáumst síðar, hafið það gott á meðan og farið varlega í óraunverulegum heimi 😘
Kveða, Bryndís Arna
Jæja mér hefur tekist að eyða póstinum sem ég setti inn í morgun😀hann var eitthvað á þessa leið. Þá er kominn 4.maí á morgun. En staða mín er þessi .
Ég fæ að vita það vonandi fljótlega hvenar ég er að fara í aðgerð á baki hér á SAK 🤔.
Hafði hugsað mér að prufa kanski aðeins að vinna þangað til ef biðin verðu löng,l en er að fara til sjúkraþjálfara á miðvikudaginn og ætla að biðja hann um að meta það með mér.
Dagný min er hætt og flutt til Svíþjóðar við þökkum henni frábær störf og óskum henni alls góðs á nýjum slóðum.🥰.
Meiri upplýsingar á miðvikudaginn. ÉG er semsagt EKKI að byrja á morgun
Kær kveðja
Hún Dagný okkur kláraði sveinsprófið sitt í dag 😃🥰🥰.Til hamingju elskan 🌷🌷🌷❤
Góðan daginn kæru vinir,gleðilegt ár og takk fyrir öll þau gömlu góðu.🥰
Ég ákvað láta aðeins heyra í mér um mína á stöðu.
Ég er því miður ekki að fara að vinna á næstunni. Veit reyndar ekkert hvenær. Er að fara í Virk starfsendurhæfingu vonandi fljótlega til að koma mér í gang. Það virðist vera full vinna um þessar að halda sér gangandi andlega og líkamlega.😀 Ég er sko ekki hætt að klippa ekki láta ykkur dreyma um það.😜 Ég skal !!!! 👍 Þetta tekur bara allt lengri tíma en ég hugði. Bakið er ekki gott og plagar mig mest núna. Í byrjun apríl eru komin tvö ár síðan ég lenti í bilslysinu.😓Er búin að fara í sprautur og á eftir að fara í fleyri.🤔
Dagný er eitthvað að vinna allavega úr febr. Endilega hafið samband við hana 👍
Vona að ég hafi betri fréttir í næsta status. Alltaf að halda i vonina 🙏☺
Bestu kveðjur
Bryndís Arna
Góðan dag elsku vinir Mér finnst ekki létt að skrifa þennan status. En hjá því verðu ekki komist. Staðan er semsagt þessi.
ég er EKKI að fara að vinna fyrir jól og í rauninni veit ég ekki hvenar. Ég verð vist að játa mig sigraða. Það mikla áfall sem ég varð fyrir í byrjun september úti á Spáni, þegar ég horfði á manninn minn híga niður í hjartastoppi og allt á eftir kom. Áfall ofan í allt sem á hefur gengið undanfarin ár, sló mig niður harðar en ég átti vona á og þegar ég hélt að væri að hressast Ég sem hélt að ég væri alger nagli🤪 og gæti tæklað allt. er meðal annars búin að lenda uppi á bráðamóttöku með hjartsláttartruflanir og hélt að ég væri að fá hjartaáfall. Komst í framhaldi af því í þrekpróf og hjartarannsókn. Sem betur fer er nú ekkert að hjartanu í mér,sem hefði nú verið fullmikið af því góða,😉og kem ég mjög vel út úr öllum blóðfrufum. Þetta heitir áfallastreita vist sem ég verð bara að taka alvarlega og reyna nú að setja sjálfa mig fyrsta í sæti í bili og fá hjálp með sálartetrið. Enda hef ég vist ekkert val, orkuleysið og framkvæmdaleysið er algert.
Það fullt að fínu hársnyrtifólki í bænum. Trúi ekki að það sé fullt allsstaðar😁 Ég er ekki ómissandi er að uppgötva það 😃Einnig getið þið bókað hjá henni Dagnýju meðan eitthvað er laust en hún vinnur ekki alla daga þannig að fyrstur kemur fyrstur fær.
Hafið það gott þar til við hittumst næst. ❤️
KVEÐJA Bryndís Arna
Góðan dag kæru viðskiptavinir.
Eftir allt sem á undan er gengið og uppsafnað álag síðustu ára hefur læknirinn minn sett mig í vinnubann í bili.
Sennilega út nóvember, en á tíma hjá henni næst 19,nóv. og þá verður það endurmetið. Þannig að nú er ég bara í því að ná heilsu á nýjan leik og vera pínu góð við sjálfa mig, ekki annað í stöðunni því miður. En hún Dagný mín er nú betri en enginn og það er alltaf hægt að fá tíma hjá henni c.a tvo daga í viku. Hringið í síma 4613399 og önnuhvor okkar svarar og gefur ykkur tíma. Einnig minni ég á hnappinni hér á síðunni Bóka hér og Noona bókunarappið sem hægt er að hlaða niður í símann sinn og nota til að bóka tíma bæði hjá okkur og annarsstaðar. Bestu kveðjur og þakkir fyrir alla hlýjuna og góðu óskirnar síðustu vikur.❤️
Bryndís Arna
Click here to claim your Sponsored Listing.
Category
Contact the business
Telephone
Website
Address
Sunnuhlíð 10
Akureyri
600
Opening Hours
| Monday | 09:00 - 18:00 |
| Tuesday | 09:00 - 18:00 |
| Wednesday | 09:00 - 18:00 |
| Thursday | 13:00 - 20:00 |
| Friday | 09:00 - 18:00 |
Alerts
Be the first to know and let us send you an email when Hárstúdióið Sunna posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.