Urtasmiðjan - The Herbal Workshop

Urtasmiðjan - The Herbal Workshop

Share

Húðvörur unnar úr villtum íslenskum jurtum og lífrænu hráefni. Skincare products from hand-picked Icelandic herbs and organic ingredients. www.urtasmidjan.is

Náttúruleg lífræn húðvernd

Í 30 ár hefur Urtasmiðjan þróað og framleitt krem, salva og olíur úr villtum og lífrænum heilsujurtum sem þekktar eru fyrir heilandi áhrif. Framleiðslan byggir á gömlum hefðum, sem og nútíma þekkingu og rannsóknum á heilnæmi jurtanna. Jurtirnar eru lífrænt ræktaðar og íslenskar villtar jurtir tíndar í norðlenskri náttúru, t.d. blóðberg, rauðsmári, vallhumall, fjallagrös ofl. Allt hráefni er 100% náttúrulegt/lífrænt úr jurtaríkinu s.s. kokos- og sheasmjör, óbleikjað bývax, jurtaolíur og omegajurtaolíur sem eru ríkar af nauðsynlegum næringarefnum fyrir húðina. Jurtaþykkni, essensar, rotvörn og þráavörn er unnið úr jurtum og ávöxtum. Þessi hreinu náttúruefni innihalda fjölmörg húðbætandi efni sem stuðla að hollustuáhrifum vörunnar. Urtasmiðjan notar engin kemísk efni í framleiðslu sína s.s. litarefni, ilmefni, paraben, eða afurðir unnar úr jarðolíum s.s. júgursmyrsl, vaselín, parafínolíur, petrolatum og engar dýraafurðir.

21/07/2026

Silki-andlitsolían er góð allan ársins hring, en sérstaklega í kuldanum. Vítamín bomba sem ver og nærir húðina vel, tilvalin undir rakakremið🍁

Hægt að lesa meira um vöruna inn á heimasíðunni okkar https://urtasmidjan.is/

21/07/2026

🌸vöðavolía🌸
Nú eru blessuðu flugurnar vaknaðar úr vetrardvalanum og finnst heldur gaman að minna á sig. Þá er gott að eiga vöðvavolíu🥰 Hún hefur þann frábæra eiginleika að slá vel á kláðann af bitunum.
Hægt er að lesa um vöðavolíuna á heimasíðunni okkar https://urtasmidjan.is/

10/07/2026

Húðnæring - augnsalvi🌺
Sérlega græðandi og næringarríkur salvi sem er fullur af andoxunarefnum. Góður á viðkvæm húðsvæði í andliti eins og varir, þurrkbletti og augnsvæði. Þá hefur húðnæringin einnig fengið lof fyrir að vera góð á frunsur.

Lesa má meira um húðnæringuna inn á https://urtasmidjan.is/ 🫶

20/12/2025

✨Græðismyrsl✨
Fyrsta varan sem framleidd var í nafni Urtamsiðjunnar fyrir um aldarþriðjungi er Græðismyrslið.
Smyrslið hefur á þeim tíma margoft sannað sína ótvíræðu græðandi og róandi eiginleika á m.a. sár, bruna, þurrk og kláða.

Lesa má betur um Græðismyrslið á heimasíðunni okkar https://urtasmidjan.is 🌼

28/11/2025

Velkomin í Sveitasalinn á Ytra-Gili 06. desember

Want your business to be the top-listed Beauty Salon in Akureyri?
Click here to claim your Sponsored Listing.

Telephone

Address


Ytra-Gil
Akureyri
605

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 10:00 - 16:00
Wednesday 10:00 - 17:00
Thursday 10:00 - 17:00
Friday 10:00 - 15:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Urtasmiðjan - The Herbal Workshop posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Subscribe

We will notify you when anything happens in Akureyri.