Grasa Kata
Ég heiti Katrín Fjóla Guðmundsdóttir og þessi síða er tileinkuð nytja- og lækningajurtum og námi mínu í grasalækningum í gegnum vefsíðuna grasakonan.is
Ég heiti Katrín Fjóla Guðmuhndsdóttir og hóf nám í grasalækningum haustið 2025
Þessa viku höfum við verið að fræðast um ýmislegt varðandi, getnað, meðgöngu og fæðingu. Margir þættir í daglegu lífi geta hamlað getnaði, s.s. mengun, streita, óholl fæða og svefnleysi. Í gegnum aldirnar hefur jurtastuðningur verið notaður til að auka líkur á getnaði og sem stuðningur við verðandi mæður. Sumar jurtir hafa sannað gildi sitt meðan aðrar hafa ekki reynst vel. Þá ber að hafa í huga að jurtir geta verið varhugaverðar á meðgöngu en gagnlegar í annan tíma. Margar hafa ekki verið rannsakaðar nægjanlega svo ekki er óhætt að mæla með þeim meðan virkni annarra hefur sannað gildi sitt. Til dæmis er Camilla vel rannsökuð og óhætt að drekka kamillute alla meðgönguna en hún er slakandi og vægt bólgueyðandi.
Mataræðisreglur fyrir stoðkerfi og liðheilsu
Leggðu áherslu á: Ferskt grænmeti og ávexti ríka af andoxunarefnum (ber, dökkt laufgrænmeti), sem draga úr oxunarálagi í liðvef og veita C- og K-vítamín. Heilkorn (hafrar, brún hrísgrjón, quinoa) sem veita trefjar sem styðja við heilbrigða samsetningu örveruflóru í þörmum og stöðugan blóðsykur — Omega-3 fitusýrur úr feitum fiski. Plöntuprótein úr belgjurtum og hnetum veita amínósýrur fyrir kollagenmyndun. Næg vökvainntaka viðheldur vatnsinnihaldi í brjóskvef og rúmmáli liðvökva — um það bil 2 l af vatni daglega.
Draga úr eða forðast: Mjög unnin matvæli og hreinsaður sykur sem stuðla að hröðum sveiflum á blóðsykri og framleiðslu bólguhvetjandi frumuboðefna. Transfita og oxuð fita í djúpsteiktum og ofunnum matvælum sem auka almennt oxunarálag. Óhófleg mettuð fita úr unnum kjötvörur. Of mikið áfengi, sem dregur úr upptöku steinefna, eykur almenna bólgu og hægir á viðgerð stoðkerfisvefja. Reykingar, sem flýta fyrir niðurbroti brjóskfylkis með myndun sindurefna og hamla beint myndun kollagens í brjóskfrumum.
26/08/2026
Berjaeftirréttur frá Albert eldar
500 g grísk jógúrt
250 ml rjómi
4 vel fullar matskeiðar berjasulta, helst heimatilbúin
Ríflegt magn af aðalbláberjum, ferskum eða frosnum
Jarðarber eða önnur rauð ber til skrauts, eftir smekk
Þeytið rjómann þar til hann er léttur og mjúkur.
Hrærið berjasultunni vel saman við grísku jógúrtina.
Blandið þeytta rjómanum varlega saman við jógúrtblönduna.
Setjið blönduna í fallega skál eða skiptið henni á milli eftirréttarglasa.
Dreifið aðalbláberjunum yfir.
Skreytið með jarðarberjum eða öðrum rauðum berjum, sé þess óskað.
Ég geri þennan eftirrétt gjarnan á haustin þegar hlíðarnar fyllast af gómsætum aðalbláberjum. Gríska jógúrtin gerir réttinn sérstaklega mjúkan og góðan. Auðvitað má nota keypta berjasultu, en heimagerð sulta gerir eftirréttinn enn betri.
Berið eftirréttinn fram vel kaldan.
Í síðustu viku byrjaði grasanámið mitt aftur 🥰 Við erum að fræðast um stoðkerfið afar áhugavert efni, beinagrindina, sinar, liðbönd og allt sem því viðkemur. Til að halda góðum liðstyrk er hreyfing afar mikilvæg, kyrrseta er sannarlega eitur í beinum 😩 Nokkrar jurtir eru góðar til stuðnings liðheilsu s.s. engifer og túrmerik vegna bólgueyðandi eiginleika. Svo var yndislegt að hitta aftur skólasysturnar og spjalla um hvað við höfum verið að gera í sumar 🌿 Annars hef ég verið dugleg síðustu daga að tína aðalbláber en það er nóg af þeim í nágrenninu 🫐 Ég skelli þeim bara í frost til að eiga í vetur 🥰
24/08/2026
Góð leið til að nýta lauf gulróta frá grasakonan.is
Endurhugsun á gulrótum: Frá rót til laufblaðs Ekki henda þessum líflegu grænu gulrótatoppum! Uppgötvaðu jarðtengda, steinefnaríka möguleika Daucus carota laufanna og breyttu garðúrgangi í næringarríkt seyði.
19/08/2026
Fékk gefið grænkál og ákvað að gera grænkálspestó, fann uppskrift frá Sollu Eiríks. Átti ekki heslihnetur en setti valhnetur í staðinn og þetta bragðast ansi vel 🥰
15/08/2026
Núna er beitilyngið í blóma en það er ágætis te jurt, líka svo fallega rauðbleikt á litinn 😍
Virkni þess samkvæmt Arnbjörgu Lindu grasakonu er að það er gott við blöðrubólgu og sýkingum í þvagfærum þá þykir gott að drekka te af jurtinni til að eiga hægara með svefn. Smyrsl af jurtinni þykja góð gegn gikt og öðrum bólgum 😍
13/08/2026
Um að gera að nýta hvönnina, hér eru nokkrar hugmyndir inná NLFÍ😍
Ætihvönn í allan mat! Uppskriftir frá Heilsustofnun NLFÍ í fyrstu athugasemd.
13/08/2026
Nú styttist í að námið mitt hjá grasakonan.is hefjist aftur (17. ágúst) ég mæli svo sannarlega með þessu námi 😍 ef allt gengur eftir má ég titla mig sem grasalækni næsta vor. Ég er búin að tína þónokkrar jurtir og þurrka í sumar m.a. hvönn, blóðberg, vallhumal, birki og hlakka til að nýta þær í vetur 🥰 Svo er berjatíminn að hefjast 😍
12/08/2026
Prófaði að gera hlaup (sultu) úr blómum af sigurskúf, tókst svona ljómandi vel og liturinn einstaklega fallegur
Uppskrift:
4 bollar nýtínd blóm af sigurskúf
1 l vatn
800 gr sykur (með pektin) eða 1 pakki pektin
60 ml sítrónusafi
Blómin sett útí 1 l af nýsoðnu vatni og látin bíða í ca 30 mín. Blómin síuð frá og sykri og sítrónusafa blandað saman við soðið þar til byrjar að þykkna ( hlaupa) ca 1-1 1/2 tíma, gott að gera prufu setja teskeið í glas og smástund inn í ísskáp. Setjið sultuna heita í sótthreinsaðar krukkur. Geymist í ísskápnum eftir opnun.
Gott ofaná brauð
Click here to claim your Sponsored Listing.
Category
Website
Address
Svalbarð
Dalvík
621