Nuddhofið - Nudd.is

Nuddhofið - Nudd.is

Share

Lítil nuddstofa sem sérhæfir sig í klassísku og djúpvöðvanuddi með Taílensku ívafi. Við erum staðsett í Suðurbæjarlaug og Hress heilsurækt.

Kaupa Gjafakort | Nuddhofið 01/06/2026

🎁 Nú er einfaldara að kaupa gjafakort hjá Nuddhofinu.

✅ Einfalt pöntunarferli á netinu
✅ Gjafakortið rennur aldrei út
✅ Heldur gildi sínu þó verðskrá breytist
✅ Hentar fyrir öll tilefni

Kaupa Gjafakort | Nuddhofið Kauptu prentað gjafakort hjá Nuddhofinu í Suðurbæjarlaug. Veldu klassískt eða djúpvöðva olíunudd. Gjafakortið rennur aldrei út.

21/05/2026

Jæja þá var myndatökudagur í dag. Stelpurnar mjög kátar 😊

10/05/2026

Ný útgáfa af Nudd.is er komin í loftið.

Við höfum uppfært vefsíðuna okkar og gert hana einfaldari, skýrari og þægilegri í notkun, sérstaklega í síma. Nú er auðveldara að skoða þjónustur, verð, opnunartíma, staðsetningu og bókunarmöguleika hvar sem þú ert.

Við höfum líka bætt við stuðningi fyrir ensku og taílensku. Enska útgáfan hjálpar fleiri viðskiptavinum að finna upplýsingar, og taílenska útgáfan er sérstaklega gagnleg fyrir starfsfólkið okkar.

Kíktu á nýju útgáfuna hér: Nudd.is

Takk fyrir að fylgja okkur. Við hlökkum til að taka á móti ykkur.

10/05/2026

Framkvæmdir standa nú yfir í stóra kvennaklefanum í Suðurbæjarlaug og vegna þess gæti tímabundinn hávaði borist inn í nuddherbergið.

Við viljum biðjast innilega velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. Framkvæmdirnar eru því miður utan okkar stjórn.

Framkvæmdirnar hafa þó ekki áhrif á hreinlæti, þægindi né gæði nuddsins sjálfs og við leggjum áfram mikla áherslu á faglega og góða þjónustu fyrir alla okkar gesti.

Nuddhofið 16/02/2026

Nuddhofið starfar á tveimur stöðum. Í Suðurbæjarlaug er nuddstofan staðsett inni í sundlauginni þar sem viðskiptavinir fá frían aðgang að búningsaðstöðu, sturtum, gufu, sundlaug og heitum pottum samhliða nuddheimsókn sinni. Í Hress heilsurækt er nuddstofan hluti af rólegu og hlýlegu umhverfi þar sem gestir hafa frían aðgang að búningsaðstöðu, sturtum, gufu og heilsurækt. Báðar staðsetningar bjóða upp á heildstæða upplifun sem sameinar fagmennsku, umhyggju og raunverulega vellíðan.

Nánari upplýsingar og tímapantanir eru á

Nuddhofið Taílenskt olíunudd hjá reyndum nuddurum. Tveir staðir í Hafnarfirði: Suðurbæjarlaug og HRESS. Einföld netbókun.

Noona | Bókaðu tíma í allt, núna. 18/01/2026

Við kynnum Jantakarn 💙 — taílenskan nuddkennara með 20+ ára reynslu.

Jantakarn er frá Taílandi og var ein af kennurum Sudaphon og Suphansa í Wat Pho, Salaya. Hún hefur unnið við nudd í yfir 20 ár, bæði sem nuddari og kennari.

Hún er nú staðsett hjá okkur í Hress og við viljum endilega að þú prófir tímann hjá henni — jafnvel bara einu sinni.

Það er skiljanlegt að það sé erfitt að velja nuddara og margir vilja halda sig við Sudaphon og Suphansa. En ef þú gefur Jantakarn tækifæri, þá get ég lofað að þú verður ekki fyrir vonbrigðum 😉

Einnig mun hún bjóða upp á Slökunarnudd og Nuddkennslu fyrir pör — nýja þjónustu sem hefur ekki verið í boði hér á landi áður.

Noona | Bókaðu tíma í allt, núna. Bókaðu þjónustu eða borð hjá uppáhalds fyrirtækjunum þínum, hvenær sem er og hvar sem er inni á noona.is eða Noona appinu.

09/12/2025

Nú er góður tími til að panta gjafakort í nudd fyrir jólin 🎄gjafakort.nudd.is

Photos from Nuddhofið - Nudd.is's post 04/12/2025

Tvær nuddkonur á leiðinni til Íslands. Jantakarn mun sjá um Nuddhofið í Hress og hún er búinn að vera vinna sem nuddkennari Wat Pho í 20+ ár. Við hlökkum mikið til að fá hana til liðs við okkur. Svo kemur hún Freyja til okkar milli jóla og Nýárs sem gesta nuddari. Hún er búsett í danmörku og er menntuð sem sjúkranuddari og hefur líka tekið Taí nuddið hjá Wat Pho ☺️ kannski get ég platað hana til okkar fulltime.

Want your business to be the top-listed Beauty Salon in Hafnarfjörður?
Click here to claim your Sponsored Listing.

Telephone

Address


Hafnarfjörður

Opening Hours

Monday 07:00 - 21:00
Tuesday 07:00 - 21:00
Wednesday 07:00 - 21:00
Thursday 07:00 - 21:00
Friday 07:00 - 19:00
Saturday 08:30 - 17:00
Sunday 08:30 - 16:00