Hvar ertu Stefa?
Stefa er hársnyrtimeistari sem starfar á Hár og smink, Hlíðasmára 17. Langbest að senda mé
Kæru viðskiptavinir nær og fjær!
Ég ætla að taka hvíld frá klippingum fram á haustið. Sný tilbaka fersk eftir sumarið.
Kær kveðja,
Stefa
Kæru (viðskipta)vinir,
eftir að hafa legið undir feldi og ígrundað þetta vel, mun ég einungis klippa annan hvern miðvikudag í vetur. Tímum mun því óneitanlega fækka og búast má við að erfiðara verði að komast að, miðað við fjölda klipptra hausa síðasta vetur. Ég geri ráð fyrir að einhverjir þurfi að róa á ný mið og bendi hiklaust á samstarfskonur mínar á Hár og smink, þær eru allar frábærar!
Næstu klippidagar sem ég verð á stofunni eru því:
5. september - Fullbókað
19. september - Fullbókað
3. október - Örfáir lausir tímar
17. október - Lausir tímar
31. október - Örfáir lausir tímar
Annars eigum við líka fjöldan allan af frábæru fagfólki í hársnyrtingum og tilvalið að skipta um stofu öðru hvoru og fá nýjar víddir í hárið.
Kæru viðskiptavinir!
Ég þakka kærlega fyrir veturinn, sem var sá annasamasti síðan ég byrjaði og fullt af nýjum andlitum sem bættust í viðskiptahópinn.
Nú er allt orðið fullt fyrir sumarfrí hjá mér, bæði í kvöld og næsta miðvikudag. Því miður get ég ekki tekið við fleiri pöntunum, þar sem það eru allt of fáir klukkutímar í sólarhringnum!
Ég mæli hiklaust með öllum dömunum á Hár og smink í minni fjarveru, en síminn þar er 564-6868.
Ég reikna með að snúa aftur til starfa á stofunni í lok ágúst og opna fyrir bókanir aftur um miðjan ágúst eða svo.
Jóla-klippi-dagskráin er orðin þéttsetin og ég vona að allir séu komnir með tíma fyrir jólin, sem þess óskuðu.
Það eru því miður ekki fleiri lausir tímar hjá mér, ekki fyrr en á nýju ári hreinlega!
Ég þakka kærlega fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða og vonast til að sjá sem flesta í klippistólnum á komandi ári!
14/08/2017
Kæru viðskiptavinir!
Ég hef haldið aftur af mér með verðhækkanir eins og ég mögulegast get síðustu ár og haldið verðinu í algjöru lágmarki. Nú hef ég hins vegar gert breytingar á verðskránni, þannig að sumt helst svipað, en annað hækkar óhjákvæmilega.
Ég er þó einna stoltust af kynjajafnrétti í nýju verðskránni minni! Framvegis mun ég rukka sama verð fyrir klippingu og aðra þjónustu, hvort sem það er fyrir herra, dömur, eða þá sem skilgreina sig á annan hátt.
Áfram verður þó gerður munur á styttra og síðara hári þegar kemur að tímafrekari vinnu og efnanotkun.
Það er gríðarlega erfitt að feta veginn í því að verðleggja hársnyrtingu á sanngjarnan hátt, því sumt tekur langan tíma og annað styttri tíma, en það er víst ekki hægt að smella þeim öllum undir sama hatt. [bara-bamm-tissshhh]
Ef einhver telur sig ekki eiga samleið með þessum breytingum, vil ég þakka kærlega fyrir viðskiptin fram til þessa og óska viðkomandi velfarnaðar. Það er þó von mín að ég mæti skilningi með breytingu verðskráarinnar og mun gera mitt besta til að mæta hárþörfum hvers og eins.
Ég er í sumarfríi núna og svara engum beiðnum á meðan, en föstudaginn 18. ágúst byrja ég að bóka fyrstu vikur haustsins. Fyrsti klippidagur eftir fríið er því 23. ágúst.
Ég hlakka til að hitta ykkur á stofunni, hvort sem það er með hlátur og gleði, spjalli og alvarleika, húmor og svefngalsa eða samblandi af þessu öllu saman!
Kær kveðja,
Stefa
06/11/2016
Kæru viðskiptavinir, ég er komin í spelku á vinstri hönd og get því ekki klippt þessa vikuna. Óvíst er með framhaldið, svo ég mun ekki taka neinar tímapantanir fyrr en ég veit hvað er í gangi með höndina á mér.
Endilega hafið samband við hinar skvísurnar á Hár og smink, í síma 564-6868 og ég lofa að móðgast ekki neitt þó þið "haldið framhjá" á meðan ég næ bata ;)
Skólinn er að byrja, sumarfríunum að ljúka, vinnan að detta í fullan gang og allir vilja vera fínir þegar haustið tekur ljúflega við af sumrinu.
Það bókast hratt upp hjá mér um þessar mundir, en ég verð að gæta þess að sinna börnum og búi líka, þó svo ég myndi gjarnan vilja bæta mörgum klukkustundum inn í sólarhringinn og taka alla inn.
Þannig að ég er tilbúin að taka niður tímapantanir eitthvað fram í tímann og vonandi komast flestir að sem vilja:
Miðvikudagur 24. ágúst - Fullbókað
Þriðjudagur 30. ágúst - Fullbókað
Miðvikudagur 7. september - Einn laus klippitími (ekki lit/strípur)
Miðvikudagur 14. september - Nokkrir lausir tímar
Miðvikudagur 21. september - Nokkrir lausir tímar
Miðvikudagur 28. september - Lausir tímar
Það er orðið troð-stút-pakkfullt í klippingum hjá mér í júní. Ég er búin að bæta tveimur kvöldum við, en þar sem mig langar líka að sjá fjölskylduna mína af og til, þá verð ég að grípa í N-orðið (sem ég forðast alla jafna eins og heitan eldinn) ef fleiri vilja sumarklippingu.
Mikið eru þetta annars mikil forréttindi - að hafa nóg að gera!
Sumarið er tíminn....
..þar sem flestir vilja vera nýklipptir og sætir! Nú bókast óðum upp tímarnir hjá mér, en ég ætla að klippa út júní og fara svo í gott sumarfrí.
Júní hljómar svona:
Miðvikudagur 1. júní: Fullbókað!
Miðvikudagur 8. júní: Fullbókað!
Miðvikudagur 15. júní: Fullbókað!
Miðvikudagur 22. júní: Fullbókað!
Miðvikudagur 29. júní: Fullbókað!
Aukadagar:
Þriðjudagur 14. júní: Fullbókað!
Þriðjudagur 21. júní: Fullbókað!
Gleðilegt sítt hár!
Er byrjuð að bóka tíma á nýja árinu. Allt fullt í kvöld, en á lausa tíma út mánuðinn :)
Er búin að troðpakka alla klippidaga í desember - en fyrir þá sem vantar herraklippingu eða barnaklippingu mæli ég hiklaust með honum Pippa mínum.
Pétur Óli, Pippi, verður við á Hár og smink (s.564-6868) frá 8. des og er algjör snillingur - strákarnir mínir hafa allir verið alsælir í stólnum hjá honum og eiginmaðurinn líka!
Click here to claim your Sponsored Listing.
Category
Telephone
Website
Address
Kópavogur
201
Opening Hours
| 18:00 - 22:00 |