Klippistofan

Klippistofan

Share

Rakarastofa í Kópavogi 💈 Herraklippingar fyrir allan aldur, góð stemning og engar tímapantanir 😎

Krakkahorn ⭐ Pool Borð 🎱 Spilakassar 🕹 Körfubolti 🏀
Og mikilvægast af öllu, flottar klippingar 💇‍♂️

06/01/2026

Í ljósi mikillar eftirspurnar ætlum við að prufukeyra dömuklippingar á Klippistofunni! Hún Izabella okkar, sem er frábær í dömuklippingum, ætlar að bjóða upp á walk-in dömuklippingar núna í janúar alla mánudaga og föstudaga. (Aðrir vikudagar bætast mögulega við en fyrst um sinn er gott að hringja og kanna hvort hún sé við þ.e. þriðjudaga-fimmtudaga). Hlökkum til að sjá viðbrögðin við þessari viðbót á þjónustu Klippistofunnar núna út janúar. Ef þú þekkir konur sem að vilja sleppa við tímabókanir, láttu orðið endilega berast 😉

31/12/2025

Starfsfólk Klippistofunnar óskar öllum gleðilegs árs og þakkar innilega öllum þeim viðskiptavinum sem heimsóttu okkur árið 2025. Hlökkum til nýja ársins með ykkur 🥰

24/12/2025

Starfsfólk Klippistofunnar óskar ykkur gleðilegra jóla. Opnum aftur kl 09:00 mánudaginn 29. desember 🎄🎄🎄

17/12/2025

Það verður alvöru jólastemning núna á föstudaginn með DJ Magga () - og auðvitað jólaklippingum! Hver fer að verða síðastur að komast í klippingu fyrir aðfangadag 🎄

❄️OPNUNARTÍMAR YFIR JÓLIN
23. des opið 9-17
24. - 28. des lokað
29. des opið 9-17
30. des opið 9-17
31.des lokað
1. jan lokað
2. jan opið 9-17
5. jan lokað

16/12/2025

Þessa vikuna er Beard Monkey á aðventuafslætti - hármótunarvörur, skeggolía, after shave, saltsprey og toner. Fullkomið í skóinn, sem viðbót í pakkann eða bara til að gera vel við sig sjálfan ✨

08/12/2025

Annar í aðventu og við fögnum því með viðeigandi vörumerki - Pasta&Love🍝❤️ Skeggolía, aftershave og stílvörur í hárið - núna á 25% afslætti út vikuna! Ekki missa af þessari yndislegu vörulínu 🎄

30/11/2025

Við ákváðum að hafa okkar afslætti tengda aðventunni þetta árið og verðum með nýja afslætti alla sunnudaga fram að jólum! Fyrsti í aðventu býður upp á Davines sjampóin, eða "apótekið" þar sem ólíkar týpur af sjampói geta gert undur fyrir allar hárgerðir ✨
Nýtið ykkur 25% afslátt fram að næstu aðventu ❤️🎄

26/11/2025

JÓLAGJAFALEIKUR ❄️
Viltu vinna fría klippingu fyrir jólin ásamt vandaðri snyrtitösku frá Dapper Dan sem inniheldur: sjampó/body wash, matt paste, saltsprey og handgerða greiðau

Heildarandvirði 23.000,- kr

Það eina sem þarf til að komast í pottinn:
1. Fylgja okkur á insta
2. Tagga vin í comment á insta
3. Like-a myndina

Dapper Dan eru nýjustu vörurnar hjá okkur og þær eru að slá í gegn, enda eru þær með söluhæstu vörum í Bretlandi!

Dregið út 5. des! 🎄
slf

02/10/2025

Í október eru davines hárstílsvörurnar á 20% afslætti - og hægt að velja það hald sem hentar þínu hári betur! Frábærar vörur sem að halda jafnvel í komandi haustlægðunum 🌧️

17/08/2025

Föstudaginn 22. ágúst heldur Klippistofan upp á 20 ára afmæli!🎉 Í tilefni dagsins verður 20% afsláttur af ÖLLUM vörum🎊 Í þokkabót verður geggjuð stemning hjá starfsfólkinu okkar og aldrei að vita nema það verði einhver extra skemmtun seinni part dags 😉 Hlökkum til að sjá ykkur í afmælisstuði næsta föstudag!

01/08/2025

Í svona raka eins og stendur yfir um helgina eru krullur ríkjandi! Þá er mikilvægt að eiga góðar krulluvörur 🌦️ Skoðið Davines vörurnar á afslætti í ágúst!

02/07/2025

Mismunandi hártýpur þurfa ólíkar hárvörur - við eigum margar tegundir hvort sem þú vilt mikið eða lítið hald, matt eða með glansi - við reddum þér með yndislegu vörunum frá Love&Pasta

Want your business to be the top-listed Hair Salon in Kópavogur?
Click here to claim your Sponsored Listing.

Category

Telephone

Address


Bæjarlind 2
Kópavogur
201

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 17:00
Wednesday 09:00 - 17:00
Thursday 09:00 - 17:00
Friday 09:00 - 17:00