Bonita snyrtistofa
Bonita snyrtistofa býður uppá allar almennar snyrtingar en leggur sérstaka áherslu á virkar an
26/05/2026
💥 NÝTT!! 💥
Thermo Slim+ líkamskremið frá Mary Cohr er öflugt grennandi krem sem framkallar varmatilfinningu til að hámarka árangur!
💫 Dregur úr sýnilegri appelsínuhúð
💫 Húðin virðist stinnari og sléttari
💫 Líkamslínur virðast mótaðri og lögulegri
Lykilinnihaldsefni
✨ Therm’activ – framkallar varmatilfinningu sem hjálpar virku efnunum að komast dýpra inn í húðina
✨ Jurtakoffín (Botanical Caffeine) – örvar fitulosun og minnkar appelsínuhúð
✨ Úrefni úr grænum kaffibaunum – eykur grennandi virkni
📍Notist daglega á vandamálasvæði.
27/04/2026
Enn streyma inn nýjar vörur hjá okkur á Bonitu. Núna vorum við að taka inn íslenska merkið dottir skin sem er nú bara lítil en mjög öflugar húðvörur.
Alda essence serum er vara sem styður endurnýjun húðar með mildri ensímvirkri húðslípun, á sama tíma og það veitir raka og örvar kollagenframleiðslu.
Svo er það sólarvörnin sem er einstaklega létt en veitir breiðvirka UV-vörn, er vatns- og svitaþolin í yfir 80 mínútur, hentar viðkvæmum húðgerðum og svíður ekki í augun. Þar að auki er hún 100% ilmefnalaus og formúlan byggð á einföldum en áhrifaríkum innihaldsefnum sem styðja við heilbrigði húðarinnar.
Síðast en ekki síst maskinn sem veitir húðinni djúpan raka, róar viðkvæma húð og styrkir ysta varnarlag húðarinnar.
15/03/2026
Meðferðin er rík af hýalúronsýru sem þéttir, sléttir og dregur úr fínum línum húðar ásamt því að gefa kröftugan raka og mýkja húðina. Meðferðin er gerð í fjórum meginskrefum: Djúphreinsun, Hydra Summum þykkni, nudd og maski
09/02/2026
Nú er aldeilis tíminn til að hugsa vel um húðina og erum við á Bonitu algjörlega á tánum með hvað við teljum það allra besta í dag.
En nú erum við að taka inn nýtt og spennandi snyrtivörumerki sem er dóttur merki Guinot sem eflaust margir þekkja en okkur fannst Mary cohr henta okkar áherslum þegar kemur að húðumhirðu.
En Mary cohr er háþróað snyrtivöru merki með yfir 40 ára reynslu.
Uppistaðan í vörum Mary Cohr eru ilmkjarnaolíur. Mary Cohr leggur mikið upp úr því að veita viðskiptavinum sínum áhrifaríkar meðferðir og vörur með einstaklega virkum innihaldsefnum.
Við á Bonitu erum mjög spenntar fyrir þessum nýjungum og hlökkum til að leyfa ykkur að njóta með okkur.
Þar sem við þurfum að rýma fyrir nýjum vörum þá eru valdar academie vörur á 20-50% afslætti og ætlum við að hafa 10% kynningar afslátt af Mary cohr vörunum, svo það er hægt að gera góð kaup af fullt af góðum vörum hjá okkur í febrúar.
31/12/2025
Með þakklæti kveðjum við 2025🩶
Árið 2026 mun Bonita snyrtistofa fagna 20 ára afmæli svo það er margt nýtt og spennandi í sigtinu fyrir árið💆🏼♀️✨
Enn og aftur takk til allra sem völdu Bonitu á árinu 🫶🏼
02/12/2025
14/10/2025
Jólapakkarnir frá Academie komnir í hús og aldrei verið eins fallegir ✨
07/09/2025
Inngróin hár ætti ekki að vera ásættanlegt vandamál.
Við á Bonitu eigum ýmislegt sem hefur sýnt mjög svo góðan árangur. En sykur skrúbbur sem gefur góðan raka ásamt því að hafa græðandi áhrif á húð og Kaoli maskinn sem hefur sótthreinsandi og græðandi eiginleika er tvenna sem hefur hjálpað hvað flestum.
Þessi tvenna verður á 25% afslætti í September.
Mæli með 🫶🏼
24/06/2025
Húðumhirðan fer með þér hvert sem er! 🧳✨
Nýja Académie Essential Travel Set tryggir húðinni raka, ró og næringu á ferðalögum.
✔️ Hypo-Sensible Skin Cleanser (40 ml)
✔️ Hypo-Sensible Toner (50 ml)
✔️ Hydrasine Youth Cream (15 ml)
🤍 Léttar og þægilegar stærðir sem passa í ferðatöskuna.
👉 Fáðu þitt á næstu Académie snyrtistofu!
22/06/2025
Nýtt gjafasett frá Academie
Augn og varakrem ásamt margnota sílikon augnpúðum.
Nærir og þéttir fínar línur.
Til að hámarka árangur er hægt að bera rúmlega af kreminu og setja svo kalda yfir og leyfa að liggja á í 20 mínútur ✨
Click here to claim your Sponsored Listing.
Category
Contact the business
Telephone
Website
Address
Hlíðasmári 4
Kópavogur
201
Opening Hours
| Monday | 09:00 - 18:00 |
| Tuesday | 09:00 - 18:00 |
| Wednesday | 09:00 - 19:00 |
| Thursday | 09:00 - 19:00 |
| Friday | 09:00 - 18:00 |