Mýminerals Iceland

Mýminerals Iceland

Share

Mýminerals vörurnar, sem eru nú í þróun, verða hágæða húðvörur unnar úr kísil og stei

Verkefnið er styrkt af Tækniþróunarsjóði, Uppbyggingar sjóði Norðurlands eystra og Landsvirkjun

Photos from Mýminerals Iceland's post 08/02/2023

Gaman að segja frá því að MýSilica hlaut styrk á dögunum frá Uppbyggingarsjóði Sóknaráætlunar Norðurlands eystra.💧✨
Við tókum við styrknum í gegnum Teams vegna veðurs en gaman var að sjá hin verkefnin sem fengu einnig styrk. Það er alveg greinilegt að það er mikill uppbyggingar- og nýsköpunarmáttur á norðurlandi. 🤩

💧Styrkurinn sem MýSilica fékk er upp á 1.500.000 kr. og fer í það að setja upp og þróa afkastameiri framleiðslubúnað í Mývatnssveit.💧
Við erum í skýjunum með þessar fréttir og hlökkum til að vinna að þessu verkefni.✨

Við þökkum kærlega fyrir okkur!🥰

Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra - SSNE

30/01/2023

Þessa dagana erum við að vinna að því að fullkomna baðbombumótin okkar. Ein af okkar fjórum vörum til að byrja með verður steinefnarík baðbomba. 🫧💧✨
Við erum svo heppnar að fá að nýta okkur aðstöðuna hjá Fab Lab Akureyri og erum við mjög þakklátar fyrir það.✨

23/12/2022

MýMinerals óskar ykkur gleðilegrar hátíðar🎄✨

Nýting á náttúruauðlind til verðmætasköpunar - verkefni lokið 30/11/2022

Ánægjulegt er að segja frá því að verkefnið okkar var styrkt af Tækniþróunarsjóður til tveggja ára og er þeim verkþáttum lokið.🔬🥳
Við þökkum Tækniþróunarsjóði kærlega fyrir stuðninginn og hlökkum til að bjóða ykkur upp á steinefnaríkar húðvörur.✨

Nýting á náttúruauðlind til verðmætasköpunar - verkefni lokið Árið 2020 hlaut MýSilica ehf Sprotastyrk Tækniþróunarsjóðs til tveggja ára fyrir verkefnið “Nýting á náttúruauðlind til verðmætasköpunar” og er því núna lokið.

Photos from Mýminerals Iceland's post 08/06/2022

Við fengum nemendur úr Reykjahlíðarskóla í heimsókn til okkar í síðustu viku og hún Sigþóra kynnti fyrir þeim það sem við erum að gera. 👩‍🔬
Börnin voru fjörug og forvitin um starfsemina. 🙋
Við þökkum þeim og kennurum þeirra kærlega fyrir komuna. 🙏

Photos from Mýminerals Iceland's post 24/05/2022

MýSilica hlaut á dögunum styrk úr sjóði Atvinnumála kvenna og veittu þær Fida og Sigþóra styrknum viðtöku við athöfn í Hannesarholti. 🎉
Við erum afskaplega þakklát fyrir þennan stuðning og innblásin af þeim krafti sem er í atvinnumálum kvenna, sérstaklega á landsbyggðinni, en í ár var kastljósinu sérstaklega beint að frumkvöðlakonum á landsbyggðinni. 👩‍🔬 Atvinnumál kvenna og Svanni-lánatryggingasjóður

Fida Abu Libdeh endurkjörin formaður SSP 05/05/2022

Við óskum Fida Abu Libdeh, stofnanda og framkvæmdastjóra MýSilica, sem er nú að undirbúa framleiðslu á MýMinerals vörunum, til hamingju með endurkjörið sem formaður Samtök sprotafyrirtækja - SSP! 👏

Samtök sprotafyrirtækja eru málsvari frumkvöðla og sprotafyrirtækja á Íslandi en hátt í 40 fyrirtækja eiga nú aðild að SSP.

Fida Abu Libdeh endurkjörin formaður SSP Fida Abu Libdeh, framkvæmdastjóri GeoSilica, var endurkjörin formaður stjórnar Samtaka sprotafyrirtækja, SSP, á aðalfundi sem haldinn var í Húsi atvinnulífsins fyrir skömmu. Auk hennar voru kjörnar í stjórn Linda Fanney Valgeirsdóttir, framkvæmdastýra Alor og Kolbrún Hrafnkelsdót...

22/04/2022

Gleðilegan alþjóðadag móður jarðar! 🌏

Alþjóðlegur dagur móður jarðar er í dag, 22. apríl, en hlutverk hans er að minna okkur á að móðir jörð og vistkerfi hennar er grundvöllur lífs okkar og lífsviðurværis. 🌱
Okkur finnst líka ágætt að láta hann minna okkur á að auðlindir jarðarinnar eru ekki óþrjótandi og að við verðum að umgangast þær af virðingu og nærgætni. 🏞
Það gerum við með því að framleiða húðvörur úr skiljuvatni sem annars væri ekki nýtt heldur látið fara út í jarðveginn, þar sem það gæti haft afskaplega slæm áhrif á hann. 💆

29/03/2022

Bakvið tjöldin / á tilraunastofunni 🔬

Þar til aðstaða okkar í Mývatnssveit verður klár erum við svo lánsöm að fá afnot af aðstöðu í Háskólinn á Akureyri 🏫, þar sem hún Sigþóra stendur þessa dagana í alls kyns tilraunum 👩‍🔬 til að fullkomna formúluna okkar áður en húðvörur MýMinerals fara í framleiðslu á næstunni.

08/03/2022

Alþjóðlegur baráttudagur kvenna er í dag ✊, en í ár er kastljósinu sérstaklega beint að framlagi kvenna og stúlkna í baráttunni gegn loftslagsbreytingum og fyrir sjálfbærari framtíð 👩👧.
Við erum afar stolt af því að hafa konu í forystu, en stofnandi og framkvæmdastjóri MýSilica, sem vinnur þessa dagana að þróun á MýMinerals vörunum, er Fida Abu Libdeh, sem hlaut hvatningarviðurkenningu FKA árið 2021 👩‍🔬.
Með því að nýta skiljuvatn frá Bjarnarflagsvirkjun í framleiðslu á steinefnaríkum húðvörum nýtir fyrirtækið áður ónýtta auðlind og dregur úr líkum á þeim slæmu áhrifum á jarðveg sem það getur haft að dæla óunnu vatninu aftur út í náttúruna 🌎.

01/03/2022

Í dag er alþjóðlegi hrósdagurinn og í tilefni dagsins hvetjum við þig til að hrósa 👏 að minnsta kosti 3 einstaklingum í dag, hvort sem það eru þínir nánustu eða einfaldlega fólk sem verður á vegi þínum 🙌.

Want your business to be the top-listed Beauty Salon in Reykjahlíð?
Click here to claim your Sponsored Listing.

Category

Address


Reykjahlíð
660