Svæðameðferð - Katla
Svæðameðferð á fótum
Löngu sumarfrí að ljúka. Er með lausa tíma. Hafði samband í skilaboðum🦶
Lausir tímar í vikunni, gott að dekra smá við sig fyrir páskafrí
28/01/2025
Bekkurinn bíður eftir þér 🦶
18/01/2025
Viltu komast í gott fótanudd. Þá á ég fullt af lausum tímum. Sendu mér skilaboð og finnum tíma
Loksins á nýju ári er bekkurinn kominn upp og ég farin að nudda á ný.
Endilega hafið samband í skilaboðum og við finnum tíma sem hentar🦶
Á lausa tíma í vikunni.
Sendu mér skilaboð og við finnum tíma sem hentar🦶😊
Ég á lausa tíma í mars.
Sendið á mig skilaboð og við finnum tíma sem hentar 🦶🦶🦶
03/01/2024
Ég vil óska öllum gleðilegs nýs árs🎆🎉
Þakka fyrir stundirnar á liðnum árum og vona að þær verðir fleiri á nýju ári.
Ég á fullt af lausum tímum núna í janúar og febrúar, endilega hafið samband í skilaboðum og við finnum tíma saman sem hentar
Kv Katla Guðrún
06/12/2023
Nú styttist óðum í jólin🎄🎅🏻
Ég á örfáa lausa tíma í næstu viku, vikuna 11-15 desember.
Einnig er ég að blanda vöðva og liðaolíu sem ég er að selja☺️
Svo tek ég jólafrí fram á nýtt ár.
Endilega ef þú villt tíma sendu mér skilaboð🎄
Eftir langt frí er ég komin aftur við nuddbekkinn.
Endilega sendu mér skilaboð og við finnum tíma sem hentar.
60 mín 7500 krónur
18/09/2022
Hæhæ
Ég heiti Katla Guðrún og útskrifaðist í apríl 2022 úr skóla og er því fulllærð í svæðameðferðarfræði.
Ég lauk rúmlega 2,5 árs námi í Svæðameðferðaskóla Þórgunnu þann 12 apríl 2022. Þaðan útskrifaðist ég sem svæðameðferðaraðili.
Að fá til sín sem flesta er mikilvægt vegna þess að það er nauðsynlegt að kunna að lesa í allar stærðir og gerðir af fótum, því engir tveir fætur eru eins.
Einn tími í svæðameðferð tekur rúmlega 60 mínútur.
Er tíminn á 8000 krónur.
Svæðameðferð eða svæðanudd er áhrifarík nuddmeðferð á fótum sem virkar fyrir allan líkamann. Fæturnir eru kortlagðir þannig að ákveðin svæði á fótum eiga sér tilsvarandi svæði í líkamanum. Meðferðin byggir einnig á svokallaðri viðbragðsmeðferð þar sem þrýst er á punkta á ákveðnum orkubrautum líkamans.
Þegar ójafnvægi eða verkir gera vart við sig hjá okkur, speglast það í tilsvarandi viðbragðssvæði á fótum. Með því að þrýstinudda þessi svæði skapast jafnvægi í líkamanum og orkuflæði eykst. það losnar um stíflur og hnúta, og líkaminn fer að hjálpa sér sjálfur. Nuddið gefur einnig góða slökun.
Svæðameðferð er afar virk aðferð til að losna við verki, og hjálpa til við að uppræta ýmsa kvilla bæði í stoðkerfi og innri líffærum, og getur m.a. hjálpað þegar um eftirfarandi tilfelli er að ræða:
Ójafnvægi í stoðkerfi, svo sem bakverkir, vöðvabólga o.fl.
Maga og meltingartruflanir
Höfuðverkur og mígreni
Ójafnvægi í hormónakerfi
Astma og ofnæmi
Exem og húðvandamál
Þreyta og slen
Hlakka til að fá vonandi sem flesta til mín, og ekki skemmir fyrir að hver tími endar á slakandi fótanuddi, það er algengt að nuddþegar nái að slaka það vel að þeir dormi smá stund eftir tímann.
Nú er ég að byrja nudda eftir sumarfrí, og eftir að ég kláraði námið.
Á eitthvað laust í september.
Endilega hafðu samband í skilaboðum og við finnum tíma🦶🏼🦶🏼
Click here to claim your Sponsored Listing.
Category
Telephone
Website
Address
Drekavogur, Reykjavíkurborg
Reykjavík
104