Dharma heilsa
Heilsunuddstofa & snyrtistofa Hver tími hjá DHARMA er endurnærandi stund fyrir bæði líkama og sál.
DHARMA er snyrtistofa og heilsunuddstofa þar sem lögð er áhersla á persónulega þjónustu og notalegt andrúmsloft með upphituðum bekkjum, slakandi tónlist og dempaðri lýsingu.
10/06/2026
Í sumar verður opið fyrir bókanir nokkra laugardaga og sunnudaga.
Við höfum þegar opnað fyrir:
Lau 13. júní
Sun 14. júní
Lau 27. júní
Sun 28. júní
Lau 11. júlí
Lau 8. ágúst
Sun 9. ágúst
Það mun að öllum líkindum verða opnað fyrir bókanir á fleiri helgardögum í sumar, það verður auglýst á story 🤩
08/06/2026
Dharma teymið fylgir þessum gildum af heilum hug 🤍
03/06/2026
Gefðu gjöf sem segir:
„Þú átt skilið stund fyrir þig – vellíðan, slökun og endurnæringu fyrir líkama og sál.“
Gjafakort frá Dharma er falleg gjöf fyrir afmæli, útskrift, brúðkaup, starfsfólk, nýbakaða foreldra eða einfaldlega hvern sem er í lífi þínu sem á gott skilið!
✨ Gjafakortin fást á Dharmaheilsa.is ✨
02/06/2026
Fyrir ykkur sem eigið erfitt með að komast í nudd á vinnutíma þá býður snillingurinn hún Saga líka upp á tíma alveg til kl.20 suma daga og einnig sýna laugardaga og sunnudaga!
Bókanir á Noona.is/dharmaheilsa
29/05/2026
🌬️
18/05/2026
Mælum með! Dharma er í afar farsælli sambúð með Samkennd í Tunguhálsinum 🤩
Samkennd - Heilsusetur Við bjóðum upp á fjölbreytta og umvefjandi þjónustu vel menntaðra fagaðila.
15/05/2026
Enn bætast við snillingar í teymið okkar!
Saga er nýútskrifaður heilsunuddari af Heilsunuddbraut FÁ. En það er gríðarlega yfirgripsmikið og fjölbreytt nám sem spannar 2 verklegar annir eftir að grunnfögum í bóklegu námi er lokið. Að því loknu þurfa nemendur svo að nudda í samtals 450 klst til að mega útskrifast sem heilsunuddarar.
Saga er frábær heilsunuddari og er jafn góð í þéttu djúpvefjanuddi og nærandi slökunarnuddi. Hún leggur sig alla fram um að nuddþeganum líði vel og nuddar af alúð og umhyggju. Hún er með afar góða nærveru og fær okkar allra bestu meðmæli! Hún býður upp á klassískt nudd, djúpvefjanudd og slökunarnudd og hægt er að bóka tíma hjá henni á Noona.is/dharmaheilsa
01/05/2026
Þórir er orðinn fullmenntaður heilsunuddari þar sem hann hefur nú lokið öllum verklegum áföngum og klárað þá 450 nuddtíma sem krafist er til útskriftar. Við óskum honum innilega til hamingju með áfangann og erum afar stolt af því að hafa hann í teyminu okkar! Þórir er virkilega góður heilsunuddari og hefur hjálpað svo mörgum af okkar viðskiptavinum síðan hann byrjaði að nudda hjá okkur í september í fyrra. Nuddin hjá honum munu nú vera á fullu verði í stað nemaverðs.
Ps. Heilsunuddaranámið er alveg gríðarlega yfirgripsmikið og fjölbreytt nám í FÁ sem spannar 2 verklegar annir eftir að grunnfögum í bóklegu námi er lokið. Fyrir utan ítarlega þekkingu í vöðva- og hreyfifræði læra heilsunuddarar klassískt nudd, svæðanudd, heildrænt nudd, sogæðanudd, íþróttanudd, þrýstipunktanudd, vefjalosun, triggerpunktameðferð, höfuðbeina- & spjaldhryggjarmeðferð, íþróttateipingar og ilmolíufræði. Og að öllu því loknu þurfa þau að nudda í samtals 450 klst til að mega útskrifast sem heilsunuddarar.
Gott ráð fyrir silkimjúkar hendur 👐🏼
1. Olía - ég nota castor oil frá Now
2. Sykur
3. Handáburður - ég nota Iceherbs handáburðinn
11/03/2026
PARANUDDNÁMSKEIÐ
Námskeið fyrir pör sem vilja læra að nudda hvort annað á herðum, hálsi og höfði. Markmið námskeiðsins er ekki eingöngu að kenna fólki að nudda vel heldur líka að beita sér þannig að fingurnir, og sérstaklega þumlarnir, verði ekki útkeyrðir á nokkrum mínútum. Kennslan fer fram í Samkennd Heilsusetri.
Næstu námskeið eru:
12.apríl kl.18-21 - 3 laus pláss.
17.maí kl.18-21 - 1 laus pláss.
Skráning fer fram á https://dharmaheilsa.is/voruflokkur/namskeid/
ATH. EF ÞIÐ HAFIÐ KOMIÐ ÁÐUR Á SVONA NÁMSKEIÐ OG VILJIÐ RIFJA UPP MEÐ ÞVÍ AÐ KOMA AFTUR ÞÁ FÁIÐ ÞIÐ 25% AFSLÁTT MEÐ KÓÐANUM "AFTUR".
Click here to claim your Sponsored Listing.
Category
Contact the business
Telephone
Address
Tunguhálsi 19
Reykjavík
110