ANNA LÍF
ANNA LÍF framleiðir náttúruleg SMYRSL úr íslenskum lækningajurtum. SMYRSL - TE - KRYDD má nota við kvefi.
„Anna Líf“ – sagan
Íslenska náttúran er hrein og tær og alveg einstök í heiminum. Íslenskar lækningajurtir mætti nota miklu meira við lyfjagerð á Íslandi.
Íslensk náttúra hefur heillað mig alla tíð en í kring um 1985 rakst ég á grein eftir Björn Halldórsson frá Sauðlauksdal, úr bók hans „Gras-nytjar, Kaupmannahöfn 1783“, um notkun jurta. Þá kom upp í huga minn ýmislegt það ég heyrði sem barn í sveitinni um íslenskar nytjajurtir sem notaðar voru bæði til að lækna minni háttar mein og til hollustu og hressingar. Jurtir voru einnig notaðar til að lita ullina og fatnað almennt og til að gera góða lykt í húsum. Nefni ég nokkrar jurtanna sem ég heyrði mest talað um, en það voru fjallagrös, blóðberg, hvönn/hvannarrót, haugarfi, vallhumall, rjúpnalauf ásamt birkinu (íslenska fjalldrapanum). Þá má einnig nefna berin okkar, aðalbláber, bláber, krækiber og hrútaber og einiber.
Ég rakst einnig á gamalt kver um íslenskar jurtir „Lítil ritgjörð“ um nytsemi nokkurra íslenskra jurta eftir ýmsa höfunda frá 1880. Samantekið af Jóni Jónssyni garðyrkjumanni.
Þá kviknaði neistinn hjá mér á þessum fjársjóði okkar íslendinga, hvernig ég gæti nýtt mér hann.
Ég fór að sækja ýmis fræðslunámskeið um íslenskar jurtir, m.a. hjá grasalæknum og lyfjafræðingum og viðaði að mér upplýsingum úr ýmsum áttum. Þetta heillaði mig svo mjög að ég fór að búa til smyrsl til eigin nota og sem ég gaf ættingjum og vinum og virkaði vel.
Ég týni jurtirnar í hreinni ómengaðri íslenskri náttúrunni. Engin aukaefni né rotvarnarefni eru í smyrslunum og samsetningin er mjög einföld. Smyrslin eru mýkjandi og má nota á exem og sár alls konar og sem varasalva. Ég bý einnig til te til hressingar sem t.d. Krydd úr íslenskum jurtum er mjög gott.
Þannig varð Anna Líf til árið 2008.
Click here to claim your Sponsored Listing.
Category
Contact the business
Telephone
Website
Address
Reykjavík