Fótaaðgerðastofa Soffíu
Fótaaðgerð Fótaaðgerð er löggild heilbrigðisstétt og gefur Embætti Landlæknis út starfsleyfi.
Fótaaðgerð er meðferð á fótameinum fyrir neðan ökkla, þ.e. á yfirborði húðar og tánöglum. Í starfi fótaaðgerðafræðinga felst:
• skoðun á hreyfigetu og álag á fætur, ástand húðar og nagla metin.
• klipping og þynning tánagla
• fjarlægt sigg og líkþorn
• vörtumeðferð
• meðferð á inngrónum tánöglum m.a. með
10/07/2026
En spennó! 🦶🏼🦶🏼🦶🏼🦶🏼🦶🏼🦶🏼
14/03/2026
Oft á tíðum stendur fólk upp á sviði og enginn sér hvað fór fram í innra brjósti þess rétt áður en það steig upp. Ég var í alvörunni alveg við það að hætta við á síðustu stundu. Efasemdirnar voru margar og röddin í hausnum spurði hvort ég væri tilbúin. En ég ákvað samt að stíga upp á svið.
Ég er ótrúlega stolt af sjálfri mér fyrir að hafa púslað þessum fyrirlestri saman, með dyggri aðstoð, og koma fram í hringsalnum á aðalfundi SUMS. Á sama tíma lærði ég ýmislegt sem ég mun gera öðruvísi og bæta fyrir næsta fyrirlestur, því þetta er líka ákveðið ferðalag þar sem ég er stöðugt að læra, vaxa og dafna.
Fótaaðgerðafræði er málefni sem liggur mér nærri hjarta og eitthvað sem ég brenn fyrir. Frá því í fyrrasumar, þegar ég tók meðvitaða ákvörðun um að hafa meiri áhrif og fræða samfélagið um mitt starf og mína stétt, hef ég náð miklu lengra á styttri tíma en ég sá fyrir mér, sem er jákvætt. Loksins núna er þessi drifkraftur að skila sér til góðs.
Eins og staðan er í dag þá sit ég í stjórn sem ritari hjá Fótaaðgerðafélaginu, er stundakennari í Fótaaðgerðaskólanum í Fjölbrautarskóla Suðurnesja, hef birt grein (MbL.is) og hef nú haldið minn fyrsta fyrirlestur fyrir SUMS á Landspítalanum við Hringbraut.
Viðbrögðin sem ég fékk í salnum snertu mig djúpt. Þótt beðið hefði verið um að spurningar biðu þar til í lokin, var áhuginn það mikill að fólk g*t einfaldlega ekki beðið. Það myndaðist lífleg og skemmtileg umræða á fyrirlestrinum og greinilegt að fótaaðagerðarfræði er málefni sem þarf að ræða.
Ég er meyr og ótrúlega þakklát. 💗
19/02/2026
Geturðu fundið eina villu? 🫶🏼🩵🫶🏼🩵
30/12/2025
10/12/2025
Fróðleiksmoli fyrir þjóðina
26/11/2025
Í dag fékk ég yngsta skjólstæðinginn minn á þessum ellefu árum í starfi. Hann fór ekki í stólinn heldur beint í fangið á mér, enda aðeins tíu vikna gamall. Eins og ég hef oft sagt þá erum við fótaaðgerðafræðingar með skjólstæðinga á öllum aldri. Það var einstaklega notalegt að fá að halda á þessari litlu dásemd. 💙💙💙💙💙💙
Sætustu tásur ever! Alveg eins og litlir konfektmolar 🍬🍬🍬🍬
14/11/2025
Skjólstæðingar sem leita til fótaaðgerðafræðinga eru á öllum aldri, allt frá börnum til eldra fólks sem þarf reglubundna aðstoð við umhirðu fóta.
Leó, fjögurra ára drengur sem æfir knattspyrnu, kom í fótaaðgerð vegna inngrónna nagla á báðum stóru tám. Í upphafi var hann nokkuð kvíðinn og óöruggur, en með rólegri fræðslu, skýrum útskýringum og faglegri nálgun tókst að skapa traust og gott samstarf.
Eftir aðgerðina fann Leó strax fyrir létti og kvíðinn sem fylgdi honum í byrjun hvarf. Hann sýndi jafnvel strax áhuga á að koma aftur, sem endurspeglar hversu mikilvægt það er að nálgast börn af þolinmæði, skýrleika og öruggri fagmennsku.
Þessi reynsla sýnir einnig að vel útfærð fótaaðgerð getur haft jákvæð áhrif á upplifun ungra skjólstæðinga og hjálpað þeim að upplifa heilbrigðisþjónustu sem örugga og jákvæða. Með réttri nálgun má draga úr ótta og stuðla að árangursríkri og farsælli meðferð.
Click here to claim your Sponsored Listing.
Contact the business
Telephone
Website
Address
Hrafnista Laugarás/Brúnavegi 13
Reykjavík