Lífvera
Lífvera (e. Lifeline) is a new company focusing on helping people to monitor and have a systematic health check and reducing risks of serious illness.
Í stuttu máli líkjum við lausn Lífveru við samblandi af „Meniga fyrir heilsuna“ og „Bifreiðaskoðun líkamans“. Þetta er vísun í þau tvö kjarnasvið þjónustunnar, að halda utan um heilsugögn og stuðla að reglulegu eftirliti með heilsunni.
Lífvera mun hjálpa fólki með kerfisbundnum hætti að fylgjast með heilsufari sínu og fjölskyldu sinnar. Þannig mun Lífvera halda utan um heilsufarsmælingar og ráðleggja fólki um læknifræðilegar skoðanir. Markmið Lífveru er að minnka líkur á alvarlegum sjúkdómum eða auka líkur á að þeir uppgötvist snemma.
Við erum ekki eingöngu á fullu við að undirbúa teymið undir lokahnykk Gulleggsins. Við erum í óðaönn við að leggja drög að nýrri heimasíðu og stefnum við á að koma henni í loftið sem allra fyrst. Við látum ykkur vita um leið og þið getið kíkt þar inn.
Fylgist með hér á FB.
07/03/2016
Næstkomandi laugardag mun Lífvera taka þátt í úrslitum um Gulleggið árið 2016 og í tilefni af því heldur Kjarninn utan um val fólksins. Við hvetjum alla til þess að fara þarna inn og skoða hugmyndirnar og jafnvel gefa Lífveru sitt atkvæði :-)
Hugmynd okkar að Lífvera hefur fengið frábærar undirtektir. Verkefnið hefur mikla möguleika á að verða mikilvægur þáttur í því að bæta lýðheilsu og fyrirbyggja alvarlega sjúkdóma í framtíðinni og það ekki bara á Íslandi.
http://kjarninn.is/kjarninn/2016-02-29-gulleggid/
Jæja það er nú ekki svo að Lífveru verkefnið hafi dáið drottni sínum þó lítið hafi frést af okkur á þessum vettvangi. Verkefnið hefur gengið í endurnýjun lífdaga undir formerkjum Gulleggsins og er nú komið í 10 liða undankeppni. Við munum færa hér inn fréttir af þróun mála og fróðleik um heilsueflingu. Fylgist með!
Með aukinni vitund um heilsu okkar, næringu og hina ýmsu sjúkdóma hefur fólk í auknum mæli farið að huga að leiðum til að koma í veg fyrir eða draga úr líkum þess að þróa með sér sjúkdóma eins og til dæmis krabbamein eða sykursýki svo dæmi séu tekin.
Einn lykilþáttur þess að draga úr líkum á alvarlegum sjúkdómum er að fylgjast með helstu þáttum heilsu sinnar sem og reglulegar skoðanir hjá læknum. Með þessu verður fólk meira vakandi fyrir hugsanlegum breytingum sem gætu bent til heilsufarsvandamála.
Þarna kemur Lífvera inn, með okkar þjónustu gerum við fólki kleyft að fylgjast með og halda utan um mikilvægar upplýsingar varðandi heilsu þess eins og til dæmis blóðþrýsing, blóðsykur, lyfseðla og fleira.
Enn fremur veitum við sérhæfða, einstaklingsmiðaða þjónustu fyrir hvern og einn og hjálpum viðkomandi að setja sér markmið um ákveðna þætti um heilsu sína sem og gera áætlun um mikilvægustu skoðanir eins og krabbameins skoðanir og fleira.
With increasing general knowledge about health, nutrition and diseases, people tend to think more about how to prevent serious diseases and increase their lifespan.
One of the key elements in preventing serious disease is monitoring your general well being and to have a systematic, regular health check. By doing so people are better aware of any changes that might be a cause for concern for their general health.
This is where Lifvera comes in, with our help people will be able to monitor and store data on their general well being including blood pressure, blood sugar levels, prescriptions etc.
Furthermore we provide personalised services, helping people setting goals regarding certain aspects of their health and map out their health checks like when to go to cancer check ups and more.
Click here to claim your Sponsored Listing.
Category
Website
Address
Reykjavík
101