Rakarastofa Ragnars og Harðar
Höfum sérhæft okkur í snyrtingu á hári, skeggi og í rakstri frá árinu 1957.
26/03/2026
Appelsínugular viðvaranir!!
Rakarinn mætti snemma í morgun. Það er opið en við mælum auðvitað með að fylgja fyrirmælum og fylgjast með fréttum. Vinsamlega afbókið ef þið komið ekki. Eigið góðan dag öll.
03/11/2025
Þetta er heimsborgarinn og afmælisbarn dagsins hann Atli hann ætlar að vera með okkur í nokkra mánuði. Hann hefur verið hjá okkur áður og rekið stofu á Kex og einnig stofuna Fólka. Hann er flottur fagmaður með fullt af reynslu.
Það ætti því ekki að vera erfitt að komast í klippingu hjá okkur á næstunni.
Til hamingju með afmælið Atli og velkominn til okkar. Hægt er að bóka hjá honum á Noona - Núna
02/11/2025
Við bjóðum Gulla velkominn aftur til starfa.
Hann er með meira en áratuga reynslu á bakinu og frábær fagmaður. Bókið hjá honum á Noona - Núna
23/08/2025
05/08/2025
Leitum að hressum og skemmtilegum fagmönnum. Lofum stanslausu stuði og allskyns óvæntum uppákomum. Hér er líf og fjör.
27/04/2025
Lokað verður hjá okkur þriðjudaginn 29. apríl vegna jarðarfarar Jónu Kjartansdóttur sem var eiginkona Harðar og móðir Ragnars.
Jóna sinnti öllum störfum á rakarastofunni nema að klippa hár. Hún hellti uppá kaffi, sópaði, fór í bankann, útbjó hádegisverð, svaraði í símann og sá um þrif svo eitthvað sé nefnt í nærri hálfa öld.
Blessuð sé minning hennar.
27/01/2025
Sumir eru alltaf í boltanum og aðrir eru “alltaf” í Mogganum.
03/12/2024
Við fengum góða gesti og minnum á að jólin eru á næsta leiti 🎅🏻
Í dag leggur Víðsjá leið sína á rakarastofu í Reykjavík til þess að hitta þau Sólveigu Sigurðardóttur og Þórhall Auð Helgason, söngvara og forsprakka sviðslistahóspins Óðs, sem sem sýnir nú Rakarann frá Sevilla í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll.
27/11/2023
Jólin eru að koma og því opnast fyrir bókanir hjá okkur 4 daga fram í tímann frá 1 - 31. desember.🎅🏻
Click here to claim your Sponsored Listing.
Category
Contact the business
Telephone
Address
Vesturgötu 48
Reykjavík
101
Opening Hours
| Monday | 08:30 - 18:00 |
| Tuesday | 08:30 - 16:00 |
| Wednesday | 08:30 - 18:00 |
| Thursday | 08:30 - 18:00 |
| Friday | 08:30 - 18:00 |