Heilsa og Spa
Heilsa & Spa er núna Yoga&Heilsa og við bjóðum uppá opna jógatíma og námskeið í Síðumúla 15.
21/06/2021
Alþjóðlegi jógadagurinn og þá hefjum við smá leik
Okkur langar til að bjóða ykkur í leik þar sem við æfum okkur í að huga að okkur sjálfum án áreitis. Kyrrum flöktið sem er það sem Yoga stendur fyrir. Við ætlum að setja okkur þann ásetning að á hverjum degi ætlum við að loka á áreiti í x mínútur og hverfa inn á við í 21 dag samfellt. Með því að mæta í jógatíma ertu að sjálfsögðu að uppfylla ásetninginn 😊 en þegar þú kemst ekki í tíma ætlarðu að finna þína leið og þinn tíma til að vera með sjálfri/sjálfum/sjálfu þér og útiloka annað. Þetta má td gera með stuttri hugleiðslu, garðvinnu eða síma- og snjallúralausum göngutúr.
Við létum útbúa armbönd fyrir Yoga&Heilsu og ef þið viljið styðjast við armböndin í leiknum þá endilega látið okkur vita og þið fáið armbandið afhent í næsta jógatíma. Fyrstur kemur, fyrstur fær!
Leikurinn er þannig að við byrjum með armbandið td á vinstri hönd og þá daga sem við hverfum inn í kúluna okkar færum við armbandið yfir á hina höndina og þannig gengur þetta í 21 dag. Ef við gleymum einum degi þá má byrja aftur upp á nýtt að telja, frá 1.
Þeir sem vilja geta fengið hvatningu og hugmyndir inni í Facebook-hópnum: "Yoga&Heilsa 21 kyrrum hugann" og kvittað daglega með “hægri2”, “vinstri3”, “kvitt14” eða hvaðannað sem ykkur dettur í hug.
Ekki skemmir að armböndin eru sumarleg og sæt og geta vakið skemmtilega umræðu 🙏💕😃
26/04/2021
Yoga&Heilsa, yogastúdíóið okkar í Ármúla 9, býður frábært tilboð á áskrift í yoga. Aðeins 11.900 kr á mánuði fyrir fullt af dásamlegu yoga ásamt aðgang að spainu og tækjasalnum 🙏
Tilboð Yoga í áskrift, 11.900 kr á mánuði Við bjóðum uppá yogatíma alla daga vikunnar í hlýlegu umhverfi þar sem allir eru velkomnir. Við kennum í litlum hópum og leggjum áherslu á persónulega og faglega …
Á Facebook síðu Yoga&Heilsu getið þið fengið allar upplýsingar um yogatímana sem eru í boði í Ármúla 9. Endilega setið "like" á síðuna þeirra svo að þið missið ekki af öllu því frábæra yoga sem er þær bjóða uppá 🙏
https://www.facebook.com/yogaheilsa
Yoga & Heilsa Yoga & Heilsa er hlýlegt og vinalegt yogastúdíó í Faxafeni 10. Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval af yogatímum, persónulega kennslu og leggjum mikla áherslu á að hver og einn geti fundið yoga við sitt hæfi.
Click here to claim your Sponsored Listing.
Website
Address
Síðumúla 15
Reykjavík
108
Opening Hours
| Monday | 11:40 - 20:00 |
| Tuesday | 11:40 - 20:00 |
| Wednesday | 11:40 - 20:00 |
| Thursday | 04:30 - 20:00 |
| Friday | 11:40 - 20:00 |
| Saturday | 10:15 - 12:00 |
| Sunday | 10:15 - 13:00 |