Lotusþjalfun

Lotusþjalfun

Share

Þjálfun, Námskeið

22/09/2026

🎙️ Nýr podcast þáttur kominn á Spotify!

Ég fékk að setjast niður með Lukku & Jóhönnu Vilhjálms í Heilsuhlaðvarpinu og ræða um fasciu, Human Garage og mína eigin vegferð ✨

Við tölum um líkamann, tenginguna við fasciuna og hvað þessi vegferð hefur kennt mér. ❤️

Þátturinn er kominn inn á Spotify 🎧
Endilega hlustið og segið mér hvað ykkur finnst

02/09/2026

Á Health for the Future fæ ég tækifæri til að deila með ykkur minni persónulegu sögu og vegferð. Ég mun segja frá reynslu minni af því að lifa með langvinna verki, þeim áskorunum sem hafa mætt mér og því sem hefur hjálpað mér að byggja mig upp aftur, endurheimta styrk og finna leiðina að virkari og innihaldsríkari lífi.

Ég lifi með ATN, taugasjúkdóm sem hefur valdið mér miklum og langvinnum verkjum. Vegferðin hefur verið löng og á köflum mjög erfið. Þegar líkaminn er stöðugt í verkjum breytist svo margt. Hreyfing, svefn, orka, öryggi og hlutir sem áður þóttu sjálfsagðir geta allt í einu orðið að áskorun. Langvinnir verkir hafa ekki aðeins áhrif á líkamann heldur á allt lífið.

Á þessari vegferð hef ég þurft að kynnast líkama mínum upp á nýtt.

Í gegnum árin hef ég leitað leiða til að skilja betur hvað væri að gerast í líkama mínum og hvað gæti hjálpað mér áfram. Ég hef lært, prófað, rannsakað og hlustað — og smám saman öðlast dýpri skilning á tengslunum á milli verkja, taugakerfisins, bandvefsins og hreyfingar.

Það hefur ekki verið ein töfralausn eða bein leið frá veikindum yfir í bata. Þetta hefur verið ferli, með framförum og bakslögum, þar sem ég hef þurft að læra að vinna með líkamanum í stað þess að berjast stöðugt gegn honum.

Bandvefsvinna og hreyfing hafa verið mikilvægir þættir í þeirri vegferð. Með tímanum hef ég náð að byggja mig upp, endurheimta meiri virkni og styrk og skapa mér aftur virkt og innihaldsríkt líf.

Reynslan hefur jafnframt breytt því hvernig ég starfa með öðrum.

Í dag mætast tvær hliðar í starfi mínu: fagleg þekking mín og mín eigin reynsla af því að vera manneskjan sem lifir í líkama með langvinna verki. Ég veit hvernig það er þegar líkaminn setur manni mörk sem maður bað ekki um. En ég þekki líka þá tilfinningu þegar eitthvað fer loksins að breytast og maður finnur aftur von, styrk og traust á eigin líkama.

Þetta verður alþjóðleg þriggja daga ráðstefna í IÐNÓ í Reykjavík, 18.–20. september

🇮🇸 Fyrir íslenska gesti er 33% afsláttur af ráðstefnumiðum með kóðanum ICELAND33.

healthforthefuture.is

16/08/2026

Fascial Maneuvers

Fascial Maneuvers® eru mjúkar og markvissar hreyfingar sem vinna með bandvef líkamans (fasciu). Fascia tengir saman vöðva, liði og önnur líffæri og gegnir mikilvægu hlutverki í hreyfingu, líkamsstöðu og almennri vellíðan.

Líkaminn er ein heild. Þegar bandvefurinn fær að hreyfast frjálst geta vöðvar, liðir og taugakerfi unnið betur saman. Fascial Maneuvers® eru hreyfingar sem hjálpa líkamanum að losa um spennu, bæta hreyfigetu og styðja við náttúrulega getu hans til endurheimtar.

Þegar spenna, álag eða meiðsli hafa áhrif á fasciuna getur það valdið verkjum, stirðleika eða takmörkun á hreyfigetu. Í tímunum eru framkvæmdar markvissar hreyfingar sem miða að því að auka hreyfanleika bandvefsins, draga úr spennu og styðja við eðlilegt flæði og hreyfingu líkamans.



Tímarnir geta meðal annars hentað þeim sem:

finna fyrir langvarandi vöðva- og liðverkjum,
upplifa stirðleika eða skerta hreyfigetu,
vilja losa um spennu sem hefur safnast upp vegna vinnu, íþrótta eða daglegs álags,
vilja auka líkamsvitund og styðja við almenna vellíðan.


Markmið tímanna er að gefa líkamanum tækifæri til að hreyfast á náttúrulegan hátt, losa um spennu og stuðla að meira jafnvægi, aukinni vellíðan og frjálsari hreyfingu

Skráning hér👇
https://lotusthjalfun.is/products/naskeid-fascial-maneuvers

04/08/2026

Hæ, ég heiti Ingunn Ragna

Á bak við Lotusþjálfun er einföld hugmynd – að hreyfing eigi að vera eitthvað sem lætur okkur líða vel, ekki eitthvað sem við óttumst.

Í næstu viku hefst nýtt námskeiðstímabil og ég er full tilhlökkunar að hitta bæði ný andlit og ykkur sem hafið verið með mér áður. Takk fyrir traustið – það er það sem gerir þetta allt svo skemmtilegt 🫶

13/07/2026

Líkaminn er hannaður til að snúast, beygjast og flæða – ekki bara halda sér uppréttum 🙏

12/07/2026

Líkaminn elskar góða hreyfingu, mýkt og slökun. 💜

Nú er opið fyrir skráningar í Bandvefslosun & Hreyfiflæði og við hefjum nýtt námskeið 10. ágúst.

Ég hlakka til að taka á móti ykkur.

Skráning á https://lotusthjalfun.is/products/namskeid?variant=47993301827812

09/06/2026

Alena

I am a holistic therapist specializing in Traditional Thai Massage, Tok Sen therapy, and Sound Healing. My passion is helping people reconnect with their bodies, release tension, and restore a sense of balance and well-being.

Through years of practice and continuous learning, I have developed a deep respect for the body’s natural ability to heal when given the right support. My work combines ancient healing traditions with a compassionate, intuitive approach tailored to each individual.

Traditional Thai Massage and Tok Sen work with the body’s energy pathways, helping to release physical restrictions, improve circulation, and restore the natural flow of energy. Sound Healing creates a space for deep relaxation, allowing the nervous system to slow down and the body to enter a state of restoration.

Each session is designed to support you on a physical, emotional, and energetic level. Whether you are experiencing stress, fatigue, chronic tension, or simply seeking a deeper connection with yourself, my intention is to provide a safe and nurturing space where healing can naturally unfold.

I believe that true well-being comes from feeling at home in your body. My goal is not only to help relieve discomfort, but to support you in rediscovering vitality, inner balance, and a greater sense of connection with yourself.

Hægt er að bóka hér 👇

https://noona.is/alonaholisticbodywork
I look forward to welcoming you and supporting you on your journey toward greater health, relaxation, and well-being.

05/05/2026

🌿 Laust meðferðarherbergi 🌿

Við hjá Lotusþjálfun bjóðum upp á notalegt og rólegt meðferðarherbergi til leigu.
Rýmið hentar vel fyrir þig sem vinnur með:�✨ Nudd�✨ Heilsumeðferðir�✨ Sálræna vinnu eða ráðgjöf�✨ Orkuvinnu eða aðra nærandi meðferð

Við leggjum áherslu á gott flæði í rýminu og leitum að aðila sem passar inn í rólega og nærandi stemningu staðarins.

Staðsetning Hátún 6B
Laust 1. Júní
Fylgjir pláss á heimasíðu & bókunarkerfi

Nánari upplýsingar á [email protected]

Lotus Þjálfun 21/04/2026

Nú er opið fyrir bókanir hér 👇

Lotus Þjálfun Finndu næsta lausa tímann á Sinna.is

Want your business to be the top-listed Beauty Salon in Reykjavík?
Click here to claim your Sponsored Listing.

Category

Address


Hátún 6B
Reykjavík
105

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Lotusþjalfun posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Subscribe

We will notify you when anything happens in Reykjavík.