Húðfegrun
Náttúrulegar húðmeðferðir án skurðaðgerðar framkvæmdar af lækni, hjúkrunarfræðingum og öðrum sérþjálfuðum fagaðilum.
Húðfegrun er húðmeðferðarstofa sem sérhæfir sig í heildrænum húðmeðferðum án skurðaðgerða. Stofan hefur verið starfrækt í yfir 20 ár og bíður upp á faglega og persónulega þjónustu. Húðfegrun býður upp á fjölbreyttasta úrval landsins af húðmeðferðum.
• Laserlyfting
• Gelísprautun
• Húðslípun
• Dermapen
• Fitueyðing
• Húðþétting
• Háreyðing
• Augnlyfting
• Hollywood Glow
• Húðgreining
• Laser Peeling
• Tattooeyðing
• Appelsínuhúð (Cellulite)
• Litabreytingar
• Ör og húðlit
• Háræðaslit og rósroði
• Sveppaeyðing
• Húðsepar og vörtur
21/09/2026
Húðin þín á allt það besta skilið ✨
Við trúum á að byrja tímanlega, vinna markvisst og hugsa um húðina til lengri tíma, með áherslu á heilbrigði og náttúrulegan árangur.
Starfsfólk Húðfegrunar fór á frábæran og fræðandi og viðburð á vegum .is 💙
Fræðsla um örnálameðferðir með og , þar sem farið var yfir nýjustu áherslur og möguleika í meðferðinni.
Dermapen meðferðin okkar hefur þróast mikið og með nýjungum frá DermapenWorld getum við nú nálgast húðina enn markvissar og sérhæfðari, meðal annars með sérvöldum MG serumum.
Það skiptir okkur miklu máli að halda áfram að efla þekkingu okkar ásamt því að tileinka okkur nýjungar. Þannig við getum ávalt veitt viðskiptavinum okkar bestu þjónustuna sem byggir á nýjustu þekkingu og aðferðum.
16/09/2026
Loksins komið til okkar! Nýja Phyto Corrective PDRN Serum frá SkinCeuticals✨
Serumið róar húðina samstundis, dregur úr roða í húð og hentar húð sem er gjörn á að fá bólur.
Öflug samsetning virkra innihaldsefna:
- Biotech PDRN – styður viðgerð og endurnýjun húðvarnarlags
- Ectoin 0,2% – róar húðina samstundis
- Rakabindandi Tripeptíð-8 (með glýseríni og hýalúrónsýru) – Dregur úr ertingu, róar húðina og viðheldur raka í allt að 48 klst.
- Phyto Botanical Blend – jurtablanda gegn ertingu
Þessi öfluga formúla styður við árangur húðmeðferða og er jafnframt fullkomin sem hluti af daglegri húðumhirðu
Þú færð þitt Phyto Corrective PDRN Serum hjá okkur í vefverslun & Vegmúla 2✨
11/09/2026
NEAUVIA NLINE ❤️
Húðvörur sem styðja við húðina fyrir, meðan á meðferð stendur og eftir meðferð.
NLINE línan passar vel inn í daglega húðrútínu og styður við árangur meðferða. Vörurnar eru þróaðar á grundvelli vísindalegrar þekkingar með það að markmiði að næra, vernda og styrkja húðina.
10/09/2026
NOKKRAR SKEMMTILEGAR MYNDIR FRÁ FRÁBÆRUM VIÐBURÐI ✨
Viðburðurinn var tileinkaður nýrri sýn á húðheilsu og langtímaárangur, með fræðslu, samveru og góðri stemningu.
Við erum svo þakklát fyrir þennan frábæra hóp samstarfsaðila sem kom og átti stundina með okkur 🤍
Takk fyrir komuna og takk Veronika Guls fyrir að fanga stemninguna svona fallega 📸✨
NÝ SÝN Á HÚÐHEILSU ✨
Yndislegt kvöld þar sem við ræddum húðheilsu, langlífi húðar og mikilvægi þess að hugsa um húðina til lengri tíma.
Við fengum að deila okkar sýn á fyrirbyggjandi húðmeðferðir, persónulega meðferðaráætlanir og hvernig við getum stutt við húðina þegar til lengri tíma er litið✨
06/09/2026
Teymið sér glaðan dag saman í gær💚✨
Tónheilun hjá elsku Helgi Omarsson, spa, brunch og góð samvera 💕
Endurnærðar og tilbúnar í komandi viku ✨
02/09/2026
✨Laserlyfting með ClearLift frá Alma Lasers✨
5 hlutir sem þú þarft að vita um Laserlyftingu:
✨ Enginn batatími
Raskaf ekki yfirborði húðarinnar - þú getur haldið áfram með daginn strax eftir meðferð.
✨ Vinnur undir yfirborðinu
Laserinn vinnur í dýpri lögum húðarinnar án þess að rjúfa yfirborð hennar og örvar kollagenmyndun.
✨ Þéttari húð og mýkri línur
Örvar kollagen og getur hjálpað til við að bæta þéttleika, fyllingu og áferð húðarinnar.
✨ Jafnari húðlitur og áferð
Getur hjálpað til við að draga úr sýnileika litabreytinga, roða og svitahola.
✨ Fljótleg og þægileg
Meðferðin tekur um 30 mínútur og flestir upplifa aðeins vægan hita.
Hentar öllum húðgerðum og má framkvæma allt árið um kring.🤍
26/08/2026
NÝTT✨Dermapen meðferð með sérsniðnu serum úr MG Collection.
Nú getum við sérsniðið Dermapen-meðferðina enn betur að húðgerð, húðástandi og markmiðum hvers og eins.
HYLA ACTIVE er áfram okkar grunnserum fyrir raka, jafnvægi og endurheimt húðarinnar.
Með MG Collection frá DP Dermaceuticals getum við unnið markvissar að ákveðnum húðeinkennum og þörfum💚
25/08/2026
Háræðaslit ✨
Háræðaslit geta komið fram bæði í andliti og á fótleggjum og verið sýnileg sem litlar rauðar eða fjólubláar æðar í húðinni.
Með öflugri lasertækni frá Alma Lasers er hægt að meðhöndla sýnileg háræðaslit og draga úr útliti þeirra. Laserinn beinist að hemóglóbíni í blóðinu og veldur því að æðarnar dragast saman og lokast smám saman.
Innbyggð kælitækni eykur þægindi meðan á meðferð stendur og hjálpar til við að draga úr óþægindum, roða og bólgum eftir meðferð.
Meðferðin er framkvæmd af lækni og hjúkrunarfræðingum🤍
Click here to claim your Sponsored Listing.
Category
Contact the business
Telephone
Website
Address
Vegmúli 2
Reykjavík
108
Opening Hours
| Monday | 09:00 - 18:00 |
| Tuesday | 09:00 - 18:00 |
| Wednesday | 09:00 - 18:00 |
| Thursday | 09:00 - 18:00 |
| Friday | 09:00 - 18:00 |