Hjá Sigga Hárskera
Hjá Sigga Hárskera Hjá Sigga hárskera er 50.ára gömul rakarastofa staðsett í hjarta laugardalsins. Símanúmerið er 553-1390.
Siggi hárskeri stóð þar vaktina frá árinu 1964-2013 og síðan keyptu ung hjón úr laugardalnum stofuna og buðu nýja sem og gamla viðskiptavini velkomna. Sumarið 2014 tók Heiður Óttarsdóttir við Sigga Hárskera, Heiður er vel þekktur hársnyrtir og býr yfir áralangri reynslu, hún er fagmaður fram í fingurgóma og hver sem til hennar kemur að mun upplifa hennar töfra og einstöku hæfileika. Heiður hefur búið í hverfinu okkar í mörg ár og ættu því margir nágrannar að verða ánægðir með að sjá annað kunnulegt andlit bakvið stólinn, Í dag starfar ásamt Heiði yndisleg kona að nafni Inga Hrönn, Hún kemur keyrandi alla leið frá Akranesi með sína fágætu hæfileika til að dekra við viðskiptavini Sigga Hárskera.Inga hrönn hefur starfað í faginu í mörg ár, hún er iðinn við að endurmennta sig og er þekkt fyrir sitt einstaka viðmót. Inga er mjög góður fagmaður sem vert er að heimsækja, hún býður gamla og nýja viðskiptavini velkoma til sín.Inga Hrönn og Heiður eru systur og hafa þær starfað saman undanfarin ár en það hefur lengi verið draumur þeirra að að hafa hafa hlutina alveg eins og þeir eru núna bara þær tvær í fullum blóma ásamt viðskiptavinum sínum.Stemmingin hjá systunum er einstök
Í júni 2015 bættist svo Alma Dögg i hópinn, Alma er ung stúlka sem kemur úr hafnafirði, glöggir viðskiptavinir ættu kannski að muna eftir henni en Alma hefur verið við afleysingar hjá Sigganum. Alma er nýkomin heim frá Noregi þar sem hún starfaði á hárgreiðslustofu þar. Hún Alma er fær og vinnur vel og örugglega hún er alveg ótrúlega lífsglöð og hress. Hún útskrifaðist með sveinspróf frá Iðnskólanum í Hafnarfirði árið 2013 með topp einkunnir. Alma sækir öll þá námskeið sem henni býðst og það er alveg víst að geta fengið nýjustu tísku línurnar í stólnum hjá henni.
Það má svo sannarlega upplifa gamla tímann með heimsókn á stofuna en þar er nánast allt upprunalegt frá því að stofan var opnuð árið 1964. Viðskiptavinum verður enn velkomið að mæta á staðinn án þess að bóka tíma og athuga hvort að skærin séu laus en við bendum á að öruggara er að hringja og panta tíma. Stofan býður upp á alhliða hársnyrtingu á sanngjörnu verði og eru nú herrar,dömur og börn velkomin á stofuna. Það er hægt að bóka tíma í litun sem er sennilega mesta breytingin sem hefur orðið á stofunni(Inga,Heiður og Alma notast eingöngu við hágæða liti sem eru sérvaldir fyrir hvern og einn viðskiptavin, Litirnir eru í háum gæðaflokk sem skilar sér í mun betri endingu fyrir viðskiptavinin.Skilyrði við notkun litanna er að sækja reglulega litafræðslunámskeið og önnur endurmenntunarnámskeið í faginu)
Ásamt því er fjölbreytt vöruúrval af hágæða hárvörum á verði sem kemur á óvart og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Hjá Sigga Hárskera er alltaf nýmalað kaffi ofan í bollana og erum við stolt af því að segja að við bjóðum upp á kaffi frá Nonna hjá TE & KAFFI. Hjá Sigga Hárskera verður því framvegis heitt á könnunni og notarlegt viðmót,Við gerum okkar besta í því að láta viðskiptavinum okkar líða vel og gera heimsóknina til okkar að einstakri upplifun.Hér ríkir sérstaklega góður andi og finnst okkur alltaf jafn gaman að fá nýja og gamla viðskiptavini í stólinn, Allir sem hingað koma eru sammála því að hér óma oft sögur frá árum stríðsins í bland við nýbura hjal eftir mjólkurgjöf, okkur finnst það alveg ómetanlegt. Hér eru allir velkomnir í heimilislega umhverfið okkar. Hjá Sigga Hárskera
Laugarnesvegur 74a
Sími : 553-1390
Heiður&Inga&Alma
08/09/2016
Eftir tvö góð ár Hjá Sigga Hárskera höfum við Inga sytir ákveðið að kveðja
þessa dásamlegu litlu kósý stofu með sál, margar sögur sem hafa skemmt okkur af gömlum viðskipavinum Sigga gamla og sumir sem hafa aldrei farið neitt annað.
Við þökkum fyrir okkur og vonum að hún lifi sem lengst áfram með nýjum fagmanni.
Ef það er einhver sem hefur áhuga að taka við þá endilega látið í ykkur heyra frábært tækifæri fyrir metnaðarfullann klippara.
Við förum ekki langt í Mörkina.1
Þar starfar Hársnyrtiskólinn Hár Akademían ásamt hárstyrtistofunni Blondie falleg stofa í björtu húsnæði. Sími 5715990
Lifandi vinnustaður þar sem mekka hársins fer flott saman með skóla og stofu... svo við ættum að vera vel uppfærðar í nýja tímann.
Vonandi sjáum við ykkur flest og þeir sem eftir verða… með kveðju og þökk fyrir viðskiptin.
Heiður s- 8971726 og Inga Hrönn s- 8247679
Endilega að deila takk :)
01/09/2016
Þessi fallegi ungi er fimm mánađa, kom í klippingu í dag ♡
Kœru viđskiptavinir
Stofan verđur lokuđ frá 8 12 ágúst
Kv. Heiđur
10/05/2016
Minnum á að hér er ávallt heitt á könnunni og allir eru velkomnir í stólinn til okkar
Tímabókanir í síma 553-1390
22/03/2016
Okkur þykir sönn ánægja að tilkynna að þið eruð öll velkomin og okkur hlakkar mikið til að sjá ykkur. Kaffi og gott spjall ásamt óaðfinnanlegu hári 😀
Tímapantanir í síma 553-1390
Click here to claim your Sponsored Listing.
Category
Telephone
Website
Address
Laugarnesvegur 74a
Reykjavík
105
Alerts
Be the first to know and let us send you an email when Hjá Sigga Hárskera posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.