EPLIÐ HÁRSTOFA

EPLIÐ HÁRSTOFA

Share

Við erum sérfræðingar í hári ! Við veitum einstaklingsbundna þjónustu og leitumst við að

05/02/2026

Við bjóðum Þórunni Báru Björnsdóttir hjartanlega velkomna með sýningu sína á Eplið hárstofu.

Þórunn Bára Björnsdóttir:
Markmið listsköpunar minnar er að auka vellíðan, vekja athygli á gildi ósnortinnar náttúru Íslands og huga að samspili manns og umhverfis. Að iðka og skoða list þjálfar skynvitund og gagnrýna hugsun. List og vísindi hafa samlegðaráhrif. Náttúran býr yfir visku, seiglu og auðmýkt ásamt með gæðum sem næra líkama og sál. List tengir okkur við hið einfalda og hið flókna í tilverunni og hjálpar okkur að sjá lífið í nýju ljósi, þegar vaninn gerir margt ósýnilegt, og getur þannig vakið okkur til umhugsunar um eigin stöðu.

Þórunn Bára útskrifaðist BA úr málaradeild listaháskólans í Edinborg og MALS frá Wesleyan háskólanum í Bandaríkjunum. Hún starfar sem listamaður í Reykjavík með tilvísun í lífríki Surtseyjar og íslenskar plöntur á hrjóstrugu landi. Röð verka hennar sýna algengar villtar jurtir. Verkin vísa til landnámsgróðurs á lífvana nýju hrauni í lok Surtseyjargoss og eru unnin með akrýllit á léreft út frá eigin skynupplifun hennar án beinnar fyrirmyndar eða staðsetningar í tíma og rúmi.

Í huga Þórunnar Báru er sköpunarferlið það sem drífur verkin áfram. Áhersla hennar er á að fanga athygli áhorfandans með litríkum hlutbundnum og óhlutbundnum formum. Hún nýtir sér fegurð til að örva upplifun á verkunum. Það takast á læsileg form sem kalla fram öryggi og vellíðan og óhlutbundin form sem styrkir einstaklingsbundið innsæi í hverju verki fyrir sig. Þróun lífs á Surtsey er í huga Þórunnar Báru samnefnari fyrir uppruna, framvindu og endalok gróðurs á jörðinni: jörð sem er eina heimili okkar og glímir nú við vistkreppu. Við berum sameiginlega ábyrgð á stöðu loftslagsmála og að vernda vistkeðjuna.

Verið velkomin á vinnustofuna á Grenimel 21 og hafið samband í síma 6621845.

Instagram: thorunn bara bjornsdottir@thorunn bara artist iceland

Vefsíða: https://www.thorunnbara.com/

Sjá einnig:
Google ( Image and Video ) thorunn bara surtsey; thorunn bara surtsey mosar;
thorunn bara surtsey flettur

Contemporary surreal still life oil painting — Ragnhildur Jóhanns 24/11/2025

Contemporary surreal still life oil painting — Ragnhildur Jóhanns Handled Handled Handled Touching pears with a lily Handled Handled Fondling still life Handled Handled Handled Handled Handled Handled Handled Handled Handled Handled Handled handled

Contemporary surreal still life oil painting — Ragnhildur Jóhanns 24/11/2025

Verið velkomin á sýningu Ragnhildur Jóhanns sem stendur yfir á Eplinu frá 1. nóv '25-31 jan '26
Ragnhildur Jóhanns er fædd í Hafnarfirði árið 1977. Hún lauk námi frá Listaháskóla Íslands árið 2010 og á að baki fjölbreyttan listferil. Hún hefur haldið tíu einkasýningar og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum bæði hér á landi og erlendis. Ragnhildur er einnig höfundur þrettán bókverka.

Contemporary surreal still life oil painting — Ragnhildur Jóhanns Handled Handled Handled Touching pears with a lily Handled Handled Fondling still life Handled Handled Handled Handled Handled Handled Handled Handled Handled Handled Handled handled

26/08/2025

Verið hjartanlega velkominn á sýningu Jóhönnu Sveinsdóttur sem stendur nú yfir á Eplinu.

Facebook síða: Jóhanna Sveins. Vinnustofa. Email:[email protected] sími:8955045

Photos from EPLIÐ HÁRSTOFA's post 26/08/2025

Verið hjartanlega velkomin á sýningu Jóhönnu Sveinsdóttur sem nú stendur yfir á Eplinu.

Jóhanna Sveinsdóttir
2024
Jóhanna Sveinsdóttir stundaði nám í Myndlista og handíðaskóla Íslands 1988-1991 og síðan í The art students league 1991-1992. Hún nam kennslufræði myndlistar við Listaháskóla Íslands 2002-2003 og sérkennslufræði við Kennaraháskóla Íslands 2005-2006. Hún á rætur í íslenskri sveit og sækir oft innblástur í minningar þaðan.

Jóhanna hefur undanfarin ár unnið með einþrykk og blandaða tækni á japanpappír. Þrykkin eru marglaga með mörgum litalögum sem gefur dýpt og tilfinningu fyrir jarðlögum og fyrri tímum. Í grunninn notar hún þrykk af gelplötum og notar lauf og strá við þrykkið og nær þannig fram náttúrulegum formum og áferð. Hið smáa og fínlega í náttúrunni er skoðað. Rýna þarf í myndflötinn og stundum birtist þá eitthvað óvænt, kannski lítið minningarbrot en Jóhanna á rætur í íslenskri sveit og minningar þaðan eiga oft leið inn í myndflötinn. Litadýrð og gleði ríkir en jafnframt hangir óræð framtíð yfir. Allt getur breyst, örsnöggt. Í óvissunni er þörf á að sækja í góðar minningar, í litina og formin, veðurbrigði og birtuna í margbrotinni náttúru sem heilar og huggar. Skordýr og fleiri dýr eiga greiða leið inn á myndirnar og minna þau okkur mennina á tilverurétt sinn, gefa okkur aðvarandi auga. Enda er lífríkið, stórt og smátt, órjúfandi heild. Ævintýralegur blær skapast með við tilkomu dýranna, ósögð saga um hvað gerist næst.

Verkin í Eplinu eru öll frá árinu 2024 og eru hluti af tveimur síðustu einkasýningum Jóhönnu sem nefndust Núllstilling og Eitt andartak. Sýningarnar vísuðu annarsvegar til mikilvægi þess að leita í grunninn, til náttúrunnar, slaka á og núllstilla sig og hinsvegar til hverfulleikans og mikilvægi alls lífs ekki síst þess smáa til þess að hringrás lífsins viðhaldist.

Jóhanna hefur látið gera silkiverk eftir hluta verkanna, slæður og klæðnað svo hægt er nánast að sveipa sig náttúrunni sjálfri. Einnig gerir hún ljósaverk/lampa í djúpum seiðandi litum.

Nánari upplýsingar fást á:
Facebook síða: Jóhanna Sveins. Vinnustofa
Email: [email protected]
Sími: +354 8955045

Eik fasteignafélag 09/06/2025

Gaman að þessu:

Eik fasteignafélag Reykjavík skartar mörgum þekktum kennileitum sem hvert um sig setur svip á ásýnd borgarinnar. Borgartún 26, eða B26 eins og byggingin er merkt með áberandi hætti, er eitt þeirra. Í þessari glæsilegu byggingu í hjarta fjármála- og viðskiptahverfis höfuðborgarinnar er augljóslega...

26/05/2025

Verið hjartanlega velkomin á sýningu Hlyns Helgasonar-Valin verk. Sýningin stendur yfir frá 1. mai til31. júní.

17/02/2025

Verið velkomin á sýningu Ásdísar Arnardóttur á Eplinu Borgartúni 26. Sýningin stendur frá 1. febrúar til 1. mai 2025.

Ásdís Arnardóttir nam myndlist við Myndlistarskólann á Akureyri og Myndlista-og handíðaskóla Íslands sem og við Accademia di Belle Arti í Bologna. Hún lauk einnig mastersgráðu í kennaradeild Listaháskóla Íslands.
Í verkunum sem hér eru reynir hún að fanga og endurupplifa tilfinninguna sem fylgir einsemd á fjöllum um hávetur í froststillum. Þögninni og tærri birtunni fylgir þrá eftir að komast enn og aftur í návígi við snjóbarin fjöll. Verkin eru öll unnin með vatnslitum á pappír.
Ásdís er félagi í Sambandi íslenskra myndlistarmanna.
Hún hefur sýnt verk sín hérlendis og erlendis og notið viðurkenningar. Verk hennar er einnig að finna í Artóteki Borgarbókasafns í Tryggvagötu,
artotek.is
[email protected]
663 0654
https://www.instagram.com/asdisa16/

18/11/2024

NÝ MÁLVERK Á EPLINU.

Verið velkomin á sýningu Péturs Gauts sem nú stendur yfir á Eplinu.

Pétur Gautur stundaði nám í listfræði við Háskóla Íslands, málaralist við Myndlista-og handíðaskóla Íslans, leikmyndagerð í Statens Teaterskole i Köbenhavn og listkennslufræði við LHÍ.
Pétur Gautur hefur haldið fjölmargar einkasýningar hérlendis sem og erlendis, allt frá árinu 1991.
Hann er einna þekktastur fyrir tímalausar kyrralífsmyndir sínar.
Pétur Gautur er með vinnustofu og gallerý á horni Njálsgötu og Snorrabrautar. Allir velkomnir. Sími 898 71 72.

Photos from EPLIÐ HÁRSTOFA's post 06/08/2024

Verið velkomin á sýningu Margrétar Jónsdóttur á Eplinu Borgartúni 26. Sýningin stendur yfir frá 1 ágúst til 31 október 2024. Verkin eru úr myndröðinni IN MEMORIAM sem hefur lengi verið í vinnslu og eru unnin með vatnslit á pappír og eru öll til sölu.

Listmálarinn Margrét Jónsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1953 og starfar að list sinni í Frakklandi og Íslandi. Hún hefur starfað sem myndlistarmaður í hálfa öld og eru 49 ár frá fyrstu sýningu hennar í London. Menntuð við Myndlista og Handíðaskóla Íslands, diplóma í frjálsri myndlist/grafík árið 1974. Masternám (Postgraduate) við Central Saint Martin’s College of Art í London árin 1974 til 1976. Myndlista og Handíðaskóli Íslands, diplóma í grafískri hönnun árið 1984. Diplóma frá Kennaraháskólanum árið 1997. Margrét hefur haldið yfir 50 einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga hér á landi og erlendis. Margrét var einn af stofnendum Gallery Suðurgötu 7 sem var mikilvæg miðstöð í þróun framlínumyndlistar á Íslandi. Hún er í ritinu Íslensk listasaga, sem er fimm binda verk og spannar tímabilið frá síðari
hluta 19. aldar til upphafs 21 aldar. Einn af stofnendum og í stjórn Hagsmunafélags Myndlistarmanna sem var undanfari Sambands Íslenskra Myndlistarmanna en eina markmið félagsins var að stofna hagsmunasamtök sem varð SÍM. Verk eftir Margréti eru í eigu helstu listasafna landsins. Hún hefur hlotið ferðastyrki og starfslaun listamanna. Félagi í FÍM, Íslensk Grafík, SÍM, Nýlistasafninu.
Margrét hlaut norræn vatnslitaverðlaun the Winsor & Newton/
NordicWatercolor Association Prize 2023.

Sýningin er opin á opnunartíma hárstofunnar og stendur til 31. október. Allar nánari upplýsingar um myndirnar veiti ég Margrét Jónsdóttir í síma 847 8634 og í netfanginu
[email protected]
Linkar fyrir nánari upplýsingar:

https://mjons.blogspot.com/
https://www.facebook.com/margretjonsdottir.art
https://www.facebook.com/margretjonsdottir.is/
https://www.facebook.com/mogguhusartholiday

Photos from EPLIÐ HÁRSTOFA's post 19/02/2024

Við bjóðum Elínu Þ. Rafnsdóttur hjartanlega velkomna með verk sín á Eplið hárstofu.


Myndirnar á sýningunni eru allar olía á striga og unnar árið 2023. Sýninguna kalla ég Næring.

Verkin eru unnin með olíu á striga, og eru þau flest óræðar náttúrustemmur og landslag þar sem unnið er með áferð jarðar, árstíðir og gróður. „Nafn sýningarinnar Næring vísar til þess að allt ferlið, innblásturinn og litirnir eru næring fyrir sálina og næring vísar einnig til þess að sýningin er á hárstofu sem hárið fær hárnæringu.

Ég sæki mér innblástur í íslenska náttúru og útivist svo og í kennslu en ég hefur um árabil kennt myndlist á framhaldsskólastigi. Í verkum mínum dreg ég upp óvæntar og óhlutbundnar hliðar á landslagi og náttúru og læt tilfinningar ráða för í sköpunarferlinu. Þannig býr ég til óvænt sjónarhorn á myndefnið og veiti því nýjar víddir.

Að loknu námi í Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1978 lagði ég áherslu á skúlptúr í Konunglegu dönsku listaakademíunni í Kaupmannahöfn og útskrifaðist 1982. Þaðan lá leiðin til Bandaríkjanna, þar sem ég tók masterspróf í höggmyndalist. Eftir að ég kom aftur heim aflaði ég mér kennsluréttinda í Kennaraháskóla Íslands auk þess sem ég hef sótt mörg námskeið í myndlist hér á landi og erlendis.

Sýningin er opin á opnunartíma hárstofunnar og stendur frá 1. febrúar til 30. apríl. Allar nánari upplýsingar um myndirnar veiti ég Elín Þ. Rafnsdóttir í síma 8480402 og í netfanginu [email protected]

Want your business to be the top-listed Hair Salon in Reykjavík?
Click here to claim your Sponsored Listing.

Category

Address


Borgartún 26
Reykjavík
105

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 18:00
Wednesday 09:00 - 18:00
Thursday 09:00 - 18:00
Friday 09:00 - 17:00