Kría fargufa
Kría fargufa er ný 6 manna fargufa staðsett við bryggjuna í Gufunes🔥 Einnig er hægt að bóka einkagufu fyrir hópa utan auglýstra opnunartíma.
Kría fargufa er sex manna fargufa við bryggjuna í Gufunesi og eigandi og upphafskona er Brynja Dögg Friðriksdóttir. Hægt er að bóka pláss fyrir 1-6 manns í einu í almenna gufu sem veitir aðgang að er Kríu fargufu í eina klukkustund. Fyrirmynd Kríu fargufu er finnsk sánaböð (í sundfötum þó), þar sem hver og einn gestur nýtur gufunnar á sínum forsendum. Gufan er þurrgufa og hitastigið ca. 75°c-95°c
09/06/2026
Kría fargufa er 1 árs & því ber að fagna með afmælistilboði!
Kría fargufa fagnar 1 árs afmæli 19. júní.
Af því tilefni er sérstakt afmælis-tilboð á 90 mín einkagufum í júní fyrir 1-6 gesti kr. 29.700.-
90 mín einkagufur eru fullkomnar fyrir þau sem vilja einfaldlega vera aaaaðeins lengur í gufu.
Sólsetrin eru einstök í Gufunesinu & því tilvalið að njóta þeirra í lengri gufustund.
Ekki hika við að hafa samband í gegnum samfélagsmiðla eða með því að senda póst á [email protected] ef þú ert með ákveðinn dag eða tíma í huga fyrir lengri gufustund.
Sjáumst í Kríu fargufu!
saunalife
08/05/2026
Nú er hægt að velja um 60 & 90 mín gufustundir í Kríu fargufu. 90 mín almenn gufa er fullkomin fyrir þau sem einfaldlega langar að vera aaaaðeins lengur í gufu.
90 mín einkagufa er líka frábær valmöguleiki fyrir hópa sem vilja koma saman og njóta gufunnar og samverunnar lengur en í hefbundnum gufustundum.
Verð fyrir einstakling í almennri 90 mín fargufu er kr. 5.500. Verð fyrir 90 mín einkagufu á opnunartíma er kr. 33.000.-
Vinsamlega athugið að klippikort gilda ekki í 90 mín gufustundir.
Hægt er að bóka 60 & 90 mín gufustundir á www.sinna.is/kriafargufa
29/04/2026
YKSI, KAKSI, KOLME, SAUNA!
Finnska sendiráðið stendur fyrir ljósmyndasamkeppni fyrir sánuiðkendur 29.apríl - 31. maí
- Hvað gerir íslenska sánu-menningu einstaka?
- Hvernig ljósmyndir finnst þér fanga stemminguna í íslenskri sánu?
Finnska sendiráðið í samstarfi við íslenskar sánur standa fyrir ljósmyndasamkeppni um íslenska sánumenningu.
Verðlaun verða veitt fyrir bestu myndirnar og bestu ljósmyndirnar verða sýndar á sýningu finnska sendiráðsins í Reykjavík.
Hægt er að senda myndir í keppnina með því að merkja myndirnar með á Instagram og Facebook.
Fyrir þau sem eru ekki með samfélagsmiðla, er hægt að hlaða upp ljósmyndir í gegnum google skjal (sjá & QR- kóða link í færslu).
Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu finnska sendiráðsins á Íslandi: https://finlandabroad.fi/web/isl/mission
Kría fargufa er stoltur samstarfsaðili finnska sendiráðsins og hvetur öll sem sánahatti geta valdið að taka þátt í keppninni!
23/04/2026
Gleðiegt sumar & takk fyrir veturinn!
Viðskiptavinum Kríu fargufu býðst einstakt tilboð á vörum Salún 23.apríl til og með 31. maí.
Öll sem bóka pláss í Kríu fargufu á þessu tímabili fá sendan afsláttarkóða sem veitir frábæran afslátt í vefverslun Salún: www.salun.is
Kveikjan að Salún er einstakt dálæti hönnuðarins, Ásrúnar Ágústsdóttur á salúnvefnaði og íslenskri sund-menningu, tveimur hornsteinum sem hafa fylgt þjóðinni í gegnum aldirnar.
Markmið Salún er að gera þessum dýrmæta menningararfi hátt undir höfði með því að samþætta aldagama vefnaðartækni og nútíma lífsstíl.
Salún leggur ríka áherslu á að hver vara hafi skýran tilgang, auðgi líf okkar og falli saumlaust inn í okkar daglega líf.
Það er Kríu fargufu sönn ánægja að bjóða viðskiptavinum sínum þetta frábæra tilboð, enda Salún vörunar ekki bara einstaklega fallegar heldur fullkomnar í gufuna.
15/03/2026
Hver er sérstaða Gufunesins fyrir gufu-og sjósundsfólk?! Þú finnur svörin hér👆🏻
06/01/2026
Kría fargufa óskar vinum, velunnurum og síðast en ekki síst viðskiptavinum gleðilegs nýs árs! Kærar þakkir fyrir frábærar móttökur á þessu fyrsta starfsári Kríunnar. Það sem stendur uppúr er allt skemmtilega fólkið sem lagði leið sína í Kríuna, allar ánægjulegu samverustundirnar og áhugaverðu samtölin. Náttúran, birtan og dýralífið í Gufunesinu gaf margar eftirminnilegar stundir og það var ánægjulegt að njóta þessa alls með ykkur kæru vinir. Megi gufu- og gæðastundirnar verða enn fleiri 2026. Hér eru nokkur vel valin augnablik frá árinu.
Kærar þakkir og sjáumst í Kríu fargufu!
Brynja, eigandi Kríu fargufu
28/11/2025
Dimmir dagar - tilboðsdagar Kríu fargufu 28. nóv-1. des.
Tilboð 1: Gjafabréf fyrir 2 í 60 mín almenna gufustund kr. 7.900 (fullt ver kr. 9.000).
Tilboð 2: Gjafabréf fyrir 60 mín. einkagufu á opnunartíma fyrir allt að 6 gesti kr. 19.900 (fullt verð kr. 24.300).
Hægt er að kaupa gjafabréfin á bókunarvef Kríunnar; www.sinna.is/kriafargufa. Gjafabréfin eru rafræn en hægt er að fá þau sem skjal til prentunar. Gjafabréfin eru tilvalin jólagjöf eða einfaldlega dekur fyrir þig og þína! Tilboðin gilda til og með 1. des en gjafabréfin renna ekki út.
24/11/2025
24/11/2025
Ert þú í björgunarsveit eða þekkir einhvern í björgunarsveit?!
Flettu þá áfram!
Desember er annasamur mánuður hjá björgunar-sveitarfólki og því hefur Kría fargufa ákveðið að veita félögum í björgunarsveitum um allt land sérstakan afslátt út desember.
Öll sem eru í björgunarsveit fá 15% afslátt af miðum í 60 mín almenna gufustund og tilboðið gildir út desember.
Það eina sem félagsmenn og konur þurfa að gera er að fara á mínar síður Landsbjargar og skoða tilkynningar til allra félagsmanna, en þar er að finna afsláttarkóða sem sleginn er inn þegar bókað er á bókunarsvæðinu.
Verið velkomin í Kríu fargufu!
15/10/2025
Kría fargufa er ekki með sánugusur eða leiddar sánur…
-HA?! En hvað þýðir það?! Kann einhver að spyrja sig.
Einfaldleiki gufunnar er í fyrirrúmi í Kríu fargufu, þetta er einfaldlega sána eða gufa að norrænni fyrirmynd. Gestir eru út af fyrir sig í gufunni à meðan á gufustund stendur og sjá sjálfir um að ausa vatni á steinanna. Gufugestgjafi er alltaf á staðnum og til taks fyrir gesti. Og það má tala!
Hver og einn stjórnar tíma sínum inni í gufunni en mælt er með að gestir taki 3x15 mín í gufunni og kæli sig inn á milli. Hitinn í gufunni er að jafnaði 75-95°c. Þú stjórnar þinni upplifun.
Og það besta…
Samtölin, hláturinn og samveran í gufunni nærir andann á meðan hitinn nærir líkamann.
Meiri sána - minna stress!
Verið velkomin í Kríu fargufu!
Click here to claim your Sponsored Listing.
Category
Contact the business
Telephone
Website
Address
Gufunes
Reykjavík