Neglur hjá Jóhönnu
Ég er naglafræðingur með 19 ára reynslu auk kennararéttinda í faginu.
Minni á fyrri póst.
Ég er farin í veikindafríi þar til annað kemur í ljós.
Allar bókanir falla því niður ❤
Jæja þá elskurnar mínar ❤
Eftir heilsubrest síðasta árs og ítrekanir lækna og annarra meðferðaraðila hef ég tekið ákvörðun um að leggja verkfærin frá mér í bili.
Ég mun því ekki byrja aftur með neglurnar eftir sumarfrí, heldur mun ég nýta næstu vikur og mánuði til að vinna upp þrek og heilsu á ný.
Allar bókanir sem hafa verið gerðar eftir að sumarfríi lýkur falla því niður.
Ég mun tilkynna hér hvort og þá hvenær ég hefst handa aftur.
Þessi ákvörðun er ekki auðveldlega tekin og mun ég sakna ykkar allra.
Vona að þið sýnið þessu skilning elskurnar ❤
Jæja þá 😊
Nú get ég loks byrjað aftur eftir smá veikindafrí ❤
Ég verð þó að hryggja ykkur með því að nú verða engir seinni parts tímar í boði, og mun ég eingöngu vinna á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl 8 til 16.
Sendið mér endilega skilaboð ef þið viljið bóka tíma ❤
Losnaði tími kl 14.30 á morgun miðvikudag.
Sendið skiló ef þið viljið nýta ykkur hann 😊
Gleðilegt nýtt ár elskurnar og takk fyrir þetta skrítna ár sem nú er loksins liðið🙈
Ég byrja að vinna aftur 4 janúar 😊
Sendið skiló til að bóka tíma 😊
20/12/2020
Tveir síðustu tímarnir fyrir jól eru kl 8.30 og kl 12.30 á morgun mánudag.
Sendið skiló ef þið viljið bóka tíma ❤
11/12/2020
Jólalegar og fallegar 🥰
Tveir lausir tímar í næstu viku, síðasti sjens fyrir jólin 😁
Fimmtudagur 17 des kl 8.30 og kl 15
Sendið skiló til að bóka tíma 🥰
Click here to claim your Sponsored Listing.
Category
Website
Address
Selfoss
800