Óskastund
Þessi síða er hugsuð sem vettvangur til að halda utan um heilunina mína ásamt því að spá í spilin!
07/10/2025
Ég er farin að taka niður pantanir í reiki heilunina aftur! 🥰 Ásamt því að það styttist í dásamlegu tónheilunartímana líka! 🩷 Endilega hafðu samband ef þú vilt vita meira og/eða finna tíma sem hentar! 😘
05/10/2025
Sunnudagur til sælu með sjálfsást og sjálfsmildi fyrir komandi viku! 🩷
01/10/2025
Mér líður pínu eins og jólin séu á morgun! 🥰 Fékk þessa mynd frá Arnbjörgu sem ég lærði tónheilun hjá í kvöld með þeim skilaboðum að þetta færi frá henni á morgun!! 🎉 Já krakkar mínir gongið mitt er á leiðinni! Get ekki beðið eftir að hafa tónheilunartíma aftur! 🩷 Langar þig að prófa? Sendu mér línu hér eða í gegnum Facebookið mitt! 😊 Fylgist vel með á næstunni!
Sæl kæru Óskastundar fylgjendur! 😊 Ég er með FRÁBÆRAR fréttir.. gongið mitt verður sent af stað að utan í næstu viku!!! 🥰 Ég get samt eiginlega ekki beðið.. mér finnst vanta part af sjálfri mér eftir sumarfríið! 🙈🤣 Hlakka ólýsanlega mikið til að fá ykkur aftur á dýnurnar! Eins ef það eru einhverjir hérna sem langar að prófa að koma í tíma þá endilega kommentið eða sendið mér skilaboð! 🩷
15/05/2025
Fékk þessi dásamlegu orð eftir frábæra stund 🥰
Við fórum nokkrar saman í tónheilun og talnaspeki hjá Kristínu Ósk. Tónheilunin var notaleg og róleg stund og talnaspekin góð dægrastytting sem við skemmtum okkur við að skoða. Það var skemmtilegt að heyra hvað Kristín Ósk las úr tölum og spilum fyrir okkur. Eftir stendur skemmtileg upplifun með góðum vinkonum í notalegu umhverfi. Eygló Egils
Endilega heyrið í mér, hvort sem það eru minni eða stærri hópar! 🩷 Tilvalið fyrir saumaklúbbinn, mömmuklúbbinn, sem hópefli eða hvað sem er! 😊 Ljós og kærleikur, ykkar Kristín Ósk
Tími í tónheilun kl.17.15 á morgun! 🥰 Salurinn hjá Allra heilsa! Hlakka til að fá ykkur á dýnuna! 🩷
10/05/2025
Bjó til svo fallega óskastund í bílskúrnum minum í dag! 🥰 3 skvísur byrjuðu árshátíðar partý hér hjá mér! 🩷 Fengu tónheilun og reikiheilun, ásamt því að ég reiknaði út smá talnaspeki fyrir þær og það var kíkt í nokkur spil! Heppnaðist ótrúlega vel! Endilega hafið samband við mig ef ykkur langar í smá hópefli.. hvort sem það eru litlir eða stærri hópar! Hægt að sníða ýmislegt til! 😘
Kærleikskveðja Kristín Ósk Óskarsdóttir
Tími í tónheilun í dag kl.17.15 í salnum hjá Allra heilsa!🥰 Nokkrar dýnur lausar! 🩷
Við stöllurnar, ég og Anna Ólafsdóttir, leiddum saman hesta okkar í tíma dagsins! 🥰 Bandvefsnudd, jóga nidra, reikiheilun og tónheilun! Viðtökurnar voru vægast sagt fram úr okkar björtustu vonum! 🎉 Við brosum hringinn eftir daginn og þetta munum við sko gera aftur! 🩷
Ummæli frá Önnu Lilju: Dásamlegur tími sem núllstillti mann alveg, kem pottþétt aftur ❤️
Tónheilun á morgun kl.17.15! 🥰 Þarft ekki að mæta með neitt nema sjálfa/an þig! Skráning hér fyrir neðan eða í einkaskilaboðum! 🩷 hlakka til að fá þig á dýnuna!
Click here to claim your Sponsored Listing.
Category
Website
Address
Áshamar 127
Vestmannaeyjar
900