Forest Lagoon

Forest Lagoon

Share

Skógarböð eru staðsett við Akureyri, nánar tiltekið í Vaðlaheiði. Böðin voru opnuð snemma árs 2022.

Frábær heilsulind þar sem orku trjánna og vatnsins nýtur við, þar sem fullkomið er að slaka á og endurnærast. Forest Lagoon is a new geothermal spa located in Vaðlaskógur forest, couple minutes' car drive from Akureyri.

08/09/2026

📸 Við í Skógarböðunum erum að leita að fólki til að taka þátt í myndatökum fyrir nýtt markaðsefni.

Við leitum að fjölbreyttum hópi fólks á öllum aldri sem líður vel fyrir framan myndavélina. Engin fyrri reynsla af módelstörfum nauðsynleg.

Við erum sérstaklega að leita að fólki sem hefur góðan sveigjanleika og gæti átt möguleika á að mæta í myndatökur með tiltölulega stuttum fyrirvara.

Hefur þú áhuga? Sendu okkur stutta kynningu og nýlega mynd af þér á [email protected]
______________________________________________________

📸 We at Forest Lagoon are looking for people to take part in a photo shoot for new marketing materials.

We are seeking a diverse group of people of all ages who feel comfortable in front of the camera. No previous modelling experience is required.

We are especially interested in people with flexible schedules who may be available for photo shoots at relatively short notice.

Interested? Send us a brief introduction and a recent photo of yourself at [email protected].

__________________________________________________________________

07/09/2026

Akstursáætlun okkar yfir vetrartímann tekur gildi í dag!
Njóttu afslappandi kvöldstundar í Skógarböðunum með þægilegum daglegum rútuferðum frá miðbæ Akureyrar.

🚌 Brottför: Kl. 18:45 frá Centrum Kitchen & Bar
Heimferð: Kl. 22:00 frá Skógarböðunum

Leyfðu okkur að sjá um aksturinn og njóttu kyrrðarinnar, hlýjunnar og stórbrotins útsýnis yfir Eyjafjörð. Bókaðu þína upplifun í Skógarböðunum í dag.
______________________________________________________

Our low-season shuttle schedule starts today!
Enjoy a relaxing evening at Forest Lagoon with convenient daily transport from Akureyri city centre.
🚌 Departure: 18:45 from Centrum Kitchen & Bar
Return: 22:00 from Forest Lagoon

Leave the driving to us and immerse yourself in the warmth, tranquillity and spectacular views of North Iceland. Book your Forest Lagoon experience today.

06/09/2026

Dagana 7.–10. september bjóðum við eldri borgurum frítt í Skógarböðin. 💙 Gegn framvísun skírteinis :) Verið hjartanlega velkomin!

27/08/2026

🍂 Breyttur opnunartími frá 1. september 🍁
Opið alla daga frá kl. 10:00 – 23:30

🍁 New opening hours from September 1. 🍂
Open daily from 10:00 AM to 11:30 PM

07/08/2026

Forest Bistro verður lokað sunnudagskvöldið 9. ágúst frá kl. 20:00
vegna starfsmannagleði. Við þökkum skilninginn 😊__________________________________________________________
Forest Bistro will be closed on Sunday evening, August 9, from 8:00 PM due to a staff event. Thank you for your understanding 😊

30/07/2026

(English below)
Margir munu leggja leið sína til Akureyrar um verslunarmannahelgina
og má búast við mikilli aðsókn í böðin.
Við hvetjum gesti til að bóka tímanlega til að tryggja sér aðgang.

⚠Við minnum einnig á að börn, 12 ára og yngri, þurfa að vera farin
upp úr böðunum fyrir kl. 20:00.
_____________________________________________

Many people will be travelling to Akureyri next weekend for verslunarmannahelgin, and we expect the lagoon to be busy.
We encourage guests to book in advance to secure their entry.

⚠Please also note that children aged 12 and under must be out of the lagoon by 20:00 (8:00 PM).

03/07/2026

🎉 Vinningshafar góðgerðarhöggsins hafa verið dregnir út! ⛳💚

Kærar þakkir til allra sem tóku þátt í góðgerðarhögginu við Skógarböðin og lögðu þannig sitt af mörkum til að safna 500.000 krónum fyrir Matargjafir Akureyrar og nágrennis. 💚
Við höfum nú haft samband við alla vinningshafa og óskum þeim innilega til hamingju! 🥳

Við viljum jafnframt færa Ölgerðinni kærar þakkir fyrir að gefa tvo glæsilega vinninga frá Gull Lite, sem glöddu svo sannarlega vinningshafana. 💛

Enn og aftur innilegar þakkir til allra sem tóku þátt, sem og Golfklúbbs Akureyrar fyrir frábært samstarf. Saman tókst okkur að leggja mikilvægu málefni lið og sýna að þegar samfélagið stendur saman getum við raunverulega skipt máli. 💚

Photos from Forest Lagoon's post 02/07/2026

Góðgerðaruppboð Óþokka í Skógarböðunum í kvöld!

Ungmennafélagið Óþokki stendur fyrir góðgerðaruppboði á árituðum fótboltatreyjum frá enskum liðum og allur ágóði rennur óskiptur til PIETA samtakanna.

Í boði verða fjórar treyjur.

⚽ Glæný Everton treyja, árituð af leikmönnum í maí.
⚽ Glæný Nottingham Forest treyja, árituð af leikmönnum í maí.
⚽ Portsmouth 25/26 treyja, árituð af Hemma Herminator.
⚽ West Bromwich Albion 25/26 treyja, árituð af Lárusi Orra (og fleiri áritanir kunna að bætast við).

Uppboðið hefst kl. 22:30.

Öllum gestum Skógarbaðanna er velkomið að taka þátt og einnig þeir sem vilja kaupa sér aðgang sérstaklega til að mæta á uppboðið og styðja gott málefni.

Við hlökkum til að sjá ykkur og leggja saman lið fyrir gott málefni!

01/07/2026

Due to the high number of people visiting Akureyri this weekend, we expect increased demand for the lagoon. We encourage all guests to book in advance to secure their admission. Please also note that children aged 12 and under must leave the lagoon by 8:00 PM (20:00). 😊
________________________________________________________

Vegna mikils fólksfjölda á Akureyri um helgina má búast við mikilli
aðsókn í böðin. Við hvetjum gesti til að bóka tímanlega til að tryggja sér aðgang.
Við minnum einnig á að börn 12 ára og yngri þurfa að vera farin upp úr
böðunum fyrir kl. 20:00. 😊

29/06/2026

Skógarböðin og Golfklúbbur Akureyrar afhenda Matargjöfum Akureyrar 500.000 króna styrk

Skógarböðin og Golfklúbbur Akureyrar afhentu í dag Matargjöfum Akureyrar og nágrennis styrk að upphæð 500.000 krónur, sem safnaðist í góðgerðarhöggi við Skógarböðin.

Markmið góðgerðarhöggsins er að styðja við mikilvægt samfélagsverkefni og varð Matargjafir Akureyrar og nágrennis fyrir valinu í ár vegna þess ómetanlega starfs sem samtökin vinna fyrir einstaklinga og fjölskyldur á Norðurlandi.

Viðburðurinn sýndi hversu miklu er hægt að áorka þegar fyrirtæki, félög og einstaklingar leggja krafta sína saman. Samstaðan og viljinn til að leggja góðu málefni lið gerði það að verkum að safnaðist þessi glæsilega upphæð sem nú rennur óskipt til starfsemi Matargjafa.

Samfélagsábyrgð er Skógarböðunum mikilvæg og fyrirtækið leggur áherslu á að styðja við verkefni sem hafa raunveruleg og jákvæð áhrif á nærumhverfið. Með samstarfi við Golfklúbb Akureyrar tókst að skapa vettvang þar sem íþróttir, samvera og samfélagsleg ábyrgð fóru hönd í hönd.

Það er auðvelt að gleyma því að öflugt samfélag byggist af stórum hluta á fólki sem er tilbúið að rétta öðrum hjálparhönd. Starf Matargjafa Akureyrar og nágrennis er einmitt lifandi dæmi um það. Á hverjum degi leggja sjálfboðaliðar og aðrir sem koma að verkefninu sitt af mörkum en það gera þau af alúð, metnaði og umhyggju til að styðja við þá sem þurfa á hjálp að halda.

Skógarböðin vilja færa Golfklúbbi Akureyrar innilegar þakkir fyrir farsælt samstarf við framkvæmd verkefnisins, sem og öllum þátttakendum sem lögðu sitt af mörkum til að gera þessa styrkveitingu mögulega.

Jafnframt vilja Skógarböðin þakka Matargjöfum Akureyrar og nágrennis fyrir það óeigingjarna og mikilvæga starf sem samtökin vinna á hverjum degi. Það er einlæg von okkar að styrkurinn nýtist vel og styðji áfram við það mikilvæga hlutverk sem þau gegna í samfélaginu. Þegar við stöndum saman getum við raunverulega skipt máli og gert samfélagið okkar hlýrra og sterkara.

Want your business to be the top-listed Beauty Salon in Akureyri?
Click here to claim your Sponsored Listing.

Category

Address


Vaðlaskógur
Akureyri
605

Opening Hours

Monday 10:00 - 00:00
Tuesday 10:00 - 00:00
Wednesday 10:00 - 00:00
Thursday 10:00 - 00:00
Friday 10:00 - 00:00
Saturday 10:00 - 00:00
Sunday 10:00 - 00:00